Fréttablaðið - 03.05.2004, Qupperneq 14
14 3. maí 2004 MÁNUDAGUR
BERA SAMAN BÆKUR SÍNAR
Á KJÖRSTAÐ
Líbanir gengu til sveitarstjórnarkosninga í
gær og er það í annað sinn frá því 35 ára
löngu borgarastríði í landinu lauk. Borgar-
stjórar, bæjarráð og hreppstjórar voru
kosnir í 299 sveitarfélögum. Kosningarnar
fóru friðsamlega fram en öryggisgæsla var
öflug eins og sjá má.
Norðlenska tapaði 194 milljónum á síðasta ári:
Svínkjöt selt á spottprís
KJÖTMARKAÐUR Kjötvinnslufyrir-
tækið Norðlenska var rekið með
tæplega 194 milljóna króna tapi á
síðasta ári. Þetta kom fram á aðal-
fundi félagsins sem haldinn var í
fyrradag.
Í skýrslu Sigmundar E. Ófeigs-
sonar, framkvæmdastjóra Norð-
lenska, kom meðal annars fram að
ytri aðstæður hafi verið Norð-
lenska afar erfiðar á liðnu ári, ekki
síst hafi gjaldþrot kjötvinnslu-
fyrirtækja og sláturhúsa komið illa
við rekstur fyrirtækisins.
Sigmundur gagnrýndi undir-
boð framleiðenda á markaði á síð-
asta ári og sagði þau hafa keyrt
fram úr hófi.
„Svínakjöt lækkaði niður úr
öllu valdi og voru sláturhús far-
in að kaupa svínakjöt á innan
við 100 krónur kílóið á síðasta
ári samanborið við 265 krónur á
miðju ári 2001,“ sagði Sigmund-
ur í skýrslu sinni. „Útsöluverð
fór einnig niður og var svo kom-
ið að svínakjöt var meira og
minna selt á útsölum fyrir
spottprís. Sem dæmi fór ham-
borgarhryggurinn niður fyrir
600 krónur kílóið og kjúklingur
niður undir 100 krónur kílóið.“
Sigmundur sagði að í ár væri
gert ráð fyrir hallalausum rekstri
á Norðlenska. ■
Skjóta Umhverfis-
stofnun ref fyrir rass
Skotveiðimenn gerðu alvöru úr hótunum sínum um að falsa veiðiskýrsl-
ur vegna síðasta árs til að mótmæla rjúpnaveiðibanni. Samkvæmt skýrsl-
um Umhverfisstofnunar hefur skotveiði aukist um 500 prósent milli ára.
VEIÐISTJÓRNUN „Það má heita að
allar veiðitölur frá árinu 2003
séu ónýtar og gagnslausar,“ seg-
ir Áki Ármann Jónsson, for-
stöðumaður veiðistjórnunar-
sviðs Umhverf-
i s s t o f n u n a r.
Komið hefur í
ljós að skot-
veiðimenn hafa
gert alvöru úr
þeim hótunum
sínum að falsa
veiðiskýrslur
þær er þeim er
gert að skila ár-
lega inn til að
mótmæla veiðibanni á rjúpu sem
lagt var á síðasta haust. Veiði-
menn fá ekki nýtt leyfi til veiða
nema að því gefnu að þeir skili
skýrslu um veiðar sínar í lok
hvers árs.
„Þetta er þrenns konar svik í
gangi. Sumir skila inn tölum sem
eru algjörlega út úr korti en sam-
kvæmt þeim hafa einhverjir veitt
tíu milljón rjúpur á síðasta ári.
Við sigtum þær strax út en síðan
höfum við hóp sem skráir hóflega
veiði á öllum tegundum sem erfið-
ara er að fást við og síðasti hópur-
inn skilar skýrslunni en skráir
enga veiði á síðasta ári.“
Áki segir að ekkert samhengi
sé milli veiðitalna ársins 2003 og
2002 og því megi ganga að því
sem vísu að allar tölur fyrir síð-
asta ár séu ónothæfar. „Veiði-
menn eru fyrst og fremst að eyði-
leggja fyrir sjálfum sér með þess-
um hætti því það er þeim í hag að
tölur um heildarskotveiði séu sem
réttastar svo ákveða megi hversu
mörg dýr má veiða á næstu árum.
Það var tilgangurinn með þessum
gagnagrunni og hann hefur ekk-
ert að gera með rjúpnaveiðibann.“
Sigmar B. Hauksson, formaður
skotveiðifélagsins Skotvís, hvatti
veiðimenn til að láta skoðun sína í
ljós síðasta sumar með því að
breyta skýrslum í árslok en dró
það til baka þegar leið á árið. Seg-
ir hann þó á heimsíðupistli sínum
frá því í október að með ólögum
þeim sem bann við rjúpnaveiðum
væru væri í raun verið að vinna
óbætanlegt tjón á veiðikortasjóð
og þann gagnagrunn sem safnað
hefur verið í undanfarin ár til
hagsbóta fyrir alla.
albert@frettabladid.is.
„Veiðimenn
eru fyrst og
fremst að
eyðileggja
fyrir sjálfum
sér með þess-
um hætti.
VERSLUNIN
SVANNI
Stangarhyl 5 · 110 Reykjavík
S: 567 3718 · Fax 567 3732
svanni@svanni.is
www.svanni.is
❊ ❊LAGERÚTSALA
Á ELDRI VÖRUM - ÓTRÚLEG VERÐTILBOÐ
RÝMUM FYRIR NÝJU HÁSUMARLÍNUNNI
Engjateigi 5, sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00.
NÝTT FRÁ ÍTALÍU
BUXNADRESS OG
BUXNADRAGTIR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
9
1
3
8
Eddufelli 2,
s. 557 1730
Bæjarlind 6,
s. 554 7030
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 og lau. kl. 10-16T Í S K U V E R S L U N
TILBOÐSSLÁ
MEÐ NÝJUM VÖRUM Í BÁÐUM BÚÐUNUM
KJÖTVINNSLA
Sigmundur gagnrýndi undirboð framleiðenda á markaði á síðasta ári og
sagði þau hafa keyrt fram úr hófi.
FRÁ MÓTMÆLUM SKOTVEIÐIMANNA Í FYRRA
Þeir stóðu við hótanir sínar og veiðiskýrslur síðasta árs eru með öllu ónothæfar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R