Fréttablaðið - 04.05.2004, Page 10
10 4. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
ÞJÓÐHÁTÍÐ
Tveimur dögum eftir að Pólland varð aðili
að Evrópusambandinu héldu landsmenn
stjórnarskrárdaginn hátíðlegan en hann er
eiginlegur þjóðhátíðardagur Pólverja.
Drengurinn á myndinni tók þátt í hátíða-
höldunum flaggandi fána á hjóli sínu.
Litlaá í Kelduhverfi:
23 punda sjóbirtingur
VEIÐI „Þetta var rosalegur fiskur
og svona veiðist ekki á hverjum
degi í Litluá í Kelduhverfi,“ sagði
Erling Ingvason tannlæknir á Ak-
ureyri, einn af leigutökum árinn-
ar.
Fyrir fáum dögum veiddist 23
punda sjóbirtingur í Litluá og
verður fiskurinn stoppaður upp.
Það var Guðmundur Ingi
Hjartarson hjá X-net sem veiddi
fiskinn en með honum voru þeir
Kári Schram og Guðbergur Dav-
íðsson. Þeir höfðu verið við veiðar
í ánni í þrjá daga, en fiskurinn
stóri veiddist á svæði fjögur.
Baráttan við fiskinn var ströng
en hann tók flugu sem málarinn
Sigurður Pálsson hafði hnýtt og
kallast flugan Dýrbítur.
Veiðimenn velta því nú fyrir
sér hvort upp sé að renna stór-
fiskasumar í silungsveiðinni.
Skemmst er að minnast risafisks
úr Þingvallavatni sem var 37
pund, stærstu sjóbirtingarnir í
vorveiðinni voru 16 pund og svo
veiðist þessi stóri í Litluá. Fyrir
fáum dögum veiddist 14 punda
bleikja í Varmá. ■
Lést eftir vélsleða-
slys í Garðsárdal
Einn vélsleðamaður lést og fimm slösuðust í tveimur slysum í Garðsár-
dal í Eyjafirði í fyrradag. Hátt í 200 björgunarsveitarmenn brutust við
erfiðar aðstæður að mönnunum og tóku aðgerðir tæpan sólarhring.
SLYS Geysifjölmennt lið björgun-
arsveitarmanna tók þátt í björgun
vélsleðamannanna í Garðársdal
við Gönguskarð á Vaðlaheiði í
fyrradag. Einn maður lést og
fimm slösuðust þegar vélsleðar
þeirra fóru fram af háum snjó-
hengjum. Mennirnir sem slösuð-
ust eru allir á batavegi og standa
vonir til að útskrifa megi þá síð-
ustu af sjúkrahúsi í þessari viku.
Björgun mannanna var afar
erfið og komu síðustu björgunar-
sveitarmennirnir ekki til baka
fyrr en laust eftir hádegi í gær.
Allar aðstæður voru hinar erfið-
ustu og afar torsótt var á farar-
tækjum að slysstöðunum en um
tvö aðskilin slys var að ræða.
„Okkur berast fyrst fregnir af
fyrra slysinu um miðjan dag í
fyrradag og þó voru kallaðar út
björgunarsveitir samdægurs,“
segir Daníel Guðjónsson, yfirlög-
regluþjónn á Akureyri, en hann
tók þátt í björgunarstjórnun frá
stjórnstöð björgunarsveitarinnar
Súlunnar á Akureyri.
„Skömmu síðar berst tilkynn-
ing um annað slys skammt frá
hinu fyrra og strax var ljóst að
þar var um mjög alvarlegt slys að
ræða. Fljótlega varð okkur ljóst
að um banaslys væri að ræða og
því lá á að komast sem fyrst að
mönnunum. Boðuðum við björg-
unarsveitir hvaðanæva að og sýn-
ist mér að allt að 200 björgunar-
sveitarmenn hafi tekið þátt í þess-
um björgunaraðgerð.“
Skyggni var með versta móti á
þessum slóðum þegar slysin áttu
sér stað. Kafaldsbylur geisaði og
aur og krapi gerðu björgunar-
sveitum lífið leitt og bilaði hvert
tæki björgunarsveitarmannanna
á fætur öðru. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar sem ræst var vegna
slyssins kom norður um kvöld-
matarleytið en gat ekkert aðhafst
vegna veðurofsans fyrr en seint
um nóttina.
Liðu því sjö tímar frá því neyð-
arkall barst þangað til fyrstu
björgunarsveitarmennirnir komu
á vettvang og þurfti þá að bera
hina slösuðu nokkurra kílómetra
leið að björgunarsveitarjeppum.
Einn vélsleðamannanna var
látinn þegar að var komið en
félagar mannsins hlutu minni
meiðsl. Fór einn þeirra í aðgerð í
gærmorgun en líðan hans er góð
og búast læknar á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri við að
hann fari heim síðar í vikunni
ásamt tveim öðrum sem enn
liggja á sjúkrahúsinu.
Víða var flaggað í hálfa stöng á
Akureyri í gær vegna banaslyss-
ins en maðurinn sem lést hefur
verið búsettur þar lengi og rekið
farsælt fyrirtæki.
albert@frettabladid.is
Litla kaffistofan:
Hand-
tekinn í
Reykjavík
LÖGREGLAN Maður var handtek-
inn og færður í yfirheyrslur
grunaður um tilraun til að brjót-
ast inn í Litlu kaffistofuna í gær-
morgun. Öryggiskerfi kaffistof-
unnar fór í gang þegar rúða á
hlið hússins var brotin. Starfs-
maður náði númerinu á rauðum
bíl sem ekið var á brott frá
staðnum. Fannst hann síðar
mannlaus í Reykjavík og var
maðurinn handtekinn í fram-
haldinu. ■
Geirfinnslöggan
sökk með
Guðrúnu
Gísladóttur
Mjódd - Sími 557 5900
VORDAGAR Í FRÖKEN JÚLÍU
MIKIÐ ÚRVAL AF HÖR, TENSEL OG GALLAFATNAÐI
OG MARGT FLEIRA. ÝMIS TILBOÐ Í GANGI.
VERIÐ VELKOMNAR Á VORDAGA
AKUREYRARKIRKJA
Bænastund var haldin í Akureyr-
arkirkju í gærkvöld til minningar
um manninn sem lést í vélsleða-
slysinu í Garðsárdal við Göngu-
skarð á Vaðlaheiði í fyrradag.
DANÍEL GUÐJÓNSSON YFIRLÖG-
REGLUÞJÓNN
Allar aðstæður voru hinar erfiðustu og
afar torsótt var á farartækjum að slys-
stöðunum.
KOMINN Á LAND
Guðmundur Ingi Hjartarson og Kári G.
Schram með risafiskinn við Litluá á svæði
4. Löndunarstjóri var Guðbergur Davíðsson
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI