Fréttablaðið - 06.06.2004, Blaðsíða 21
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 79 stk.
Keypt & selt 23 stk.
Þjónusta 23 stk.
Heilsa 4 stk.
Skólar & námskeið 2 stk.
Heimilið 12 stk.
Tómstundir & ferðir 6 stk.
Húsnæði 23 stk.
Atvinna 14 stk.
Tilkynningar 1 stk.
Frábær rómantísk
gamanmynd sem
kemur skemmtilega
á óvart frá snillingnum Kevin Smith.
Þú ert stjarnan,
ekki missa þig!
Vinningar verða afhentir hjá BT Skeifunni. Reykjavík.
99 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb
9. hver vinnur
bíómiða eða singstar
SMS leikur
Sendu SMS skeytið JA JBIO
á númerið 1900 og þú gætir unnið
Hvernig verður maður
táknmálstúlkur?
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er sunnudagurinn 6. júní
158. dagur ársins 2004.
Reykjavík 3.10 13.26 23.45
Akureyri 2.13 13.11 24.13
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Þú færð líka
allt sem þig vantar á
„Ég er búinn að stunda reiðhjólaviðgerðir
í yfir tuttugu ár en hnífabrýnslu í fjögur,“
segir Magnús Örn Óskarsson hjá Borgar-
hjólum á Hverfisgötu. Þetta er mesti
annatíminn hjá honum því reiðhjól og
garðklippur þurfa hressingar við eftir
veturinn. Hann kveðst ekki selja hjól held-
ur leigja. En skyldu þessir reiðskjótar
hafa mikið breyst frá því hann byrjaði í
viðgerðunum? „Já, ég kom inn í þetta
starf þegar 10 gíra hjólin voru vinsælust.
Svo kom tímabil þegar allir krakkar vildu
eiga BMX-hjól og síðan komu fjallahjólin
með alla sína gíra. Það er orðin mum meiri
vinna við hvert hjól en var, þó að flestu
leyti séu þau betur hönnuð,“ segir hann.
Magnús segir mest af sínum tíma fara
í að laga hjól eftir illa meðferð og geym-
slu. „Þau hafa staðið úti í öllum veðrum
og kannski ekkert verið notuð meirihluta
vetrar. Á vorin er svo allt orðið fast,“ seg-
ir hann og upplýsir að algengur viðgerð-
arkostnaður hjóleiganda sé 5-7 þúsund
eftir veturinn, hafi hjólið staðið aðgerða-
laust úti. Þar á ofan geti bæst efni.
Hvernig skyldi það svo hafa komið til að
hann hóf þessa iðju? „Ég varð bara at-
vinnulaus og fór að athuga hvort ég gæti
ekki gert eitthvað upp á eigin spýtur. Var
búinn að vera á sjó í 27 ár. Er vélvirki og
vélstjóri og hef þess vegna grunnþekk-
ingu á svona „mekanisma“. Svo gríp ég í
að smíða reiðhjólastatíf fyrir skóla,
stofnanir og heimili og einn veturinn
þegar lítið var að gera fór ég út í skerp-
ingar og það er ótrúlega mikið að gera í
þeim.“ Hann segir eldhúshnífa oftast í
brýnslu en líka flökunarhnífa, hófjárn og
skæri. Lokaspurningin er: Er þetta
skemmtilegt? Og lokasvarið: „Ja, mér
leiðist ekkert að vinna, sjáðu.“
gun@frettabladid.is
Magnús Örn Óskarsson:
Leiðist ekkert
að vinna, sjáðu
heimili@frettabladid.is
Stjórn Vinnumálastofnunar
ásamt forstöðumönnum svæðis-
vinnumiðlana
og forstjóra
og sviðsstjór-
um Vinnu-
málastofnun-
ar heimsóttu
Kárahnjúka-
svæðið á
dögunum og funduðu með tals-
mönnum ítalska verktakafyrirtæk-
inu Impregilo um starfsmanna-
hald og ráðningarmál. Á fundin-
um var skipst á skoðunum um
hvað ylli hinni óvenju háu starfs-
mannaveltu í þessu verkefni mið-
að við önnur verkefni sem
Impreglio hefur tekið að sér.
Fram kom einnig á fundinum að
nú starfa um 1.200 manns við
Kárahnjúkavirkjun og af þeim eru
aðeins 130 Íslendingar.
Grundvallarréttindi verka-
fólks eru nú í mörgum löndum
vanrækt og hunsuð og dæmi eru
um að verkafólki sé bannað að
gerast meðlimir í verkalýðsfélög-
um. Þessi hópur er þar af leið-
andi óverndaður og hefur mjög
takmörkuð eða engin réttindi.
Mjög alvarlegt er að lönd eins og
Brasilía, Kína, Indland, Mexíkó og
Bandaríkin sem eru með stærstu
löndum í heimi hafa enn ekki
staðfest
grundvallar-
sáttmála Al-
þjóðavinnu-
málastofnun-
arinnar um fé-
lagafrelsi.
Þetta kemur
fram í skýrslu sem ber heitið
„Organizing for social justice“ og
var gefin út af Alþjóðavinnumála-
stofnun og þeirri deildar innan
Sameinuðu þjóðanna sem sér
um málefni verkafólks. Hægt er
að lesa nánar um skýrsluna á vef-
síðunni icftu.org.
Neyðarlínan var á dögunum
dæmd til að greiða bætur fyrir
brot á jafnréttislögum. Dómurinn
var kveðinn upp í Hæstarétti og í
niðurstöðu hans segir að fram-
kvæmdastjórar Neyðarlínunnar
hafi ekkert hugað að ákvæðum
jafnréttislaganna við ráðningu
eins og er skylda. Konan sem um
ræðir varð fyrir fjártjóni að mati
Hæstaréttar og fyrirtækið var því
dæmt til að greiða skaðabætur
sem metnar voru að álitum.
Magnús Örn hefur alltaf eitthvað fyrir stafni.
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í ATVINNU
Mjög vönduð heilsárshús frá Svíþjóð.
Stærðir 16, 20, 27, 41 og 52 fm. Einnig
geymslu- eða gestahús á lóðina eða
við sumarbústaðinn. 4,6-10 fm.
www.bjalkabustadir.is - Sími 581-
4070, Elgur bjálkabústaðir.
Suzuki Savage 650 árg. ‘97. Ekið 5200
míl. Verð 290 þús. Uppl. í síma 844-
6577.
Til sölu Mustang Fastback 1965 2x2.
Góður bíll í góðu standi. Uppl. í síma
894-3330 og 467-1597.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.