Fréttablaðið - 10.07.2004, Side 1
▲
SÍÐA 27
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
LAUGARDAGUR
TVEIR LEIKIR Í LANDSBANKA-
DEILD KARLA Í KVÖLD Skaga-
menn sækja Eyjamenn heim og hefst sá
leikur kl. 14 en stórleikur umferðarinnar
hefst klukkan 17 á KR-velli þar sem
heimamenn taka á móti Fylkismönnum.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
STUTTBUXUR OG BOMSUR MEÐ Í
FRÍIÐ Hægur vindur áfram og hlýtt á
Norður- og Austurlandi. Lítilsháttar væta
vestan til á landinu í dag en annars yfirleitt
þurrt. Sjá síðu 6.
10. júlí 2004 – 186. tölublað – 4. árgangur
● 46 ára í dag
Helgi Björnsson:
▲
SÍÐA 16
Í góðum gír
með Grafík
VISA-bikar kvenna:
Valur, ÍBV og
KR í undanúrslit
● þeyta stones-skífum á ellefunni
Plötusnúðar:
▲
SÍÐA 30
Margrét og
Heiða
ÁGREININGUR
UM STJÓRNAR-
SKRÁ Tveir lögfræð-
ingar sem komu fyrir
allsherjarnefnd í dag eru
á öndverðum meiði um
hvor það væri brot á
stjórnarskrá að fella lög úr gildi og breyta
þeim samtímis. Með því sé verið að gera
annan handhafa löggjafarvaldsins, for-
setann, ómerkan. Sjá síðu 2
DNA-NIÐURSTAÐNA BEÐIÐ Maður-
inn sem nú situr í gæsluvarðhaldi grunaður
um að eiga þátt í hvarfi fyrrum sambýlis-
konu sinnar og barnsmóður kærði ekki
gæsluvarðhaldsúrskurðinn til Hæstaréttar.
Niðurstöður úr DNA-rannsóknum eru
væntanlegar eftir helgi. Sjá síðu 6
ÓTTAST SYNJUN Sjálfstæðismenn ótt-
ast að forseti synji nýjum fjölmiðlalögum
staðfestingar verði þau samþykkt á
Alþingi. Óróleiki er innan flokksins um
framgöngu formanns og varaformanns að
undanförnu. Sjá síðu 8
VEGGURINN BRÝTUR GEGN AL-
ÞJÓÐALÖGUM Alþjóðadómstóllinn í
Haag segir Ísraela hafa brotið gegn al-
þjóðalögum með byggingu veggsins sem
aðskilur þá og Palestínumenn. Þess er kraf-
ist að veggurinn verði rifinn og skaðabætur
greiddar. Sjá síðu 10
● bílar
Feðgar með bíladellu:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Vilja alltaf það
flottasta
Kvikmyndir 30
Tónlist 33
Leikhús 33
Myndlist 33
Íþróttir 26
Sjónvarp 32
Fljúgandi
diskar í
íslenskri
lofthelgi
Jimmy Jump:
SÍÐA 18
▲
ÚFÓ:
SÍÐUR 20 & 21
▲
Gerir
allt fyrir
frægðina
M
YN
D
/G
U
Ð
N
I H
AN
N
ES
SO
N
● valsstúlkur mörðu sigur eftir framlengingu
FJÖLMIÐLAFRUMVARP Tæplega þrír
af hverjum fjórum kjósendum
eru andvígir nýju fjölmiðlafrum-
varpi ríkisstjórnarinnar og
tæplega 66 prósent telja að for-
seti Íslands eigi að synja nýjum
fjölmiðlalögum staðfestingar,
samkvæmt skoðanakönnun sem
Fréttablaðið framkvæmdi í gær.
Tæplega 73 prósent aðspurðra
voru andvíg nýja frumvarpinu en
það er svipuð andstaða og
skoðanakannanir blaðsins bentu
til að væri gegn fyrra fjölmiðla-
frumvarpinu sem Alþingi sam-
þykkti sem lög 24. maí.
Samkvæmt könnuninni í gær
töldu tæplega 66 prósent að for-
setinn ætti að synja nýju fjöl-
miðlalögunum staðfestingar en
það eru aðeins færri en töldu að
hann ætti að synja gömlu lögun-
um staðfestingar samkvæmt
könnun blaðsins frá því í lok maí.
Þá taldi 71 prósent að forsetinn
ætti að vísa málinu í þjóðar-
atkvæði. Samkvæmt könnun
blaðsins sem framkvæmd var
eftir að forsetinn hafði synjað
fjölmiðlalögunum staðfestingar,
2. júní, voru rúm 67 prósent sam-
mála ákvörðun hans.
Samkvæmt könnuninni sem
var framkvæmd í gærkvöldi var
ekki marktækur munur á afstöðu
fólks eftir kyni en andstaðan við
nýja frumvarpið er heldur meiri
á landsbyggðinni en á höfuðborg-
arsvæðinu.
Ólafur Þ. Harðarson, prófess-
or í stjórnmálafræði, segir að
niðurstöðurnar hljóti að vera
mikið umhugsunarefni fyrir
ríkisstjórnina. „Þessar niður-
stöður ættu að auka enn líkurnar
á því að forsetinn neiti aftur að
skrifa undir,“ segir Ólafur.
Sjá nánar á síðu 4.
FJÖR Á ÍRSKUM DÖGUM Á AKRANESI
Milli fjögur og fimm þúsund gestir eru á Akranesi um helgina vegna írskra daga sem þar eru haldnir. Þessi litríki trúður lét sig ekki vanta
á setningarhátíð írskra daga á Akratorgi. Í gær var heitasti dagur sumarsins og nutu landsmenn veðurblíðunnar um allt land.
Bandaríska leyniþjónustan gaf sér að Írakar ættu gjöreyðingarvopn:
Þingið gagnrýnir CIA harkalega
BANDARÍKIN Bandaríska leyniþjón-
ustan, CIA, fær rækilega á bauk-
inn í nýrri skýrslu þingnefndar
öldungadeildar Bandaríkjaþings.
Þar segir að leyniþjónustan hafi
brugðist í því að safna saman og
setja fram áreiðanlegar upplýs-
ingar um gereyðingarvopn Íraka í
aðdraganda innrásarinnar í Írak.
„Við í öldungadeildinni hefðum
ekki samþykkt þetta stríð með 75
atkvæðum ef við hefðum vitað þá
það sem við vitum nú,“ sagði
demókratinn John D. Rockefeller
IV sem var varaformaður nefnd-
arinnar. Repúblikaninn Pat
Roberts, formaður nefndarinnar,
sagði að leyniþjónustan hefði
brugðist.
Í skýrslunni segir að leyniþjón-
ustumenn hafi gefið sér að Írakar
byggju yfir sýkla- og efnavopnum
og að þeir væru að koma sér upp
kjarnorkuvopnum. Út frá þessu
hefðu þeir metið allar vísbending-
ar. Það hefði orðið til þess að jafn-
vel vafasamar vísbendingar voru
túlkaðar sem sannanir fyrir því að
Írakar byggju yfir gereyðingar-
vopnum. Sú niðurstaða hefði ekki
aðeins sýnt sig síðar að væri röng
heldur hefði leyniþjónustan ekki
búið yfir þeim gögnum á sínum
tíma sem réttlættu þá niðurstöðu.
Í næstu viku er að vænta
skýrslu um frammistöðu bresku
leyniþjónustunnar MI6 í aðdrag-
anda innrásar. Samkvæmt frétt
The Independent í gær verða þrír
háttsettir njósnaforingjar gagn-
rýndir fyrir störf sín og fundið að
störfum leyniþjónustunnar. ■
Þrír af hverjum fjórum
andvígir nýju frumvarpi
Andstaða við nýtt fjölmiðlafrumvarp er álíka mikil og hún var við hið fyrra samkvæmt skoðana-
könnun Fréttablaðsins. Um 66 prósent telja að forsetinn eigi að synja nýjum lögum staðfestingar.
Gæludýrin vernduð:
Má ekki
henda
RÓM Gæludýraeigendur á Ítalíu
sem losa sig við dýrin á vegkantin-
um geta átt von á allt að árs fang-
elsidómi eða sektargreiðslu sem
nemur um 880 þúsund krónum.
Ítölsk stjórnvöld settu reglu-
gerðina á í gær rétt, fyrir eitt
helsta ferðamannatímabil lands-
manna.
Þingmaður vinstri demókrata
ítalska þingsins, Guido Calvi,
sagði við setningu lagagerðina að
þeir Ítalir sem stunduðu þessa
iðju gætu nú allt eins lent í
fangelsi eins og á þeirri strönd
sem ferðinni væri heitið á.
Lögin ná einnig til þeirra sem
drepa eða pynta gæludýrin sín,
sem og þeirra sem skipuleggja
hundaat eða stofna til ólöglegs
feldsiðnaðar.
Margir telja að ekki verði auð-
velt að ná til eigenda yfirgefinna
dýra. Það vandamál hefur verið
leyst í norður Piedmont þar sem
hundaeigendum er gert að merkja
dýrin með tölvukubbi. ■