Fréttablaðið - 14.07.2004, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 14. júlí 2004
T í m a r i t u m ú t i v i s t o g f e r ð a l ö g
Vertu áskrifandi fyrir
aðeins 2.495 kr. á ári
Gönguferðir
Skíðaferðir
Fjallaferðir
Jeppaferðir
Vélsleðaferðir
Vélhjólaferðir
Fjallahjólaferðir
Kajakferðir
Fréttir og fróðleikur
Feröasögur
Búnaðarprófun
Nýr búnaður
Sérfræðingar svara
Ljósmyndir
Getraunir
w w w. u t i v e r a . i s
u t i v e r a @ u t i v e r a . i s
S í m i : 8 9 7 - 1 7 5 7
Eina sinnar tegundar á Íslandi
Í s l e n s k t t í m a r i t u m ú t i v i s t o g f e r ð a l ö g
Jour de fête!
Frönsk vínstemmning dagana 14. júlí til 7. ágúst
ÍSLEN
SK
A
A
U
G
LÝ
SIN
G
A
STO
FA
N
EH
F./SIA
.IS A
TR
25316 07/2004
Hvergi í heiminum
Í fyrstu ræðu sinni á þingfundi
sumarþings Alþingis sagði for-
sætisráðherra, „hvergi í verald-
arsögunni í þingstarfsemi, hvergi
til að þjóðaratkvæði sé boðað með
með þeim hætti eins og hér miðað
við 26.gr. stjórnarskrárinnar. Það
þekkist hvergi í heiminum“.
Skyldi þessi fullyrðing forsætis-
ráðherra vera rétt að ákvæði 26.
gr. stjórnarskrár Íslands sé svo
sérstakt að ekkert því líkt sé að
finna í veröldinni? Nei, hún er
röng. Víða þekkist málskotsréttur
til þjóðarinnar. Annað hvort er
því um minnisleysi að ræða hjá
forsætisráðherra eða hann fer
vísvitandi með rangt mál þegar
hann heldur því fram að mál-
skotsréttur forseta Íslands sé al-
gjörlega sérstakur og sambæri-
leg ákvæði þekkist ekki í víðri
veröld.
Málskotsréttur er víða til og
svo hefur verið lengi. Ákvæði 26.
gr. stjórnarskrárinnar eru því
ekki sérstök eða merkileg fyrir
neitt annað en að málskotsréttur-
inn skuli vera á valdi þjóðhöfð-
ingjans. Eðlilegra hefði verið að
málskotsrétturinn væri hjá þjóð-
inni og þannig þarf að breyta
stjórnarskránni. Málskotsréttur-
inn á að vera hjá þjóðinni.
Öll rök sem færð eru fram af
hálfu stjórnarflokkanna gegn
þjóðaratkvæðagreiðslunni eru
fyrst og fremst rök gegn lýðræði
almennt. Varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins hagar máli sínu
þannig að hann virðist telja
ákveðnar stofnanir hafa rétt um-
fram þjóðina. Varaformaðurinn
segir að þar sem Alþingi sé kosið
af 84% þjóðarinnar eigi það rétt
umfram einhvern óvissan fjölda
sem taki þátt í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Ekki er hægt að skilja
orð varaformannsins með öðrum
hætti en hann telji Alþingi og
meirihluta Alþingis merkilegri en
þjóðarviljann. Þeir sem þannig
tala setja stofnanir í öndvegi and-
stætt hugsjón lýðræðisins um að
meirihluti kjósenda, fólkið eigi að
ráða.
Forusta Sjálfstæðisflokksins
og Framsóknarflokksins hafa lýst
yfir með afstöðu sinni síðustu vik-
ur að þeir séu á móti þjóðarat-
kvæðagreiðslum og þegar Davíð,
Geir og Halldór hafa talað þá eru
þeir að bera fram sömu rök gegn
lýðræðinu og Loðvík 14. arfakóng-
ur af Frankaríki bar fram þegar
hann sagði „ríkið, það er ég“. Eða
eins og Friðrik mikli arfakonung-
ur af Prússalandi sagði „þegnarnir
mega segja það sem þeir vilja en
það er ég sem ræð“.
Aþena í Grikklandi var vagga
evrópskar menningar og lýðrétt-
inda. Í Aþenu var kosninga-
skylda. Sérhverjum frjálsbornum
manni sem hafði kosningarétt bar
að nýta hann hvort sem honum
líkaði betur eða verr og þar var
beint milliliðalaust lýðræði.
Meirihluti kjósenda réði. Margir
lýðræðissinnar telja unnt á upp-
lýsingaöld að taka upp beint lýð-
ræði í auknum mæli og takmarka
fulltrúalýðræðið. Víðtæk spilling
í stjórnmálastarfseminni og hve
stór hluti stjórnmálamanna er
auðkeyptur gerir það nauðsyn-
legra en áður að heimila þjóðinni
víðtækt málskot um allt sem
þingið gerir.
Ítrekað hafa stjórnmálamenn
gengið erinda hinna fáu sterku á
kosntað fjöldans. Beint milliliðal-
aust lýðræði eykur vald fólksins
og takmarkar völd stjórnmála-
manna og veita þeim aðhald. Það
er nauðsynlegt í nútímaþjóðfé-
lagi.
Í Sviss er málskotsrétturinn
hjá hinum almenna kjósanda.
Samþykki þingið í Sviss lög þá
þarf rúmlega 1% kjósenda að
óska eftir þjóðaratkvæðagreiðslu
um löggjöfina og einfaldur meiri-
hluti þeirra sem mæta á kjörstað
ræður niðurstöðunni. Ekki skipt-
ir máli hvað margir kjósa. Kjós-
endur í Sviss geta líka lagt til að
ákveðin ný löggjöf verði sam-
þykkt en þá þurfa rúmlega 2%
kjósenda að óska eftir því. Í Sviss
hefur þjóðin kosið í rúmlega 450
málum frá því að þetta byrjaði.
Allgóð reynsla hefur því fengist
af beinu lýðræði í Sviss. Ekki er
hægt að halda því fram að það
hafi gengið illa eða ógnað stjórn-
skipun landsins, öryggi eða efna-
hagslegri hagsæld. Sviss er það
land í veröldinni sem býr við
hvað mesta hagsæld, mest öryggi
og stjórnskipun landsins er með
því besta sem þekkist. Þetta ger-
ist þrátt fyrir ríkan málskotsrétt
þjóðarinnar og einfaldra ákvæða
um þjóðaratkvæðagreiðslu. Þeir
Davíð, Geir og Halldór ættu að
íhuga það hvort það væri ekki
framþróun lýðræðis á Íslandi að
taka upp svipaðar reglur og
Sviss. ■
Forusta Sjálfstæðis-
flokksins og Fram-
sóknarflokksins hafa lýst
yfir með afstöðu sinni síð-
ustu vikur að þeir séu á
móti þjóðaratkvæðagreiðsl-
um og þegar Davíð, Geir og
Halldór hafa talað þá eru
þeir að bera fram sömu rök
gegn lýðræðinu og Loðvík
14. arfakóngur af Frankaríki
bar fram þegar hann sagði
„ríkið, það er ég“.
JÓN MAGNÚSSON HRL.
UMRÆÐAN
ÞJÓÐARATKVÆÐA-
GREIÐSLAN
,,