Fréttablaðið - 14.07.2004, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 14.07.2004, Blaðsíða 30
■ VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á bls. 6 1 3 2 9,1 milljarðar króna. Austurríki. Raymond Domenech Árekstur á tónleika- sumrinu mikla Reykjavíkurnætur er heitið á nýrri sjónvarpsþáttaseríu sem verður tekin til sýningar á Stöð 2 í vetur. Systkinin Ari og Systa og vinir þeirra Halli og Dóra eru aðal- persónurnar í þáttunum en serían fjallar í stuttu máli um samrýndan vinahóp og leit þeirra að ástinni í næturlífi Reykjavíkurborgar. Þegar ljósmyndara Fréttablaðs- ins bar að garði voru leikarar og aðstandendur Reykjavíkurnótta stödd í Naustkjallaranum við sjón- varpsupptökur en aðalhlutverkin í Reykjavíkurnóttum eru í höndum leikaranna Víkings Kristjánssonar (Halli), Þórunnar Ernu Clausen (Dóra), Björn Hlyns Haraldssonar (Ari) og Ingu Maríu Valdimars- dóttur (Systa). Rabbabarinn er heitið á aðal- skemmtistað vinahópsins í Reykja- víkurnóttum. Rabbabarinn er stað- settur í hjarta borgarinnar og þar eyða þau Ari, Systa, Halli og Dóra löngum stundum við að skemmta sér. Það er leikarinn og höfundurinn Agnar Jón Egilsson sem býr til handritið og leikstýrir þáttunum. Jón Karl Helgason hefur yfirum- sjón með kvikmyndatöku og Viðar Víkingsson hefur hafist handa við að klippa þættina. Reykjavíkur- nætur eru framleiddar af Sögn kvikmyndagerð og sjónvarpsupp- tökum lýkur í þessari viku. ■ Tökum að ljúka á Reykjavíkurnóttum 14. júlí 2004 MIÐVIKUDAGUR Miðað við stöðugt streymi er- lendra listamanna hingað til lands, hlaut það að gerast að tveir stórir tónleikar myndu lenda á sama degi. Nú, þegar Pink hefur tilkynnt um aukatónleika í Laug- ardalshöll, er ljóst að hún og 50 Cent verða með tónleika á sama degi, 11. ágúst, í Egilshöll. „Þeir vissu vel af þessum sein- ni Pink-tónleikum þegar þeir ákváðu að vera með 50 Cent,“ seg- ir Gústaf PS hjá L Promotions sem flytur inn Pink. Þetta fullyrð- ir hann þrátt fyrir að það hafi ekki verið opinberlega tilkynnt um seinni tónleikana fyrr en fyrir rúmri viku síðan. Uppselt er á fyrri tónleika Pink og Gústaf segist ekki finna fyrir því að tónleikar rappstjörnunnar trufli sölu á seinni tónleikana. Nú þegar er búið að selja um 2.000 miða á þá. „Þetta hefur ekki hrjáð okkur ennþá. Salan gengur mjög vel og við höfum engar áhyggjur af því að það verði ekki uppselt á seinni tónleikana líka.“ Umsjónarmenn tónleika 50 Cent og G-Unit segjast hreinlega ekki hafa reiknað með því að það kæmi til aukatónleika á Pink. Búið er að selja 4.000 miða í Egilshöll og því augljóslega nóg eftir af miðum. Valdi Hansen, annar tón- leikahaldaranna, virtist þó ekkert sérlega áhyggjufullur. „Þetta er ekki mikið áhyggjuefni, en það hefði verið fínt að komast hjá þessu,“ viðurkennir hann. Breytingar hafa verið gerðar á skipulagi 50 Cent tónleikana þannig að nú er aðeins selt inn á eitt svæði. Sviðið verður fært framar í Höllinni og því verður aðeins pláss fyrir 9.000 gesti. Það er því augljóst að barist verður um athygli unglinganna þennan dag enda hefur það aldrei komið fyrir áður í Íslandssögunni að jafn stórar stjörnur keppi sín á milli á íslenskri grundu. Starfsmaður Skífunnar, sem selur miða á báða tónleika, spáir því að það verði hálftómt á báðum stöðum miðað við þann áhuga sem starfsfólk hefur fundið fyrir. Miðaverð á tónleika 50 Cent og G-Unit er 6.500 kr. Miðaverð á Pink er 5.000 kr. í stæði en 5.900 kr. í stúku. ■ 50 CENT Einn stærsti rappari heims í dag heldur tónleika hér á landi 11. ágúst... PINK ...það gerir Pink líka! NÝTT frá Jóa Fel basil & hvitlauks sósa rósapipar sósa dijon hunangs sósa Fim. 15. júlí kl. 19.30 UPPS Fös. 16. júlí kl. 19.30 fá sæti Fim. 22. júlí kl. 19.30 laus sæti Fös. 23. júlí kl. 19.30 laus sæti ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA Þúsundir áhorfenda um allt land eru á sama máli: „FAME er frábær skemmtun.“ Yfir 10.000 miðar seldir 1 5 6 8 8 13 14 16 17 15 18 2 3 11 9 1210 4 Lárétt: 1 tarfur, 5 trjátegund, 6 stór, 7 íþróttafélag, 8 poka, 9 sjávargróður, 10 skóli, 12 gerast, 13 heiti á fljóti, 15 frá, 16 nagg, 18 sjúkdómur. Lóðrétt: 1 skyldmenni, 2 fæða, 3 varðandi, 4 ræðin, 6 ná tökum á, 8 tal, 11 skel, 14 útlim, 17 drykkur. Lausn. Lárétt: Lárétt: 1naut,5álm,6há,7ka,8mal,9 þang,10ma,12ske, 13 iða, 15 af, 16 nart, 18 mein. Lóðrétt: 1nákominn,2ala,3um,4málgef- in,6hanka,8mas,11aða,14arm,17te. REYKJAVÍKURBÖRN Halli, Dóra og systkinin Ari og Systa slappa af í sófanum á Rabbabarnum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T R EY N IS SO N SJÓNVARP REYKJAVÍKURNÆTUR ■ er heitið á nýrri leikinni sjónvarpsser- íu sem Stöð 2 tekur til sýningar í vetur. TÓNLIST 50 CENT OG PINK ■ Tónleikar 50 Cent í Egilshöll eru á sama degi og aukatónleikar Pink í Laugardalshöll. Hópur fólks sem stundar það aðsleikja sólina á Kanaríeyjum og kall- ar sig einfaldlega Kanaríeyjaflakkara ætlar að halda árlega samkomu sína í Árnesi um helgina. Fjörið byrjar klukkan 16 á föstudaginn þegar svæðið opnar og síðan tekur við þéttskipuð dagskrá þar sem meðal ann- ars er fyrirhuguð hópferð á Drauga- safnið og síðan verð- ur dregið í veglegu happadrætti. Kanarí- eyjaflakkararnir sjá sjálfir um öll skemmtiatriði og er ekkert að vanbún- aði í þeim efnum þar sem fjöldi stuðk- arla- og kerlinga er meðlimur í félagss- kapnum og þannig mun sjálfur Árni Johnsen hefja kvöldskemmtun laugar- dagsins klukkan 20 þegar hann mætir, vopnaður kassagítarnum, og stýrir fjöldasöng af sinni alkunnu snilld. Það þarf svo enginn að óttast að botninn detti úr stuðinu þegar þingmaðurinn fyrrverandi leggur frá sér gítarinn þar sem þá tekur Geirmundur Valtýsson, sólbrúnn og sællegur, við keflinu og ætlar að trylla lýðinn með hljómsveit sinni. Þeir sem þekkja stuðið á Kanarí og afrekaskrá Geir- mundar efast ekki um það eitt augnablik að dansinn muni duna langt fram eftir nóttu. FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.