Fréttablaðið - 15.07.2004, Side 49
FIMMTUDAGUR 15. júlí 2004
Hljómsveitin Tenderfoot ætlar að
halda fyrstu tónleika sína í mánuð
á Kaffi List í kvöld. Undanfarin
mánuð hafa þeir verið í stúdíói
við að taka upp sína fyrstu plötu í
stúdíói hljómsveitarinnar Leaves
frá því í byrjun mars.
„Við erum búnir að vera ansi
lengi í þessum upptökum, þar
sem við byrjuðum fyrir ári síð-
an,“ segir Helgi Georgsson, einn
hljómsveitarmeðlimanna. „Við
erum bara rosalega ánægðir yfir
því að vera loksins farnir að taka
upp. Þetta er búið að vera sorgar-
saga því við vorum eiginlega bún-
ir að taka hana upp í október í
fyrra. Þær upptökur eru bara í
gíslingu. Við vorum búnir að gera
samning sem við riftum og hugsa
að við viljum gefa þessa plötu út
bara sjálfir.“ Stefnt er á að gefa
út plötuna sem enn er ekki komin
með heiti í byrjun september.
„Við erum um það bil hálfnaðir
með upptökur. Það er allt tekið
upp live og allt lagið í einu. Svo er
misjafnt eftir lögum hversu oft
þarf að taka þau upp. Sum detta
hratt inn á meðan önnur eru
erfiðari. Þetta myndi kannski
ganga betur ef við værum betri
spilarar,“ bætir hann glettinn við.
Efni plötunnar er allt frum-
samið, bæði frá því að hljóm-
sveitin var að byrja og jafnvel
verði þar lög sem ekki er búið að
semja. „Við erum að gera þetta
þannig að við semjum svolítið í
stúdíóinu en það verður líka mik-
ið af lögum sem fólk er búið að
heyra. Þetta spannar svolítið
langt tímabil, allt frá því Konni
og Kalli byrjuðu að spila og sem-
ja í stofunni hjá Konna. Textarnir
fjalla svo bara um allt mögulegt,
lífið og tilveruna, ástina, sorg og
gleði. Það er engin ákveðin stef-
na í því.“
Á tónleikunum á Kaffi List í
kvöld verður hægt að heyra eitth-
vað af þeirra nýja efni auk þess
sem nýr hljómur mun heyrast því
þegar drengirnir voru í New York
í mars fjárfesti Konni í pedal
steelgítar. „Þetta er hljóðfæri
sem er liggjandi með strengjum
og spilað á það með hólk, þetta er
mikið notað í kántrí tónlist. Við
erum svolítið búnir að vera að
taka hann inn í þetta, án þess að
vera mikið inn á kántrí. Þar sem
þetta er alveg unplugged er auð-
velt að skilgreina þetta sem
alternativ kántrí. Þar sem hefur
verið fjallað um okkur í Ameríku
er tónlistin okkar skilgreind sem
kántrí eða bluegrass. Ég veit ekki
hvernig á að skilgreina þetta ná-
kvæmlega.“ ■
Liprir á tá og fingri
■ TÓNLIST
HLJÓMSVEITIN TENDERFOOT
Ætla að spila gamalt efni og nýtt á Kaffi List í kvöld.