Fréttablaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000 LAUGARDAGUR STUÐ Í LAUGARDALNUM Stuð- menn og blúsrokkarinn Long John Baldry verða með tónleika í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum í Laugardal í kvöld. Af því tilefni verður frítt í öll tæki garðsins. DAGURINN Í DAG           VEÐRIÐ Í DAG AÐGERÐALÍTIÐ VEÐUR Skúrir sunnan til. Bjart með köflum fyrir norðan. Hiti 10-18 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Sjá síðu 6 31. júlí 2004 – 207. tölublað – 4. árgangur MESTI HAGN- AÐUR ÁRS- INS Fjárfesting- arfélagið Burðar- ás, móðurfélag Eimskipafélags- ins, hagnaðist um tæpa sjö millj- arða á fyrri helm- ingi ársins sem er meiri hagnaður en nokkurt fyrirtæki hefur skilað á fyrri helmingi þessa árs. Sjá síðu 4 FLJÚGA Í LÍBÍU Flugfélag Íslands hefur tekið að sér leiguflug í Líbíu. Fokker 50 vél félagsins heldur þangað í mánuðinum ásamt átján manns til að sinna nýja verk- efninu. Sjá síðu 2 STRANDSIGLINGUM LÝKUR Eim- skip hefur ákveðið að hætta strandsigling- um fyrir árslok. Varningurinn verður fluttur með landflutningum í staðinn. Stór vöru- flutningabíll slítur vegunum jafn mikið og 40.000 fólksbílar, segir ritstjóri blaðs Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Sjá síðu 4 LEIT HÆTT Leit að tuttugu ferðamönn- um, sem hófst upp úr hádegi á fimmtudag eftir að neyðarkall kom í gegnum samtal á rás Ferðafélags Íslands, var hætt í gær- kvöld. Ekkert hafði komið fram sem skýrði neyðarkallið. Sjá síðu 2 Kvikmyndir 34 Tónlist 33 Leikhús 33 Myndlist 33 Íþróttir 30 Sjónvarp 36 Langflestir þeirra sem leggja land undir fót um helgina fara á skipulagðar útihátíðir. Þannig hefur það lengi verið. Sumar hátíðir lifa góðu lífi í minningunni en aðrar eru gleymdar. Ferðin hans Maríusar: SÍÐA 20 & 21 ▲ Verslunarmannahelgar fyrri ára: SÍÐUR 24 & 25 ▲ Maríus Sverrisson varð stjarna í Þýskalandi eftir leik sinn í söngleiknum Titanic. Nú er hann snú- inn aftur eftir tíu ára útiveru og vinnur að ýmsum verkefnum. SKATTKÓNGUR „Þetta var ansi bólg- inn dagur,“ sagði Björgólfur Guð- mundsson, stjórnarformaður Landsbankans og skatthæsti ein- staklingur Íslandssögunnar, sam- kvæmt álagningarseðlum skatt- stjóraembættanna sem birtir voru í gær. Björgólfur greiðir 295 millj- ónir í opinber gjöld, sem að mestu er fjármagnstekjuskattur vegna sölu og kaupa á eignarhlutum í fyr- irtækjum sem eru skráð erlendis. Það samsvarar 800 þúsund krónum á dag að meðaltali hvern dag ársins. „Ég er sáttur við þetta. Það er ekkert verið að taka meira af mér en öðrum. Þetta er auðvitað bara ákveðin prósenta af tekjum og gilda sömu lög um mig og aðra, ég er búinn að hafa miklar tekjur,“ sagði Björgólfur. „Hið gleðilega við þetta er þó það að peningarnir koma erlendis frá. Ég hef starfað erlendis í við- skiptum og hef tekið þaðan hagnað. Ég valdi að greiða fjármagnstekju- skattinn hingað heim. Það fer von- andi að verða meira um það að Ís- lendingar með erlendar tekjur greiði skatta sína hingað til samfé- lagsins,“ segir hann. Björgólfur segir að það sé hlut- verk sitt að styrkja það ágæta samfélag sem við búum í og stuðla að uppbyggingu. Áhugi hans bein- ist að því að koma að rekstri fyrir- tækja hér á landi og skapa eftir- sóknarverð störf fyrir ungt fólk. Spurður hvernig það væri að horfa nokkur ár til baka til þess tíma sem gæfan var honum ekki jafn hliðholl segir Björgólfur að það sýni einfaldlega hve möguleikarnir séu miklir í lífinu ef menn gefast ekki upp og sjá alltaf nýjan dag. „Ef einar dyr lokast, opnast nýjar. Ég er þakklátur fyrir að það skuli ganga vel hjá mér. Mér finnst ég heppinn að hafa fengið að vinna með því góða fólki sem ég hef unnið með síðustu tíu árin.“ sda@frettabladid.is Sjá nánar á síðu 6. VERSLUNARMANNAHELGIN Leið margra hefur legið norður á land þar sem fjölmargar hátíðir eru haldnar nú um Verslunarmanna- helgina. Um átta þúsund manns eru saman komir á Unglinga- landsmóti UMFÍ á Sauðárkróki að sögn lögreglu sem segir að vel hafi gengið og að mótsgestir séu til fyrirmyndar. Hátt á fjórða þúsund gesta var saman kominn til Siglufjarðar á sjöunda tímanum í gær. Lögregl- an segir að fram að þessu hafi allt farið vel fram og hegðun gesta til fyrirmyndar, enda mun þorri þeirra vera fjölskyldufólk. Á hátíðinni Einni með öllu á Akureyri hafa gestir verið prúðir og spakir. Lögreglan hafði þó afskipti af einstaka mönnum, Umferð helgarinnar hófst á fimmtudag segir lögreglan í Borgarnesi. Hún segir hana hafa verið litlu minni þá en í gær. Um- ferðin hafi verið það mikil að menn hafi ekki náð að spretta úr spori og hraði innan hámarka. Þó nokkrar bílveltur urðu á þjóð- vegum landsins í gær en engin alvarleg slys urðu á fólki. Í Vestmannaeyjum fengust engar tölur um mannfjölda nefndar en flug hófst eftir sólar- hrings stopp um þrjúleytið í gær. Á Austurlandi kvartaði lögreglan undan miklum hraðakstri í umdæminu. Margir væru saman komnir á Neista- flugi í Neskaupstað og Vopna- skaki á Vopnafirði. Sjá síðu 8 Þúsundir manna á faraldsfæti um Verslunarmannahelgina: Fjölmenni á leið norður Sameinuðu þjóðirnar: Aðgerðum hótað SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Öryggis- ráð Sameinuðu þjóðanna sam- þykkti í gær ályktun þar sem hót- að er að grípa til aðgerða gagn- vart súdönskum stjórnvöldum ef sveitir arabískra vígamanna verði ekki afvopnaðar. Vígamennirnir eru sakaðir um dráp þúsunda blökkumanna í Darfur-héraði í vesturhluta landsins. Ekki er kveðið á um refsiað- gerðir í ályktun Sameinuðu þjóð- anna, það fékkst ekki samþykkt. Ályktunin felur þó í sér hótun um afleiðingar, bæði á efnahag og samskipti Súdans við önnur ríki, ef ekki verður orðið við kröfum Sameinuðu þjóðanna. ■ ● ferðir ● tilboð Breytir jeppum fyrir Norðmenn Reynir Jónsson: ● fh mætir skoska liðinu dunfermline ÍA mætir Hammarby Dregið í UEFA-bikarnum: ▲ SÍÐA 31 ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS MIÐI Á 99KR?VINNINGAR ERU: MIÐAR Á MYNDINA · BOLIR VHS OG DVD MYNDIR FULLT AF GRETTIR VARNINGI · HÚFUR MARGT FLEIRA Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið SMS-LEIKUR! MJÁUMST Í BÍÓ! SENDU SMS SKEYTIÐ BT FBG Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ. 11. HVER VINNUR FLÓTTAMENN Um milljón blökkumanna hefur þurft að yfirgefa heimili sín vegna átaka við arab- íska vígamenn í Darfur-héraði í Súdan. Ég er sáttur Björgólfur Guðmundsson er skatthæsti maður Íslandssögunnar. Hann er sáttur við skattinn og segir það hlutverk sitt að styrkja íslenskt samfélag og stuðla að uppbyggingu. BJÖRGÓLFUR GUÐMUNDSSON: „Hið gleðilega við þetta er þó það að peningarnir koma erlendis frá. Ég hef starfað erlendis í viðskiptum og hef tekið þaðan hagnað. Ég valdi að greiða fjármagnstekjuskattinn hingað heim.“

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.