Fréttablaðið - 31.07.2004, Síða 6
6 31. júlí 2004 LAUGARDAGUR
Pétur H. Blöndal um vörugjöld:
Lítur á þau sem þjónustugjöld
STJÓRNMÁL Pétur H. Blöndal, alþingis-
maður Sjálfstæðisflokks og formað-
ur efnahags- og viðskiptanefndar
Alþingis, segir að gera verði greinar-
mun á þjónustugjöldum og sköttum
þegar lagt er mat á réttmæti hækk-
unar gjaldskrár Reykjavíkurhafnar.
Gjöld á innflutta vöru í Reykjavíkur-
höfn hafa hækkað mjög eftir að
hafnir fengu sjálfstæðan rétt til þess
að ákvarða þau.
Meðal annars hefur vörugjald á
bensín hækkað um 23 prósent og
segja forsvarsmenn olíufélaganna
að sú hækkun fari beint út í verðlag.
Að sögn Péturs liggur munurinn
á skattheimtu og þjónustugjöldum í
því að þegar um þjónustugjöld sé
að ræða sé verið að standa straum
af tilteknum kostnaði og að þjón-
ustugjöld megi ekki skila stofnun-
um afgangi. Skatta megi hins vegar
ekki leggja á nema með lögum.
Hann bendir á að hafnir hafi
þurft að taka á sig töluverðan
kostnaðarauka vegna öryggis-
krafna í kjölfar hryðjuverka-
árásanna á turnana tvo í New York
í september árið 2001. Pétur segist
hafa litið svo á að gjöld hafnanna
séu þjónustugjöld. ■
SKATTUR Björgólfur Guðmundsson,
formaður bankaráðs Landsbank-
ans, er skatthæsti einstaklingur
sögunnar. Samkvæmt upplýsing-
um frá Skattstjóranum í Reykja-
vík greiðir Björgólfur 295 millj-
ónir króna í opinber gjöld. Hann
greiðir því um 800 þúsund krónur
í skatt á degi hverjum.
Í umdæmi Skattstjórans í
Reykjavík koma næstir á eftir
Björgólfi, Bogi Óskar Pálsson,
fyrrum forstjóri Toyota-umboðs-
ins, með rúma 81 milljón og Jón
Ásgeir Jóhannesson með tæpar 79
milljónir í gjöld.
Skatthæsti einstaklingurinn á
Reykjanesi er Árný Enoksdóttir,
ekkja Guðmundar Þorsteinssonar,
útgerðarmanns í Hópi í Grinda-
vík, með rúmar 102 milljónir og
greiðir hún því næsthæstu opin-
beru gjöldin á landinu.
Fast á hæla hennar eru bræð-
urnir Einar Sveinsson með um 100
milljónir og Benedikt Sveinsson
með tæpar 98 milljónir, báðir í
Garðabæ.
Skattahæstur Vestmannaey-
inga er Gunnar Jónsson með um
42 milljónir.
Hæstu gjöld á Austurlandi
greiða bræðurnir Örn Þór og
Ágúst Hilmar Þorbjörnssynir í
Höfn í Hornafirði en greiða þeir
um og yfir 30 milljónir hvor.
Guðmundur A. Birgisson er
skattkóngur Suðurlands með
rúmar 16 milljónir en Gunnar A.
Jóhannsson í Árbæ og Guðmund-
ur Jónsson á Selfossi greiða báðir
rúmar 15 milljónir.
Skatthæstir á Norðurlandi
eystra eru bræðurninr Birgir og
Vilhelm Ágústssynir frá Akureyri
með tæpar 15 milljónir hvor.
Skattkóngur Vesturlands er
Páll Valdimar Stefánsson frá
Munaðarhóli í Snæfellsbæ. Hann
greiðir rúmar 33 milljónir.
Leifur Halldórsson frá
Patreksfirði greiðir hæstu gjöld á
Vestfjörðum, eða rúmar níu millj-
ónir en annar Patreksfirðingur,
Jón Björgvin G. Jónsson, fylgir
fast á eftir með níu milljónir.
Gísli Ólafsson, læknir á Blöndu-
ósi, er skatthæstur á Norðurlandi
vestra með sjö og hálfa milljón.
sda@frettabladid.is
Bobby Fischer:
Fær fram-
lengingu
TÓKÝÓ, AP Bandaríski skákmaður-
inn Bobby Fischer hefur fengið
framlengingu til þess að áfrýja
framsali til Bandaríkjanna.
Fischer hefur verið eftirlýstur af
bandarískum stjórnvöldum síðan
árið 1992 þegar hann rauf sam-
skiptabann við Júgóslavíu með því
að tefla skák við Boris Spassky.
Fischer hafði verið gefinn
tíminn til miðnættis í gærkvöldi
til þess að berjast gegn úrskurði
um framsal til Bandaríkjanna en
hann framvísaði ógildu vegabréfi
við brottför frá Japan fyrr í
þessum mánuði. ■
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 71,6 -0,33%
Sterlingspund 129,94 -0,38%
Dönsk króna 11,61 -0,16%
Evra 86,3 -0,20%
Gengisvísitala krónu 121,11 -0,11%
KAUPHÖLL ÍSLANDS - HLUTABRÉF
Fjöldi viðskipta 273
Velta 2.936 milljónir
ICEX-15 3.085 -0,39%
Mestu viðskiptin
Burðarás hf. 1.203.700
Landsbanki Íslands 808.760
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 494.050
Mesta hækkun
Fiskmarkaður Íslands 11,36%
Burðarás hf. 10,09%
Sæplast hf. 9,09%
Mesta lækkun
Hlutabréfasjóður Búnaðarbankans -4,72%
Íslandsbanki hf. -1,60%
Austurbakki hf. -1,08%
Erlendar vísitölur
DJ* 10.093,8 -0,3%
Nasdaq* 1.887,3 0,3%
FTSE 4.413,1 -0,1%
DAX 3.895,6 0,1%
NIKKEI 11.325,8 1.88%
S&P* 1.100,0 -0,0%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
VEISTU SVARIÐ?
1Hversu mikið högnuðust bankarnir áfyrri hluta ársins?
2Hversu mörg íslensk fótboltaliðkomust áfram í Evrópukeppni?
3Hvaða fyrrverandi stjórnandi Kast-ljóss Sjónvarpsins hefur störf á Stöð 2
í haust?
Svörin eru á bls. 22
!
"
# $
## $
## $
#% $
!
#& $
' $
# $
#% $
"
# ' $
# $
$ %&
#& $
' '# $
(
$
PÉTUR H. BLÖNDAL
Segir skýr skil á milli þjónustugjalda og
skattlagningar og bendir á að hafnir hafi
þurft að takast á við kostnaðarauka vegna
aukinna öryggiskrafna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
Skattkóngur
Íslandssögunnar
Björgólfur Guðmundsson er skatthæsti maður sögunnar og greiðir 295
milljónir í opinber gjöld, eða um 800 þúsund krónur á dag. Skattar hans
duga fyrir öllum útgjöldum ríkisstjórnarinnar og Hæstaréttar.
Til samanburðar má geta að í síðustu fjárlögum var gert ráð fyrir því að útgjöld ríkis-
stjórnarinnar og Hæstaréttar yrðu 295 milljónir.
Skattur Björgólfs gæti greitt árleg útgjöld einnar af eftirfarandi stofnunum: Ríkisendur-
skoðun, Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, Menntaskólans á Akureyri, Heilbrigðis-
stofnunarinnar á Siglufirði eða Orkustofnun. Skattpeningar Björgólfs nægðu jafnframt
fyrir rekstri sex íslenskra sendiráða í útlöndum, svo og gætu þeir greitt fyrir alla sjúkra-
flutninga á höfuðborgarsvæðinu.
Þá eru opinber gjöld Björgólfs mjög nálægt þeirri upphæð sem tíu skatthæstu einstak-
lingarnir á Suðurlandi, tíu á Austurlandi og tíu á Vesturlandi greiða samanlagt.
TÍU SKATTHÆSTU
EINSTAKLINGAR LANDSINS:
1. Björgólfur Guðmundsson, Reykjavík 295 millj.
2. Árný Enoksdóttir, Grindavík 102 millj.
3. Einar Sveinsson, Garðabæ 100 millj.
4. Benedikt Sveinsson, Garðabæ 98 millj.
5. Bogi Óskar Pálsson, Reykjavík 81 millj.
6. Jón Ásgeir Jóhannesson, Reykjavík 79 millj.
7. Þórarinn Kristinsson, Reykjavík 68 millj.
8. Kristinn G. Kristinsson, Garðabæ 67 millj.
9. Ingimundur Sveinsson, Reykjavík 65 millj.
10. Guðný O. Halldórsdóttir, Reykjavík 60 millj.
Flóttafólkið:
Lugu til um
þjóðerni
HÆLISBEIÐNI Búlgörskum hjónum
með tvær dætur var synjað um
hæli í fyrrakvöld. Fjölskyldan kom
hingað til lands á fimmtudag með
Norrænu frá Noregi og gáfu sig
fram við lögregluna á Egilsstöðum.
Fjölskyldan sagðist vera frá
Albaníu en þegar betur var að gáð
reyndust þau öll vera með fullgild
vegabréf frá Búlgaríu. Hælis-
beiðnin fékk flýtimeðferð hjá
Útlendingastofnun. Þótti ástand í
Búlgaríu ekki vera með þeim hætti
að fjölskyldunni yrði veitt hæli hér
á landi. Fjölskyldan verður send til
heimalands síns með fyrstu mögu-
legu ferð. ■
TUGIR LÉTUST Nær þrjátíu manns
létust í þriggja bíla árekstri í
austanverðu Tyrklandi. Ökumað-
ur rútunnar og 23 farþegar voru
meðal þeirra sem létust. Öku-
maður flutningabílsins og farþegi
hans létust einnig en ökumaður
og farþegar í smárútu sluppu
lifandi, sum þó alvarlega meidd.
LÉST Í DYRUM LESTAR Þýskur
karlmaður lést eftir að hann
festist í dyrum neðanjarðarlestar
í Munchen um það leyti sem hún
var að leggja af stað. Aðrir far-
þegar reyndu að koma honum til
bjargar en áður en það tókst
rakst hann á spegil á miklum
hraða og lést samstundis.
■ EVRÓPA
■ VIÐSKIPTI
ÍBÚÐAVEXTIR ÁKVEÐNIR Vextir á
almennum útlánum Íbúðalána-
sjóðs frá 1. ágúst 2004 hafa verið
ákvarðaðir 4,5%. Vextir veðbréfa
sem afhent voru fyrir 31.júlí
munu bera vexti júlímánaðar
sem voru 4,80%, þó þau verði
ekki keypt fyrr en í ágústmánuði.
Vextir á almennum útlánum
Íbúðalánasjóðs munu verða
ákvarðaðir mánaðarlega.
OG FJARSKIPTI Á ÁÆTLUN Og
Vodafone hagnaðist um 207 millj-
ónir fyrir skatta á fyrri helmingi
ársins 2004. Reiknaður tekju-
skattur félagsins nam 38 m.kr. á
tímabilinu en félagið greiðir ekki
skatt vegna uppsafnaðs taps fyrri
ára. Afkoma félagsins er í góðu
samræmi við væntingar. Tekjur
félagsins jukust um ellefu
prósent milli ára.
BJÖRGÓLFUR GUÐMUNDSSON
Greiðir hæsta skatta allra Íslendinga.
BOBBY FISCHER
Fær lengri frest til að berjast gegn fram-
salsbeiðni Bandaríkjastjórnar.