Fréttablaðið - 31.07.2004, Síða 10
10 31. júlí 2004 LAUGARDAGUR
SAMSTÆÐAR MÆÐGUR
Mæðgurnar Lupe og Lilliam Williams
skörtuðu höttum með asnanum, tákni
demókrata, á ráðstefnu flokksins sem fór
fram í Boston í Bandaríkjunum.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn um argentínsku efnahagskreppuna:
Viðurkennir að hafa gert illt verra
EFNAHAGSMÁL Afskipti Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins af efnahags-
þrengingunum í Argentínu gerðu
illt verra. Þetta kemur fram í
nýrri skýrslu sjóðsins.
Sérfræðingar sjóðsins komast
að þeirri niðurstöðu að sú stefna
hans að halda áfram að lána
Argentínu fé þrátt fyrir að land-
ið væri orðið verulega skuldsett
hafi átt verulegan þátt í kreppu
sem varð til þess að milljónir
Argentínumanna töpuðu stórfé
og lentu undir fátæktarmörkun-
um.
„Kreppan hefði orðið mjög
slæm hvort sem er, en kannski
ekki alveg jafn slæm og ef sjóð-
urinn hefði stutt við bakið á
breyttri stefnu,“ sagði Isabelle
Mateos y Lago, hagfræðingur
hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, í
viðtali við Washington Post.
Argentínsk efnahagslíf hrundi
vegna of mikillar lántöku. Há-
marki náði kreppan þegar stjórn-
völd gátu ekki greitt sjö milljarða
króna skuldir. Í kjölfarið jókst at-
vinnuleysi verulega og upplausn
einkenndi stjórnmálin. ■
Reiðir þorpsbúar:
Ferðamenn í
gíslingu
INDLAND, AP Reiðir þorpsbúar í ind-
verska þorpinu Santoshgarh
stöðvuðu rútur sem fluttu 37 er-
lenda ferðamenn til að vekja at-
hygli á kröfum sínum um að þrír
indverskir verkamenn sem voru
teknir í gíslingu í Írak yrðu leyst-
ir úr haldi.
Þorpsbúarnir stöðvuðu rúturn-
ar á fimmtudagskvöld og hleyptu
þeim ekki í gegn fyrr en lögregla
kom á vettvang næsta dag. Lög-
reglan flutti ferðamennina í must-
eri skammt frá og gaf þeim að
borða. Þar var beðið eftir liðsauka
svo hægt væri að flytja ferða-
mennina á leiðarenda. ■
Ólympíuþorpið:
Sex fyrstu
flytja inn
AÞENA, AP Fyrstu íþróttamennirnir
fluttust inn í ólympíuþorpið í Aþ-
enu í gær. Þar var á ferð sex manna
ræðaralið Grikklands.
Alls munu 16.000 íþróttamenn
og aðrir þátttakendur á ólympíu-
leikunum dvelja í ólympíuþorpinu
meðan á ólympíuleikunum stendur.
Þorpið er vel af girt og verða hund-
ruð lögreglumanna á vakt hverju
sinni til að gæta öryggis þátttak-
enda fyrir hugsanlegum árásum.
Búist er við að flestir íþrótta-
mennirnir verði komnir í Ólympíu-
þorpið áður en opnunarhátíð leik-
anna fer fram hinn 13. ágúst. ■
ARGENTÍNSKI FORSETINN OG FLEIRI
RÁÐAMENN
Efnahagskreppan í Argentínu fyrir þremur
árum er ein sú alvarlegasta í sögunni. Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn viðurkennir nú að
hafa gert illt verra.
TIL ÞJÓNUSTU REIÐUBÚINN
John Kerry heilsaði þinggestum að hermannasið á flokksþingi demókrata þegar hann flutti ræðu sína aðfaranótt föstudags. Kerry stendur
ágætlega að vígi í skoðanakönnunum og hart er barist um nokkur lykilsvæði í Bandaríkjunum þar sem úrslitin í kosningunum geta ráðist.
BOSTON, WASHINGTON, AP Baráttan um
forsetaembættið í Bandaríkjunum
snýst í auknum mæli um að ná fót-
festu í fjórum til fimm ríkjum sem
talin eru ráða úrslitum um niður-
stöðu kosninganna. John Kerry hef-
ur nú tekið formlega við útnefningu
demókrata á flokksþingi í Boston en
á sama tíma og Kerry baðar sig í
sviðsljósinu þar hefur Bush forseti
gert víðreist um ríkin sem baráttan
stendur um.
Staða Kerry er talin vera óvenju-
sterk miðað við að hann er að skora
sitjandi forseta á hólm. Sérfræðing-
ar telja að Kerry eigi stuðning 168
kjörmanna nokkurn veginn vísan en
Bush 190. 270 atkvæði þarf til að
sigra í kosningunum.
Baráttan stendur hins vegar um
nokkur stór ríki. Ohio skilar tuttugu
kjörmönnum, Pennsylvanía 21 og
Flórída hefur 27 kjörmenn. Staðan í
öllum þessum ríkjum er jöfn; sér-
staklega í Ohio og Pennsylvaníu .
Í ræðu sinni við útnefninguna
lagði Kerry áherslu á að Bandaríkin
þyrftu að endurheimta virðingu í al-
þjóðasamfélaginu. Harðasta gagn-
rýni Kerry á Bush í ræðunni var
varðandi gjöreyðingarvopn Íraka og
stríðsreksturinn þar. Jafnframt
lagði hann áherslu á fjölskyldugildi
og talaði mikið um foreldra sína.
Kosningasérfræðingar Demókrata-
flokksins vildu varpa upp mynd af
Kerry sem ákveðnum og heiðvirð-
um manni sem hefði sannfæringu
og viljastyrk til að veita Bandaríkja-
mönnum forystu í stríðinu á hendur
hryðjuverkum.
Kerry lagði einnig áherslu á
efnahagsmál og sérstaklega stöðu
þeirra verkamanna sem eiga í al-
þjóðlegri samkeppni. Demókratar
hafa gert sér mat úr óánægju al-
mennings með að bandarísk fyrir-
tæki flytji í auknum mæli starfsemi
sína til útlanda. Demókratar vilja
nýta sér þessa óánægju en jafn-
framt þurfa þeir að taka tillit til þess
að stór hópur kjósenda þeirra eru
fríverslunarsinnar, enda var frí-
verslun einn af hornsteinum vel-
gengni Bill Clinton.
Búist er við tímabundinni upp-
sveiflu í fylgi Kerry í kjölfar flokks-
þingsins en reynslan segir að slíkt
hjaðni þegar frá líður auk þess sem
repúblikanar geta átt von á upp-
sveiflu í sínu gengi þegar þeirra
flokksþing verður haldið í New York
um næstu mánaðamót. ■
Staða Kerry sterk
en baráttan hörð
John Kerry lagði áherslu á alþjóðlega ímynd Bandaríkjanna og efna-
hagsmál í ræðu sinni á flokksþingi demókrata. Skoðanakannanir sýna
að hann hefur góða stöðu en allir búast við spennandi kosningum.
Vatíkanið:
Gagnrýnir
femínista
BERLÍN, AP Vatíkanið gagnrýnir
femínista fyrir að líta fram hjá líf-
f r æ ð i l e g u m
mismun kynj-
anna í yfirlýs-
ingu sem
væntanleg er
frá páfagarði.
Í skýrslu
Vatíkansins,
sem áætlað er
að gefin verði
út á sunnudag, eru stjórnvöld
hvött til þess að skapa aðstæður til
þess að konur neyðist ekki til þess
að afneita fjölskyldu sínum vilji
þær sækja um vinnu. Þá er sú
skoðun ítrekuð að konur skuli ekki
gegna embætti presta auk þess
sem lögð er áhersla á að kristin
hjónabönd séu milli karls og konu,
ekki milli fólks af sama kyni. ■
Kona í Washington:
Handtekin
fyrir að borða
súkkulaði
WASHINGTON, AP Kona var handtek-
in af lögreglu og haldið í gæslu í
þrjár klukkustundir fyrir að
borða súkkulaðistöng á neðan-
jarðarlestarstöð í Washington þar
sem neysla matvæla er bönnuð.
Konan var að maula súkkulað-
ið í rúllustiga á leið á lestarstöð-
ina og var búin að stinga upp í sig
síðasta bitanum þegar hún gekk
inn. Þar sem hún hafði ekki
kyngt var hún handtekin. Lög-
reglan í Washington hefur verið
gagnrýnd fyrir offors í málum
sem þessum. Í fyrra var tólf ára
stúlka handjárnuð fyrir að borða
franskar kartöflur á lestarstöð
og maður í hjólastól sektaður
fyrir að blóta þegar allar lyftur
fyrir fatlaða reyndust bilaðar. ■
Ástralskur maður:
Sá hund
drepa barn
ÁSTRALÍA, AP Ástralskur karlmaður
sem sagði í viðtali á dögunum að
hann hefði skotið dingóhund sem
var með lík ungs barns í skoltinum
árið 1980 hefur neitað að ræða við
lögreglu. Hefði maðurinn greint
frá þessu á sínum tíma hefði það
getað komið í veg fyrir ein verstu
réttarmistök í sögu Ástralíu.
1982 var Lindy Chamberlain
fundin sek um að hafa myrt níu
vikna barn sitt tveimur árum áður.
Hún hélt því fram að dingóhundur
hefði borið barn sitt á brott. Fjór-
um árum eftir dóminn komu fram
nýjar upplýsingar sem leiddu til
þess að Lindy var náðuð. ■
■ EVRÓPA
GÆTI FÆKKAÐ UM ÞRIÐJUNG
Króötum gæti fækkað um þriðj-
ung á næstu fimmtíu árum vegna
fallandi fæðingartíðni að sögn
yfirmanns þarlendu hagstofunn-
ar. Meira var um dauðsföll en
fæðingar í Króatíu í fyrra.