Fréttablaðið - 31.07.2004, Blaðsíða 13
H
im
in
n
o
g
h
af
-
9
04
05
10
Ferðaþjónusta Iceland Express, Suðurlandsbraut 24, Sími 5 500 600, icelandexpress.is
Sólin virðist hafa tekið sér bólfestu yfir Englandi og skín skært þessa
dagana. Bongóblíða alla daga og nóg um að vera.
Skemmtilegir viðburðir í ágúst:
Hin árlega breska bjórhátíð
Skoðunarferðir um Buckingham-höll
Portobello-kvikmyndahátíðin
Tónleikar með Gipsy Kings
Tónleikar með Madonnu
Götuhátíð í Notting Hill
V-tónlistarhátíðin
Reading-tónlistarhátíðin
Creamfields-tónlistarhátíðin
Fullt af spennandi söngleikjum
Endalausir möguleikar á skoðunarferðum og skemmtilegri afþreyingu
... og svo er enski boltinn auðvitað að byrja!
Skoðaðu alla ferðamöguleikana á icelandexpress.is
Veðrið í London næstu daga: 22–28°C hiti, sól og skyggni ágætt
Bókaðu ódýrustu flugsætin á icelandexpress.is
London
Sól í
Slysa- og bráðadeild
er ólík öðrum deildum
að því leyti, að hvorki er hægt
að loka vegna sumarleyfa né
draga úr aðsókn enda deildin
opin allan sólarhringinn árið
um kring og engum vísað frá.
Um biðtíma á slysa- og bráðadeild Landspítalans
Í Fréttablaðinu 26. júlí sl. veður
Jóhannes Gunnarsson, lækningar-
forstjóri Landspítala, elginn
ótæpilega. Hann segir slysa- og
bráðadeild ekki veita fullnægj-
andi þjónustu. Hann er undrandi á
biðtímum á biðstofum deildarinn-
ar þar sem hann viti ekki til þess
að neitt sérstakt sé að gerast í
starfseminni, annað en það, að
slíkir álagspunktar gætu komið
upp hvenær sem væri. Jóhannes
hefði sloppið fyrir horn með ofan-
skráð, en í framhaldinu segir
hann orðrétt: „Það er full mönnun
á slysa- og bráðadeild og þar hef-
ur ekkert verið dregið úr. Sú þjón-
usta á því að vera því sem næst
eða alveg eins og hún er venju-
lega“. Af þessum orðum má þann-
ig ætla, að skýringin á biðtíma á
biðstofu deildarinnar sé slæping-
ur starfsfólks hinnar fullmönnuðu
deildar.
Jóhannesi til upplýsingar og
öðrum til hugarhægðar skal bent
á eftirfarandi:
1. Til þess að fullyrða að deild-
in sé fullmönnuð þarf að tína til
stúdenta og lærlinga ýmiskonar
og dugir þó ekki til.
2. Til undantekningar heyrir,
að sérfræðingar fáist í afleysing-
ar. Veikist læknir deildarinnar
eða fari hann í lögboðið frí, færist
starfsemin óhjákvæmilega til
þeirra, sem ekki eru í fríi. Afleið-
ingin er aukið álag og lengri bið-
tími á biðstofu.
3. Slysa- og bráðadeild er ólík
öðrum deildum að því leyti, að
hvorki er hægt að loka vegna sum-
arleyfa né draga úr aðsókn enda
deildin opin allan sólarhringinn
árið um kring og engum vísað frá.
4. Samkvæmt íslenzkum lögum
og samningum skal eftir beztu
getu taka sumarfrí á sumrin og á
það einnig við um starfsfólk deild-
arinnar. Margendurteknar kann-
anir hafa sýnt, að meðalbiðtími á
biðstofu slysadeildar við eðlilega
mönnun er 10 mínútur og gerist
ekki minni á byggðu bóli. Þriggja
stunda biðtími á slysadeild þykir
hvergi fréttnæmur nema hér á
landi, en ekki er þar með sagt, að
hann sé eftirsóknarverður.
Í stað þokukenndra aðdróttana
í garð starfsfólks, væri lækninga-
forstjóranum nær að skýra hvers
vegna biðtímar eru svo sem þeir
eru. Engum er greiði gerður með
álitsgerð eða yfirlýsingu þeirri, er
hér hefur verið vitnað til.
Höfundur er sérfræðingur
á slysadeild til 28 ára.
13LAUGARDAGUR 31. júlí 2004
Lítill hagnaður sparisjóða
Því miður var árið 2003 sparisjóðum
mjög í óhag þegar bornar eru saman
afkomutölur banka og sparisjóða. Sam-
anlagður hagnaður viðskiptabankanna
var 16,3 milljarðar kr. og var meðalarð-
semi eiginfjár 23,6%. Mestan hagnað
sýndi KB banki, sjö og hálfan milljarð
kr., en Landsbankinn rak lestina með
2,4 milljarða í hagnað. Arðsemin var
hæst hjá Íslandsbanka eða 30,1% en
lægst hjá Landsbankanum 17,6%.
Samanlagður hagnaður 10 stærstu
sparisjóðanna (Sparisjóður Kaupþings
er ekki tekinn með) var 2,4 milljarðar,
mestur hjá SPRON 804 milljónir en
Sparisjóður Vestfirðinga skilaði 27 millj-
óna kr. tapi. Meðalarðsemi eigin fjár var
15,1% hjá átta sparisjóðum en tveir
sjóðir í hópi 10 stærstu skiluðu tapi og
reiknast því ekki inn í sem þýtt hefði
lægra meðaltal. Sparisjóður Keflavíkur
skilaði mestri arðsemi - yfir 33%.
Eggert Þór Aðalsteinsson á deiglan.com
Fimmti hver nauðgar
Á Íslandi er að minnsta kosti fimmtu
hverri konu nauðgað. Það þýðir að
fimmti hver karlmaður er nauðgari.
Þrátt fyrir að sumir karlar nauðgi kanns-
ki fleiri en einni konu þá er vert að
benda á að hópnauðganir eiga sér líka
stað. Með þessum tölum er ekki ætlun-
in að reyna að ráðast að fólki með lát-
um heldur einungis að benda á að
augljóslega er um stórt samfélagslegt
mein að ræða sem við þurfum öll að
taka ábyrgð á og vinna gegn. Um versl-
unarmannahelgar, líkt og aðrar helgar,
eiga alltof margar nauðganir sér stað.
Til þess að vinna gegn nauðgunum
þarf fyrst og fremst að setja skömmina
þar sem hún á heima; hjá ofbeldis-
manninum. Svona ljótan ofbeldisglæp
á ekki að líða.
Halla Gunnarsdóttir á murinn.is
Arfavitlaus staðhæfing
Þessari fullyrðingu [á Múrnum um að
fimmti hver karlmaður sé nauðgari] var
ekki slengt fram í fljótfærni. Seinnipart-
inn í gær breyttist fullyrðingin og í stað-
inn sagt að það mætti „leiða líkur að
því að fimmti hver karlmaður sé nauð-
gari“. Það er því algerlega gengið út frá
því sem vísu nánast hver einasti nauð-
gari fremji slíkt brot einu sinni á lífsleið-
inni og þeir sem „kannski“ nauðgi oftar
núllist út vegna hópnauðgana. Um
30.000 karlmenn hafi því 30.000
nauðganir á bakinu. Ég veit ekki til þess
að neinar rannsóknir liggi fyrir á því hve
margar nauðganir meðalnauðgari
„framkvæmir“ á lífsleiðinni. En stað-
hæfingin um 5. hvern karlmann er svo
arfavitlaus, að jafnvel þessi vægast sagt
vafasama forsenda nægir ekki til að
„leiða líkur“ að einu né neinu. Ef að lít-
ið hlutfall nauðgara gerir það oft geta
þeir haft miklu stærra hlutfall af nauðg-
unum á samviskunni.
Guðmundur Svansson á deiglan.com
LEIFUR JÓNSSON
LÆKNIR
UMRÆÐAN
BRÁÐAMÓTTAKA
,,
AF NETINU
Við hvetjum lesendur til að senda
okkur línu og leggja orð í belg um efni
Fréttablaðsins eða málefni líðandi
stundar. Greinar og bréf skulu vera
stutt og gagnorð. Ritstjórn áskilur sér
rétt til að stytta aðsent efni. Einnig
áskilur ritstjórn sér rétt til að birta
aðsent efni að meginhluta á vefsíðu
blaðsins, sem er Vísir.is, og vísa þá til
þess með útdrætti í blaðinu sjálfu.
Vinsamlega sendið efni í tölvupósti á
greinar@frettabladid.is. Þar er einnig
svarað fyrirspurnum um lengd greina.
Á SLYSADEILD Greinarhöfundur segir með-
albiðtíma á deildinni við eðlilega mönnun
vera 10 mínútur.