Fréttablaðið - 31.07.2004, Qupperneq 18
www.li.is
Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Athygli fjárfesta er
vakin á því að fjárfestingarsjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari
upplýsingar um sjóðinn, m.a. hvað varðar muninn á verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir
sjóðsins, vísast til útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu sem nálgast má í afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk
upplýsinga á heimasíðu bankans www.landsbanki.is
Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa
hjá ráðgjöfum í útibúum Landsbankans
eða í síma 560 6000.
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
B
I
25
23
0
7/
20
04
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
B
I
25
23
0
7/
20
04
Banki allra landsmanna
6,6%* – Peningabréf Landsbankans
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra
fjárfesta. Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans.
* Nafnávöxtun frá 01.06.2004–30.06.2004 á ársgrundvelli.
á
su
nn
ud
eg
i
V
ið
sk
ip
ta
fr
ét
ti
r
Á TALI Í KÍNA
Kínverskur farsímaeigandi fyrir framan aug-
lýsingaskilti í Peking. Kína er nú orðinn
stærsti markaður farsímafyrirtækja og enn
er búist við miklum vexti.
Afkoma bankanna hefur aldrei
verið betri. Hagnaðarmetin hafa
fallið eitt af öðru. Mikill vöxtur er
í fjármálakerfinu og fjármála-
þjónusta er þegar orðin útflutn-
ingsgrein í örum vexti.
Gríðarlegar breytingar hafa
orðið í fjármálastarfsemi hér á
landi undanfarin misseri. Eftir
einkavæðingu ríkisbankanna
virðist hafa losnað úr læðingi
mikil orka sem hefur haft mikil
áhrif á viðskiptalífið í heild.
Bankarnir dýrir
Uppgjör fyrstu þrjá mánuði
ársins einkenndust af miklum
gengishagnaði vegna sölu stórra
eigna. Íslandsbanki seldi hlut sinn
í Straumi og Landsbankinn naut
mikils gengishagnaðar af Burðar-
ási sem seldi sjávarútvegshluta
sinn í upphafi árs.
Samhliða góðum hagnaði bank-
anna hefur verð hlutabréfa þeirra
hækkað verulega. Verðlagning
þeirra er há ef miðað er við er-
lenda banka. Jafet Ólafsson, for-
stjóri Verðbréfastofunnar, telur
að almennt séð standi bankarnir
undir þessari verðlagningu. „Með
þessum hagnaði þá gerir hún
það.“ Hann segir erfitt að bera
bankana saman við erlenda
banka, þar sem fjárfestingar-
bankastarfsemi þeirra sé oft í sér-
stökum félögum. „Hér er þetta
sambland af hvoru tveggja.“
Þegar litið er á uppgjör bank-
anna má greina ólíka stefnu
þeirra. Landsbankinn hefur lagt
höfuðárherslu á vöxt. Íslands-
banki hefur lagt mikið upp úr
stöðugri arðsemi eiginfjár og KB
banki hefur lagt áherslu á erlend-
an vöxt í fjárfestingarbankastarf-
semi.
Uppgjör Íslandsbanka var yfir
væntingum á markaði. „Það kom
ánægjulega á óvart að sjá vöxtinn
á fyrirtækjasviði bankans.“ Jafet
segir einnig ánægjulegt að sjá
vöxt erlendrar starfsemi, bæði hjá
Landsbankanum og Íslandsbanka.
Af 106 milljarða útlánaaukningu
Landsbankans fóru 40 milljarðar
til erlendra viðskiptavina. Af
heildar lánum Íslandsbanka eru 22
prósent til erlendra aðila.
Allir í útrás
KB banki er hins vegar kominn
lengst í erlendri starfsemi. Meiri-
hluti tekna bankans kemur að
utan. Eftir að yfirtöku á danska
bankanum FIH verður lokið mun
innlend starfsemi standa undir
tæpum fjórðungi af tekjum bank-
ans. Hinir bankarnir hafa boðað
erlenda útrás. Landsbankinn reyn-
di við kaup á FIH og þar á bæ meta
menn það svo að bankinn muni
ráða við kaup á banka fyrir allt að
einum milljarði evra eða 86 millj-
arða íslenskra króna. Í undanförn-
um tveimur kynningum á uppgjöri
Íslandsbanka hefur kveðið við nýj-
an og áhættusæknari tón. Bjarni
Ármannsson, hefur boðað að bank-
inn muni í auknum mæli taka
áhættu með viðskiptavinum sínum
líkt og KB banki hefur gert með fé-
lögum eins og Bakkavör, Össuri og
fleiri fyrirtækjum sem náð hafa
góðum árangri í útrás. Íslands-
banki er í mjög traustum rekstri
og hefur því góðar forsendur til
þess að auka áhættu sína. Banka-
kerfið í heild sinni hefur aldrei
verið eins vel í stakk búið til þess
að taka áhættu með viðskiptavin-
um sínum og styðja við vöxt at-
vinnulífsins. „Þessi umbreyting
sem hefur orðið að fjármálafyrir-
tækin taki á með mönnum í út-
rásinni er mjög jákvæð.“
Uppgjör Landbankans var
einnig gott og í efri hluta vænt-
inga. Gríðarlegur vöxtur er í
bankanum. „Maður hefur alltaf
áhyggjur af því þegar fyrirtæki
vaxa svo hratt að eitthvað geti
skolast til,“ segir Jafet. Hann seg-
ir hins vegar ljóst að í KB banka
og Landsbankanum hafi mönnum
tekist á hendur endurmat lána-
stokksins og fært á afskriftar-
reikning meira en almenn varúð-
arsjónarmið leyfa. Íslandsbanki
hefur ekki þurft á samsvarandi til-
tekt að halda. Jafet segir sitt mat
að bankarnir séu að mestu búnir
að taka á gömlum syndum í lána-
safni sínu.
Spenna í kringum KB banka
KB banki hagnaðist um 3,5
milljarða á öðrum ársfjórðungi.
Greiningardeildir bjuggust við
meiru. Einhver skekkja var í for-
sendunum og segir Jafet afkomu
bankans í samræmi við það sem
hann hefði búist við. Mikil spenna
er í kringum bankann á næstunni.
Eftir hlutafjáraukningu, miðað við
gengi dagsins, verður mark-
aðsvirði KB banka meira en Lands-
bankans, Íslandsbanka og Straums
samanlagt. Bankinn verður í flest-
um tölum stærri en samanlagðir
keppinautarnir. Slagkraftur bank-
ans verður því verulegur í sam-
keppni um stærstu kúnnana. Búist
er við því að lánshæfismat bankans
verði hækkað eftir yfirtökuna á
FIH. Það mun enn styrkja sam-
keppnisstöðu bankans. Í innlendri
samkeppni má búast við að Lands-
bankinn muni leita leiða til að ná
betri áhættudreifingu til þess að fá
betra lánshæfismat.
Léleg afkoma af einstaklingum
Þrátt fyrir yfirlýsingar ýmissa
um að íslenskir bankar taki hærri
gjöld af viðskiptavinum sínum en
erlendir bankar, bendir flest til
þess að samkeppnin á bankamark-
aði sé mjög hörð. Raunar svo hörð
að Seðlabankinn hefur haft af því
vissar áhyggjur að bankarnir séu
með of lágt álag á útlán sín. Vaxta-
munur innlána og útlána bankanna
hefur farið minnkandi. Það ber vott
um samkeppni. Hreiðar Már Sig-
urðsson, forstjóri KB banka, segir
að afkoman af lánum til einstak-
linga og smárra fyrirtækja sé óvið-
unandi. Markaðshlutdeild bank-
anna í lánum til einstaklinga er ekki
mikil. Íbúðalánasjóður er stærstur
og bankarnir eru meira í áhættu-
samari hluta lána til einstaklinga.
Þessi þáttur í rekstri bankanna er
því ekki mjög spennandi um þessar
mundir. Það er því ekki furða að
sumir velti því fyrir sér hvort
banki eins og KB banki sem stefnir
á að verða stór alþjóðlegur fjárfest-
ingarbanki, muni til framtíðar líta á
viðskiptabankastarfsemi á Íslandi
sem bagga sem gott yrði að losna
við.
haflidi@frettabladid.is
Jólin hjá bönkunum
Afkoma bankanna er afar góð og styrkur bankakerfisins hefur sjaldan verið meiri. Útrásin er
farin að setja mark sitt á uppgjör bankanna og allir stefna þeir að vexti erlendis.
LÍF OG FJÖR Í FJÁRMÁLUM
Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri
Landsbankans, er kátur með stöðu-
na hjá bankanum. Bankarnir geta
vel við unað, enda hefur afkoma
þeirra og styrkur aldrei verið meiri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
31.12.2002 31.12.2003 30.06.2004
KB-Banki
Landsbankinn
Íslandsbanki
HEILDAREIGNIR BANKANNA
Í milljónum króna.
* KB BANKI VARÐ TIL VIÐ SAMEININGU KAUPÞINGS OG
BÚNAÐARBANKA ÁRIÐ 2003. TALAN FYRIR 2002 ER SAM-
ANLAGÐAR EIGNIR BANKANNA TVEGGJA.
4
3
2
.4
12
*
2
77
.8
2
4
3
12
.3
6
7
5
5
8
.5
6
9
4
4
3
.9
4
3
4
4
8
.2
3
9 5
5
8
.4
9
3
5
2
1
.4
0
6
6
4
9
.3
5
8
HAGNAÐUR BANKANNA Í
MILLJÓNUM KRÓNA:
Jan.-júní Jan.-júní Aukning
2004 2003
Straumur fjárf.banki 3.137 867 2.270
Íslandsbanki hf. 6.825 2.404 4.421
Landsbankinn 6.035 1.22 4.814
KB banki 6.158 3.065 3.093
Samtals 22.155 7.557 14.598