Fréttablaðið - 31.07.2004, Síða 38
Landsliðsþjálfun - já, takk
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, tjáði sig í
gær um Sven Göran Eriksson, þjálfara
enska landsliðsins, og vandræðin sem
hann er búinn að koma sér í vegna
meint ástarsambands við ritara enska
knattspyrnusambandsins. Mourinho er
á því að landsliðþjálfari eigi ávallt að
vera sömu þjóðar og landsliðið sjálft.
„Að þjálfa landslið
kemur miklu
meira frá hjart-
anu. Besti þjálfar-
inn fyrir Portúgal
er portúgalskur
þjálfari og besti
þjálfarinn fyrir
Frakka er einhver
franskur,“ sagði Mourinho. Það hefur
margsannað sig að fáir stjórar í veröld-
inni eru jafn hreinskilnir þegar kemur
að tilsvörum eins og Mourinho. Á því
var engin undantekning þegar hann var
spurður um hvort hann gæti hugsað sér
að gerast landsliðsþjálfari einn daginn.
„Já, en ekki næstu 20 árin. Þegar ég
verð sextugur langar mig að stýra Portú-
gal. Í því felst lítil vinna, þú getur sofið
til hádegis alla daga og kíkt á leiki um
helgar. Á tveggja mánaða fresti spilar
liðið æfingaleiki og á tveggja ára fresti
er stórmót,“ segir Mourinho og er ekk-
ert að skafa utan af því. En þótt hann
hafi samúð með Eriksson segist Mour-
inho aldrei vilja taka við Englandi. „Að
vera þjálfari Portúgals er besta starf í
heimi en að vera þjálfari Englands? Ó,
nei.“
Kezman sá rautt
Mateja Kezman hélt áfram að skora
mörk en var jafnframt rekinn út af fyrir
Chelsea í æfingaleik gegn Roma í
Bandaríkjunum í fyrrinótt. Þótt að um
æfingamót sé að ræða gæti rauða
spjaldið þýtt að Kezman verði í banni í
upphafi ensku úrvalsdeildarinnar sem
hefst eftir tvær
vikur og missi
þannig af fyrsta
leik liðsins við
Manchester
United. Kezman
hlaut spjaldið eft-
ir að hafa veist að
franska miðju-
manninum Oliver
Dacourt en hann tæklaði niður Hol-
lendinginn Arjen Robben að óþörfu.
Dacourt brást hinn versti við og þurftu
samherjar beggja leikmanna að slíta þá
í sundur rétt áður en alvörugötuslags-
mál voru um það bil að hefjast. Báðir
fengu þeir rautt spjald.
Leikurinn sjálfur var hinsvegar eign
Chelsea frá upphafi og fór liðið með ör-
uggan 3-0 sigur af hólmi. Eiður Smári
Guðjohnsen lék fyrri hálfleikinn en náði
ekki að skora mark. Joe Cole skoraði
fyrsta markið í fyrri hálfleik en í þeim
síðari bættu Kezman og Didier Drogba,
sem var að leika sinn fyrsta leik fyrir
Chelsea, við einu marki hvor.
ÍBV hafnaði tilboði KR-inga í marka-hrókinn Gunnar Heiðar Þorvalds-
son á fimmtudags-
kvöldið. KR-ingar
hugðust tryggja sér
Gunnar Heiðar fyrir
lokaátökin í Lands-
bankadeildinni en
Eyjamenn vildu ekki selja sinn besta
mann á meðan þeir eiga enn mögu-
leika á titlinum. Samningur Gunnars
Heiðars við félagið rennur út í haust
og getur hann þá farið frítt frá liðinu.
ÍBV hefur fengið liðsstyrk fyrir loka-átökin í Landsbankadeild kvenna í
fótbolta. Ensku stúlkurnar Rachel
Brown og Samantha Britton gengu
í gær frá félagsskiptum yfir í ÍBV en
Brown, sem er markvörður, lék sjö
leiki með liðinu í fyrra. Britton, sem
er framherji, lék með ÍBV á árunum
2000 og 2001 og skoraði tólf mörk í
átján leikjum.
KR-stúlkur hafa einnig fengið liðs-styrk en hinar serbnesku Vanja
Stefanovic og Ratka Zivkovic, sem
hafa verið í lykilhlut-
verkum hjá Fjölni í
sumar, gengu í raðir
félagsins í gær. KR
mun missa átta
leikmenn til Banda-
ríkjanna í ágúst og þurftu því nauð-
synlega að styrkja sig fyrir lokasprett-
inn í Landsbankadeild kvenna.
Skagamenn hafa fengið til sínenskan framherja sem heitir Ric-
hard Barnwell fyrir lokaátökin í
Landsbankadeild karla í fótbolta.
Barnwell, sem er 25 ára, spilaði síð-
ast í Eistlandi með FC Levedia, topp-
liðinu í eistnesku 1. deildinni, og
skoraði sjö mörk í tólf leikjum.
Kári Árnason, miðjumaðurinnsterki hjá Víkingi, dvelur nú hjá
sænska liðinu Gautaborg þar sem
hann verður til
reynslu næstu daga.
Kári hefur átt frá-
bært tímabil með
Víkingi og hefur
frammistaða hans
vakið áhuga norska liðsins Sogndal
og danska liðsins FC Kaupmanna-
höfn.
Víkingar hafa einnig fengið til liðsvið sig tvo nýja leikmenn fyrir
lokaátökin í Landsbankadeildinni.
Framherjinn Dejan Miljanic og
miðjumaðurinn Borko Marinkovic,
sem eru báðir
B o s n í u - S e r b a r ,
komu til landsins í
gær og sagði að
Sigurður Jónsson,
þjálfari Víkinga, að
hann teldi að þeir myndu styrkja lið-
ið mikið sem væri ekki vanþörf á þar
sem Víkingar ættu eftir að missa
marga leikmenn áður en tímabilinu
lyki.
FÓTBOLTI Að geta ekki haldið sér á
toppnum hefur verið eitt af meg-
megineinkennum Fylkismanna í
Landsbankadeildinni undanfarin
ár, allt frá því að þeir komu upp í
efstu deild haustið 1999 hafa þeir
nær undantekningarlaust verið í
toppbaráttunni lengi móts, oft í
toppsætinu og síðan gefið eftir á
lokasprettinum.
Í ár virðast þeir hins vegar
ætla að vera í fyrra fallinu með að
klúðra toppsætinu því þeir hafa
ekki unnið leik í rúman mánuð,
frá 23. júní, og aðeins krækt sér í
þrjú stig á þeim tíma. Þeir hafa
horft upp á fimm stiga forystu
sem þeir höfðu miðvikudags-
kvöldið 23. júní gufa upp og gott
betur því FH-ingar eru komnir
með þriggja stiga forystu á toppi
deildarinnar og til að bæta gráu
ofan á svart komust Eyjamenn
upp fyrir þá í annað sæti deildar-
innar á miðvikudagskvöldið
þegar þeir lögðu KA-menn, 4–0, í
Vestmannaeyjum en Eyjamenn
eru, líkt og FH-ingar, á miklu flugi
í deildinni.
Framan af móti virtist ekkert
geta stöðvað Fylkismenn. Þeir
spiluðu afskaplega þétta vörn og
voru stórhættulegir í skyndisókn-
um .Þeir sýndu yfirleitt engin
snilldartilþrif en þeir gerðu það
sem þurftu, nokkuð sem er yfir-
leitt einkenni meistaraliða. Það
var svokallaður meistarabragur
á liðinu. Hann hefur hins vegar
horfið eins og dögg fyrir sólu í
undanförnum leikjum og sjálfs-
traust leikmanna með.
Sá draugur, að hafa aldrei
náð að klára heilt mót til enda,
vofir yfir Árbænum en það sem
er þó jákvætt fyrir Fylkismenn er
að niðursveiflan þetta árið kemur
fyrr en vanalega og þeir hafa enn
tíma og tækifæri til að hysja upp
um sig buxurnar og fara að spila
eins og menn á nýjan leik.
Á síðustu árum hefur allt leikið
í lyndi á þessum tíma ársins og
það hefur ekki verið fyrr en eftir
verslunarmannahelgi sem liðið
hefur gefið eftir. Fylkismenn hafa
fest sig í sessi sem eitt af topplið-
um deildarinnar, umgjörðin er
glæsileg í kringum liðið og hvergi
er unnið jafn fagmannlegt yngri
flokka starf. Þeim hefur hins veg-
ar enn ekki tekist að landa Ís-
landsmeistaratitlinum þrátt
fyrir margar misgóðar tilraun-
ir. Það tekur tíma að festa sig í
sessi sem sigurlið í knattspyr-
nunni á Íslandi, það geta þau
lið sem hafa gengið þá göngu
á undan Fylkismönnum
vitnað um en hér fyrir
neðan má sjá þrautagöngu
Fylkismanna undanfarin
ár.
2000
Fylkismenn voru ný-
liðar í deildinni en komu
gífurlega á óvart undir
stjórn Bjarna Jóhannes-
sonar. Þeir mættu Íslands-
meisturum KR á KR-velli í
fimmtándu umferð og gátu
með sigri náð átta stiga forystu
á KR, sem átti reyndar einn leik
til góða, á toppi deildarinnar og
nánast tryggt sér titilinn. Fylkir
tapaði hins vegar leiknum og
missti síðan toppsætið til KR-inga
í sautjándu umferð þegar liðið
beið lægri hlut fyrir Grindavík.
KR-ingar tryggðu sér síðan titil-
inn með sigri á Stjörnunni í 18.
umferð.
2001
Fylkismenn voru á toppi deild-
arinnar eftir tólf umferðir með
tveggja stiga forystu á Skaga-
menn. Þá kom hlé vegna verslun-
armannahelgarinnar og eftir hana
töpuðu Fylkismenn öllum sex
leikjum sínum í deildinni og höfn-
uðu í fimmta sæti. Í kjölfar þessa
hörmulega gengis á lokakaflanum
hætti Bjarni Jóhannsson með liðið
og Aðalsteinn Víglundsson tók
við.
2002
Þetta ár háðu Fylkismenn og
KR-ingar einvígi um Íslands-
meistaratitilinn. Liðin skiptust á
að leiða mótið og þegar sextán
umferðir voru búnar höfðu Fylk-
ismenn eins stigs forystu á KR-
inga. Fylk-
i s -
menn fengu tvö tækifæri til að
klára mótið. Fyrst á heimavelli
gegn KR-ingum en þar voru þeir
aðeins sjö mínútum frá því að
vinna leikinn og tryggja sér titil-
inn. Það var aðeins jöfnunarmark
Jóns Skaftasonar fyrir KR sjö
mínútum fyrir leikslok sem gerði
þann draum að engu. Í lokaum-
ferðinni fóru Fylkismenn upp á
Akranes og vissu að titillinn væri
þeirra með sigri. Þeir töpuðu hins
vegar leiknum og KR-ingar
tryggðu sér titilinn með því að
vinna Þór, 5-0, á KR-vellinum.
2003
Enn og aftur voru það Fylkir
og KR sem börðust um Íslands-
meistaratitilinn. Þau voru jöfn
að stigum eftir þrettán umferð-
ir en þá tóku Fylkismenn sig til
og töpuðu næstu fjórum leikj-
um, þar á meðal, 4-0, gegn KR,
í fimmtándu umferð. KR-ing-
ar tryggðu sér titilinn í sext-
ándu umferð en Fylk-
ismenn höfnuðu í
fjórða sæti deildar-
innar eftir sigur á
Val í síðasta leikn-
um. Aðalsteinn
V í g l u n d s s o n
hætti með lið-
ið og Þorlák-
ur Árna-
son tók
við.
30 31. júlí 2004 LAUGARDAGUR
Við hrósum...
... Steinari Ingimundarsyni og lærisveinum hans í 1. deildarliði Fjölnis í fót-
boltanum sem hafa verið á mikilli siglingu upp á síðkastið. Þeir hafa unnið
fimm af síðustu sex leikjum sínum í deildinni og eru komnir í annað sætið.
Það er ekki síst að þakka þremur Serbum sem komu til félagsins fyrir tímabilið og hafa farið á kost-
um með félaginu. Góður innflutningur í Grafarvoginum þetta árið!sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
28 29 30 31 25 26 27
Laugardagur
JÚLÍ
Við mælum með...
... að aðstoðardómarar og dómarar í efstu deildinni í fótbolta
láti ljósabekkina vera í vetur. Skjannahvítir og fagrir fótleggir
þeirra virka eins og fljóðljós þegar rökkva tekur, nokkuð sem
getur komið sér vel seinni hluta sumars auk þess sem þessir
fagursköpuðu limir trekkja að kvenfólk í löngum röðum.
Sigrarnir farnir
og toppsætið með
Fylkismenn hafa ekki unnið leik í rúman mánuð og eru þremur stigum
á eftir FH-ingum eftir að hafa haft fimm stiga forystu á toppnum eftir
sjöundu umferð Landsbankadeildarinnar.
■ ■ SJÓNVARP
15.00 Heimsmeistaramótið 9 Ball
á Skjá einum.
15.05 Amsterdam Tournament
2004 á Sýn. Sýnt frá leik Arsenal
og River Plate sem fram fór í gær
á Amsterdam-mótinu í fótbolta.
16.50 Champions World 2004 á
Sýn. Bein útsending frá leik
Manchester United og AC Milan
í Champions World mótinu í fót-
bolta.
18.55 Champions World 2004 á
Sýn. Bein útsending frá leik
Liverpool og Porto í Champions
World mótinu í fótbolta.
20.35 World’s Strongest Man á
sýn. Sýnt frá keppni um Sterkasta
mann heims.
23.40 Hnefaleikar á Sýn. Sýnt frá
viðureign Erik Morales og MA
Barrera.
01.00 Hnefaleikar á Sýn. Bein
útsending frá viðureign Erik
Morales og Carlos Hernandez.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
ÞRAUTAGANGA ÞORLÁKS ÁRNASONAR
Þorlákur Árnason, þjálfari Fylkismanna, á mikið
verk fyrir höndum við að koma sjálfstrausti í
sína menn fyrir lokasprettinn í Landsbankadeild-
inni en gengi liðsins í undanförnum leikjum
hefur verið afskaplega dapurt.
STAÐAN EFTIR SJÖ UMFERÐIR
Fylkir 7 5 2 0 11:3 17
FH 7 3 3 1 11:7 12
ÍA 7 3 3 1 9:5 12
KR 7 3 2 2 9:7 11
Keflavík 7 3 1 3 7:11 10
STAÐAN EFTIR TÓLF UMFERÐIR
FH 12 6 5 1 18:11 23
ÍBV 12 6 3 3 22.12 21
Fylkir 12 5 5 2 16:10 20
KR 12 4 5 3 16:14 17
ÍA 12 4 5 3 13:14 17
Promotion Cup:
Ísland í úrslit
eftir sigur á
Möltu
KÖRFUBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið í körfuknattleik tryggði sér í
gær sæti í úrslitaleik Promotion
Cup í Andorra með því að leggja
Möltu að velli, 84-58, í úrslitaleik
um hvort liðið kæmist í úrslita-
leikinn gegn Lúxemburg sem
fram fer í dag kl. 17.
Íslenska liðið var betri aðilinn
allan leikinn og leiddi í hálfleik,
46-26. Malta byrjaði seinni hálf-
leikinn ágætlega og minnkaði
muninn mest niður fimmtán stig
en íslenska liðið átti samt ekki í
vandræðum með að innbyrða ör-
uggan sigur.
Birna Valgarðsdóttir var stiga-
hæst hjá íslenska liðinu með 25
stig, Anna María Sveinsdóttir
skoraði 12, Signý Hermannsdóttir
skoraði 10 stig, tók 13 fráköst, gaf
8 stoðsendingar og varði 8 skot,
Erla Þorsteinsdóttir skoraði 9 stig
og Alda Leif Jónsdóttir skoraði 8
stig, tók 7 fráköst og gaf 7
stoðsendingar. ■