Fréttablaðið - 31.07.2004, Page 46

Fréttablaðið - 31.07.2004, Page 46
„Við gerðum óskalista yfir nokkrar stjörnur sem við vildum fá í verkefnið en Julia Stiles var aldrei laus svo við vorum alveg búin að útiloka hana,“ segir leik- stjórinn Baltasar Kormákur, en eins og greint hefur verið frá hefur leikkonan Julia Stiles skrifað undir samning um að leika í næstu kvikmynd Baltasars, A Little Trip to Hea- ven. „Svo seinkaði tökum á kvik- myndinni en ég var á leiðinni til London að reyna að finna aðra leikkonu þegar umboðsskrifstof- an mín hringdi og sagði að Julia Stiles væri búin að lesa handritið og vildi fá að tala við mig,“ en Baltasar Kormákur og Julia Stiles eru hjá sömu umboðsskrif- stofu, Creative Artists Agency, í Bandaríkjunum. „Þegar ég fékk símtalið hafði allt annað verið upp á teningnum og þetta var því mjög óvænt. Á sama tíma var Julia Stiles að leika á West End í London í verkinu Oleanna eftir David Mamet og ég notaði tæki- færið til að sjá hana þar á sviði.“ Umsetin aðdáendum Julia hafði áður unnið með David Mamet í kvikmyndinni Sate and Main en handritshöfundurinn beið með uppsetningu á Oleanna í hálft ár til að geta fengið Juliu í hlutverkið. „Ég fór ásamt Sigur- jóni Sighvatssyni, framleiðenda myndarinnar, á West End en var þá alls ekki viss um að Julia Stiles passaði í hlutverkið í Little Trip to Heaven. Í Oleanna lék Julia á móti bandaríska leikaran- um Aron Eckhart (sem fór meðal annars með hlutverk í myndinni Erin Brockovich) og hún lék hann gjörsamlega út af sviðsbrúninni og alveg upp í stúku,“ segir Baltasar sem sannfærðist um ágæti leikkonunnar eftir leikhús- upplifunina í London. Eftir sýninguna fór Baltasar baksviðs ásamt Sigurjóni til að ná tali af Juliu Stiles. „Þegar við komum út með henni biðu þar um 300 manns til að fá eigin- handaráritun en ég hafði þá ekki alveg áttað mig á vinsældum hennar.“ Julia Stiles skaust upp á stjörnuhimininn eftir myndina Save the Last Dance og á að baki leik í um tuttugu bíómyndum. Julia vakti fyrst athygli í mynd- inni 10 Things I hate About You en leikur nú á móti Matt Damon í The Bourne Supremacy sem trónir á toppnum í Bandaríkjun- um. Hin 23 ára gamla leikkona hefur verið kosin ein af fimmtíu fegurstu konum heims í tímarit- inu People og var valin „heitasta ungstirnið“ í sama blaði. Á dögunum var Julia Stiles út- nefnd „The most fearless and tal- ented actress in Hollywood“ af L.A Times en það er titill sem Baltasar tekur undir. „Julia Sti- les er óhrædd við að ögra ímynd- inni og á að baki leik í ótrúlega fjölbreyttum bíómyndum,“ en Julia Stiles var meðal annars í myndinni Devil’s Own með þeim Brad Pitt og Harrison Ford og fór með hlutverk Ófelíu í kvik- myndinni Hamlet. „Það býr mik- il leikkona í Juliu og í Little Trip to Heaven kemur hún til með að leika móður sem er sérstakt því afar fáar stjörnur á hennar aldri kæra sig um að bregða sér í móð- urhlutverkið á hvíta tjaldinu.“ Hvalreki fyrir Baltasar Á kvikmyndavefnum imdb.com kemur fram að Julia Stiles fær um fjórar milljónir dollara fyrir þær bíómyndir sem hún hefur tekið þátt í að undanförnu en það er greinilegt að hún lætur pen- ingana þó ekki ráða ferðinni. „Julia sýndi Little Trip to Heaven áhuga að fyrra bragði og því var hún til í að gera þetta fyrir langt- um minni upphæð en hún fékk fyrir síðustu mynd,“ segir Baltasar sem er að vonum hæstá- nægður með að hafa náð samn- ingum við stórstjörnuna. „Þetta er hvalreki fyrir bíómyndina eins og Sigurjón Sighvatsson orðaði það.“ Baltasar er nú að leggja loka- hönd á ráðningu leikara við myndina og á meðal annars í við- ræðum við leikkonuna Phyllidu Law sem fyrir utan störf sín er þekkt fyrir að vera móðir bresku leikkonunnar Emmu Thompson. Baltasar bíður einnig eftir svari frá heimsfrægum banda- rískum leikara, sem ekki er hægt að nafngreina að svo stöddu, til að fara með mikilvægt aukahlut- verk í myndinni. Von er svo á öll- um stjörnunum, þar á meðal For- est Whitaker, til Íslands um miðj- an næsta mánuð en tökur á Little Trip to Heaven hefjast í Garða- bænum, Hollywood Íslands, þann 24. ágúst. tora@frettabladid.is ■ VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á bls. 6 1 3 2 Um 22 milljarða. Tvö, FH og ÍA. Eva María Jónsdóttir. Hæfileikarík Hollywood- leikkona í Garðabænum Árum saman var ég nikkari en nikkarar eru þeir sem hittast annan hvern sunnudag niðri við Tjörnina þar sem börnin gefa bra bra brauð. Þangað koma nikkararnir með eitt eða tvö börn og nikka hver til ann- ars, stundum þunnir, stundum ekki, stundum að fara í mat til móður sinnar, stundum að koma úr mat hjá móður sinni. Þeir staldra við tjarn- arbakkann í tíu, fimmtán mínútur, nikka og láta sig svo hverfa með börnin. Orðaskipin eru í mesta lagi góðan daginn, yfirleitt er nikkið látið duga. Þetta er góður félagsskapur, engu síðri en Lions eins og Svavar Gests lýsir því ágæta félagi í merki- legri ævisögu sinni: Hugsað upphátt, það má kannski segja að nikkarar vinni á persónu- legri nótum en Lions en áhrif þeirra eru engu að síður gríðarleg í þjóð- félaginu. Nikkarar vilja vel. Þeir koma úr öllum stéttum, eru á ýmsum aldri og eiga sér mismun- andi sögu að baki. Það er algengur misskilningur að halda að þeir séu miklir drykkjumenn, jafnvel kvennamenn, það er yfirleitt langt í frá. Nikkarar horfa mikið á vídeó. Og aðra hvora helgi, þegar það er þeirra helgi, fá þeir allir sömu hugmynd- ina: að gefa öndunum og leig- ja vídeó. Nikk, niður við Tjörnina, nikk, úti á vídeó- leigu, nikk, nikk; nikkarar eru fljótir að koma auga á aðra nikkar- ar og nikka til þeirra. Nikkið er þeirra ósýnilega handaband. En nú er unglingadrykkjuhelgi. Nikkarar í bænum, leigja sér kannski vídeó, kíkja á barinn, fara kannski í mat til mömmu. Og gaml- ir nikkarar fyllast kvíða, þeir hugsa með hryllingi til afkomanda sinna einhvers staðar í tjaldi, við ömur- legar aðstæður, fullum, örvuðum, jafnvel að hlusta á hljómsveitina Í svörtum fötum og nikkarar hrylla sig og hitti þeir hver annan nikka þeir á samúðarfullan hátt. Þeir vona það besta; að helgin sleppi, að það bætist ekki hópinn, því nikk- arar eru hógvær hópur sem kærir sig ekki um of marga nýja félaga. ■ 38 31. júlí 2004 LAUGARDAGUR KVIKMYNDIR BALTASAR KORMÁKUR ■ Var búinn að útiloka Juliu Stiles úr leikarahóp A Little Trip to Heaven er hann fékk símtal frá sameiginlegri um- boðsskrifstofu þeirra í USA. LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ Kl. 14:00 Helga Ingólfsdóttir flytur minningabrot úr 30 sumra sögu. Kl. 15:00 Ítölsk strengjatónlist frá 17. öld. Bachsveitin í Skálholti Kl. 17:00 Strengjakvartettar eftir L. Boccherini og J. Haydn. Skálholtskvartettinn Kl. 21:00 Íslensk og evrópsk tónlist frá endurreisn og barokktíma. Eyjólfur Eyjólfsson tenór, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðla og Arngeir H. Hauksson teorbe. SUNNUDAGUR 1. ÁGÚST KL. 15:00 Sjá laugard. kl. 21:00. Kl. 17:00 Messa með þátttöku Eyjólfs Eyjólfss. og hljóðfæraleikara. MÁNUDAGUR 2. ÁGÚST KL. 15:00 Sjá laugard. kl. 15:00. AÐGANGUR ÓKEYPIS SUMARTÓNLEIKAR Í SKÁLHOLTSSKIRKJU 26. júní - 2. ágúst 2004 VIÐEY Gönguferðir öll þriðjudagskvöld kl 19:30. Fjölskyldudagar á sunnudögum. Ljósmyndasýning í skólahúsinu um Viðey á fyrri hluta 20. aldar. Tuttugu ný fræðsluskilti í þorpinu. Minnum á listaverk Richard Serra, nýjan upplýsingabækling, ókeypis hjólalán, grillaðstöðu, tjaldstæði, veitingasölu, fjölda gönguleiða, óspillta náttúru og friðsæld. Nánari upplýsingar: arbaejarsafn.is, videy@rvk.is og s: 693-1444. ÚTIMÁLNING OG VIÐARVÖRN HELGARPISTILLINN Lifi nikkarar „Nikkarar eru fljótir að koma auga á aðra nikkarar og nikka til þeirra. Nikkið er þeirra ósýnilega handaband.“ ■ Sem er? Sniðug hugmynd fyrir þá sem þola ekki olíu- borna saltputta eftir poppát. Poppgaffallinn er þríarma plastgaffall sem stungið er ofan í popppoka. Halda skal á poppgafflinum með þumalputta, vísifingri og löngu- töng og stinga á kaf í popppokann. Ýmist er hægt að veiða mörg popp úr pokanum í einu eða fá sér eitt og eitt í einu allt eftir lystugleika. Þetta stórfína hjálpartæki hentar líka sérstaklega vel fyrir þá sem finnst poppið aldrei nógu salt því á toppi gaffalsins er saltbaukur með loki. Saga? Poppgaffallinn sást fyrst í búðum hér á landi í vor við kynningu á Orville-örbylgjupoppi en gaffallinn fylgdi þá frítt með popppokanum úti í búð. Eftir því sem best er vitað á poppgaffallinn uppruna sinn í Belgíu. Fáanlegt? Hægt er að panta poppgaffalinn í gegnum heimasíðuna popcornfork.com. Kostar? 12 í pakka kosta um 700 íslenskar krónur. | DÓTAKASSINN | FOREST WHITAKER Verður í Garðabænum í ágúst. ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON SKRIFAR UM HELGARPABBA BALTASAR KORMÁKUR Segir Juliu Stiles hafa leikið Aron Eckhart út af sviðsbrúninni og upp í stúku. Dótið? Poppgaffall JULIA STILES Ein heitasta leikkona í heimi heillaði Baltasar er hann sá hana á sviði í London.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.