Tíminn - 14.11.1972, Side 4
4
TÍMINN
l’riðjudagur 14. nóvember 1972
Iðja, félag verksmiðjufólks
heldur félagsfund i Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu, fimmtudaginn 16. þ.m. kl.
8.30 e.h.
Dagskrá:
Fulltrúi ASI, Ólafur Hannibalsson, ræðir
um 32. þing ASI og svarar fyrirspurnum.
önnur mál.
Mætið stundvislega.
Félagsstjórnin
STÚLKUR - ATVINNA
Stúlka óskast til skrifstofustarfa, þarf að
vera góð i islenzku og vélritun.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist afgreiðslu
blaðsins fyrir 18. þ.m. merkt ,,Vandvirk
1001”.
SINFÓNIUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Tónleikar
i iIuskólabiói, limmtudaginn lfi. nóvember kl. 20,30.
Stjórnandi I)r. Ilóbert A. Ottósson.
Kfnisskrá: Mo/art: Sinfónia nr. 29 í Es-dúr. Mahler:
Sinfónía nr. 1 (frumflutningur).
Abgiingumibar i Kókabúb I.árusar Rlöndal, Skólavörðu-
stig og Bókaver/.lun Sigfúsar Kymundssonar, Austur-
slræti.
Skrifstofuhúsnæði
til leigu
Höfum til leigu skrifstofuhúsnæöi aö Skipholti 70. Stærð
um þaö bil 110 fermetrar.
Upplýsingar i simum 36282 og 81165 á skrifstofutima.
Veljið yður í hag - Úrsmíði er okkar fag
Nivada
OMEGA
JUpina
pifflponr
Magnús E. Baldvlnsson
laugavegi 12 - Slmi 22104
Helgason hf. STEINIÐJA
f/nholll 4 Slmar 26677 og 14254
PIPULAGNIR
Stilli hitakerfi —
Lagfæri gömul hita-
kerfi
Set upp hreinlætis-
tæki — Ilitaveitu-
tengingar
Skipti hita — Set á
kerfið Danfoss-ofn-
ventla
SÍMI 17041
Við veljum runlal r-mi,
það borgcrr sig
'
mmlal . ofnar h/f.
« Síðumúla 27 . Reykjavík
Símar 3-55-55 og 3-42-00
Pétur Axel Jónsson
Útgerðarspjall!
Undirrituðum er tjáð,að ætlun
ráðamanna Timans sé, að les-
endur blaðsins geti með góðu
móti fengið sem gleggstar fréttir
af landbúnaðarmálum, iðnaði svo
og sjávarútvegi. Er meiningin að
reyna að upplýsa lesendur i
þessum þáttum um það.sem frétt-
næmt þykir hverju sinni. Verða
fréttir þessar mest af Suðvestur-
horninu, en allar fréttir annars
staðar að vel þegnar.
Sildveiðar i Norðursjó ganga
illa þessa dagana vegna
stöðugrar vestanáttar á miðunum
og siðast er fréttist, að kvöldi
12.11., var vonzkuveður á
miðunum. Einn bátur hefur
skarað fram úr i sumar á sild-
veiðunum þar, en það er Gisli
Arni, skipstjóri Eggert Gislason.
Skipið hóf veiðar i byrjun júni og
fiskaði fyrir 19 milljónir; kom þá
heim til Reykjavikur og lá hér i
mánuð. Siðan hann fór aftur.er
hann búinn að fiska fyrir 4.5 mill-
jónir, þannig að aflaverðmæti
skipsins er orðið 23.5 milljónir
siðan i júnibyrjun. barf varla að
efast um,hvaða bátur verður meö
mesta aflaverðmætið á þessu ári.
2500 klukkustunda lýsing
við eðlilegar aðstæður
(Einu venjulegu perurnar
framleiddar fyrir svo
langan lýsingartíma)
NORSK ÚRVALS
HÖNNUN
Heildsala Smásala
Einar Farestveit & Co Hf
Bergstaðastr. 10A Sími 16995
Geta má þess.að á árinu 1971 var
Gisli Árni aflahæstur, hvað afla-
verðmæti snertir.með um 35 mill-
jónir yfir árið. Einhvern oröróm
heyrði ég um, að þegar búið væri
að fiska fyrir þetta háar fjár-
hæðir, borgaði sig bezt að leggja
skipunum vegna ranglátra
skatta.
Esjar m/b er bátur,er keyptur
hefur verið til Reykjavikur (áður
Birtingur). Er hann á linu og
hefur gengið heldur stirðlega,
landaði i siðustu viku 9 tonnum
hjá Bæjarútgerð Reykjavikur. A
fostudaginn landaði Baldur
(troll) 24 tonnum.en honum hefur
. gengið vel að undanförnu, þá
landaði Sæborg, skipstjóri
Magnús Grimsson, 11 tonnum
eftir sólarhrings útivist.og var
tæpt tonn af stórlúðu i aflanum.
Arinbjörn Re landaði 12.11.45
tonnum,þar af 30 tonn af þorski,
en hann hafði verið að veiðum
fyrir Austurlandi. Blakkur, um 50
tonna bátur, eigandi Valdimar
Einarsson, er nýkominn af hand-
færaveiðum,og hélt hann sig mest
við Langanesið. A einum og
hálfum mánuði fengu þeir á ann-
að hundrað tonn, sem er mjög
gott.
Ætlunin er i næsta þætti að hafa
verstöðvarnar á Suðvestur-
horninu með, en það er ekki unnt
að þessu sinni.
Togararnir:
Flaggskip togaraflotans, eins
og er a.m.k., fór á veiðar i gær,
sunnudag. Suma hefur undrað,
hvað hefur tafið skipið svo mjög,
en það var búið að liggja hér um
hálfan mánuð. Margar skýringar
eru á þvi, hæst ber það,að ekki
hefur enn verið gengið frá
samningum við sjómenn að þvi er
varðar skuttogarana, og fór
skipið að lokum á veiðar með 23
menn um borð (26-30 menn eru á
gömlu togurunum) upp á væntan-
lega skuttogarasamninga. Þá
þurftu einnig einhverjar við-
BÆNDUR
Við seljum:
Fólksbíla,
Vörubila,
Dráttarvélar,
og allar gerðir
búvéla.
BÍLA, BÁTA OG
VERÐBRÉF ASALAN.
Við Miklatorg.
Simar IK675 og IK677.
I-kar=ur
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270 sm
Aðrar slærðir smíDoðar eítir beiðni.
GLUGGAS MIÐJAN
Siðumúla 12 - Simi 38220
gerðir að fara fram á skipinu
áður en það gæti hafið veiðar.
Skipstjóri á Vigra er Háns Sigur-
jónsson, áður skipstjóri á
Þormóði Goða og siðast á Viking,
og fylgja honum og öllum,sem að
skipinu standa, árnaðaróskir,
með von um.að Hansa bregðist
ekki bogalistin frekar en fyrri
daginn. Mjög tregt hefur verið
hjá togurunum að undanförnu,
enda hafa veðurguðirnir leikið þá
grátt. Karlsefni er i dag að landa
heima ca. 80 tonnum, eftir 15
daga veiðiferð, en þetta var fyrsti
túrinn.sem Ragnar Fransson er
skipstjóri á skipinu.og verður þvi
að telja þennan túr sem hálf-
gerðan prufutúr. Þorkell Máni er
lagður af stað til Þýzkalands með
90 tonn og á að selja á fimmtudag
Þormóður goði er með um 80 tonn
eftir 12 daga útivist, Hjörleifur
(áður Ingólfur Arnarson) er að
selja 110 tonn i Þýzkalandi i dag.
Jón Þorláksson er með um 60 tonn
eftir 12 daga, og Hallveig Fróða-
dóttir er með 90 tonn eftir 12 daga
útivist, þannig að ekki er hægt að
segja, að þeir, sem eiga von á
nýju skutskipunum,brosi neitt, ef
þannig heldur áfram. En fiskinn
verðum við að fá hvort sem það er
með taþi eða hagnaði bókhalds-
lega. Freyja, litill togari, eigandi
Gunnar Hafsteinsson,hefur gert
það jafnt og gott, en þar um borð
eru ekki nema 14 menn, þar sem
hún fellur undir bátasamningana.
Freyja hefur landað 70-100
tonnum i hverjum túr, siðan
stoppað i tvo daga til að hvila
mannskapinn, þvi að þar um borð
er unnið i tólf tima en hvilt i sex.
Siðast.er ég frétti af henni.var
Pétur Þorbjörnsson skipstjóri að
reyta eitthvað af steinbit fyrir
vestan, en steinbiturinn , sem
fengizthefur að undanförnu,hefur
verið sérstaklega vænn og góður
til vinnslu.
Spánarskipunum margum-
töluðu, en sá fyrsti þeirra heitir
Bjarni Benediktsson, seinkar
vegna breytinga,er gerðar hafa
verið á þeim. Er von til þess.að
Bjarni Benediktsson komi ein-
hvern timann i Desember. Er það
nafn vel til fundið, þvi sama er
hvar menn standa i pólitik, þá er
það staðreynd, að þó aðrir hafi
barizt fyrir stofnun Bæjarút-
gerðar, þá var ekki hægt að reka
endahnút á stofnun hennar nema
með atkvæði Bjarna heitins
Benediktssonar, sem þá var
borgarstjóri. Væri arftökum
hans i þvi embætti hollt að
minnast þess og stuðla að frekari
uppbyggingu hennar með þvi að
leyfa henni að reisa frystihús og
sjá til þess.að henni sé stjórnað
vel, en það siðar nefnda var jafn-
framt krafa Bjarna heitins, er
hann lagði blessun sina yfir
stofnun hennar.
Miklar kröfur eru nú gerðar til
frystihúsanna vegna Bandarikja-
markaðsins. Eru nefndar ýmsar
tölur, sem allar ber að taka með
varúð. I næsta þætti ætla ég að
ræða um svinariið,sem Vatnsveit-
unni og Rafmagnsveitunni liðst
að framkvæma, þegar fiskverk-
unarhús eiga i hlut.
Pétur Axel Jónsson,
_ÖGFRÆÐI-
iKRIFSTOFA
/ilhjálmur Amason
Lckjargötu 12.
(Iönaöarbánkahúsinu
Slmar 24635 7 16307
hrl.
3. h.)
bankinn er bakhjarl
BÚNAÐARBANKINN