Tíminn - 14.11.1972, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 14. nóvember 1972
TÍMINN
13
Skátafélag stofnað
í Hveragerði
Ahugi á skátastarfi virðist hafa
aukizt mjög nú i kringum sextiu
ára afmæli hreyfingarinnar á
dögunum.og ný skátafélög eru
stofnuð viða um land um þessar
mundir. Við segjum hér frá einu
þeirra, þaö var stofnað i Hvera-
gerði á afmælisdaginn, annan
nóvember, og heitir Strókur, þeir
eru margir gufustrókarnir á
staðnum og þetta nafn þvi ein-
kennandi fyrir hann.
Laugardaginn 4. nóv. unnu svo
fyrstu Hvergerðingarnir skáta
heitið alls 42, og hafði öllum
foreldrum veriö boðið aö vera
viðstaddir athöfnina. Gestum var
boðið til kaffidrykkju og á meðan
sungu hinir nýbökuöu skátar
skátalög og höfðu i frammi skáta-
hróp eins og vera ber um skáta.
Sonja Andrésdóttir félagsforingi sýnir félagsmönnum merki
Skátafélagsins Stróks.
Sá fyrsti fékk ókeypis gistingu
Klp—Reykjavík
Nýja Miðborgarstöð lög-
reglúnnar, sem er til húsa i Toll-
stöðinni viö Tryggvagötu, var
formlega tekin i notkun kl. 20,00 á
föstudagskvöldið. Þá kom fyrsta
vaktin til starfa og hafði þegar i
nógu að snúast.
Fyrsta bókunin þar, var eins og
hjá lögreglustöðinni viö Hlemm
þegar hún var tekin i notkun,
íslenzk refsi-
framkvæmd
Almennur félagsfundur verður
haldinn i Sakfræðingafélagi
Islands miðvikudaginn 15. nóv.
n.k. og hefst kl. 20,30 i Lögbergi,
húsi lagadeildar Háskóla Islands.
Mun Hildigunnur Oiafsdóttir af-
brotafræðingur flytja erindi, sem
hún nefnir „Nokkur einkenni
islenzkrar refsiframkvæmdar”.
heimsókn gamals og góös við-
skiptavinar, sem lét sjá sig rétt
20 minútum eftir að stöðin var
tekin í notkun. Var hann fluttur i
fangageymsluna og þakkað þar
með fyrir innlitið. Sama sagan
endurtók sig i næstu fimm skipti,
en þeir sem þar áttu i hlut fengu
ekki allir gistingu i fanga-
geymslunni heldur ókeypis heim-
keyrslu.
Leiðrétting
Þau mistök urðu hér i blaðinu á
sunnudag, þar sem sagt var frá
heimsókn á Hvolsvöll, að Lands-
bankinn var sagður leigja sýslu-
skrifstofunni efri hæð hússins fyr-
ir starfsemi sina. Þetta er ekki
rétt, heldur byggðu rikið og bank-
inn húsið i sameiningu, og nota
hvort sina hæð. Þetta leiðréttist
hér með.og jafnframt er beðið af-
sökunar á rangfærslunni.
NORSKU
Skátarnir taka iagið undir stjórn Ragnheiðar Sigurjónsdóttur sveitarforingja.
Frá stofnfundinum. Eftirvæntingin meðal hinna ungu fundarmanna leynir sér ekki.
landhelgisKORTIN
fást á ritst|órn
Tímans.
Send i póstkröfu.
Takmarkaö upplag.
Verð krónur 45.
Allurágóöi rennur i Landhelgissjóðinn.
,Öruggur akstur' í Borgarnesiog Akranesi
Nú um helgina héldu tveir
klúbbanna öruggur akstur, aðal-
fundi sina: 1 Borgarnesi á laugar-
dag, á Akranesi á sunnudag.
Fundirnir fóru fram á hefð-
bundinn hátt með verðlaunaaf-
hendingu Samvinnutrygginga
fyrir 5,10 og 20 ára öruggan
akstur — samtals til 64ra
bifreiöaeigenda — umræðum,
kaffiveitingum og sýningu
umferðarkvikmyndir.
Hörður Valdimarsson fyrrver-
andi lögregluvarðstjóri i Reykja-
vík, flutti erindi á báðum fundun-
um og sýndi litskuggamyndir
máli sinu til skýringar.
Fundirnir voru allvel sóttir.
Ollum er ávallt heimill
aðgangur aö fundum klúbbanna.
Stjórnir beggja klúbbanna voru
endurkosnar. Formaður Borgar-
ness-klúbbsins er Aðalsteinn
Björnsson bifreiðarstjóri, en
Akraness-klúbbsins Jóhannes
Jónsson bakarameistari.