Tíminn - 29.11.1972, Síða 4
4
TÍMINN
Miðvikudagur 29. nóvember 1972
K'MTTpp^:
Prinsessan flýtir
sér um of.
Brezkur dómstóll á nú mikinn
vanda fyrir höndum. Anna prin-
sessa hefur tvivegis verið tekin
föst fyrir of hraðan akstur. t
fyrra sinnið slapp hún með
áminningu, en þegar hún braut
umferðarlögin nokkrum dögum
siðar var ekki hægt að láta mál-
ið niður falla. En leyfist konung-
bornu fólki að brjóta lög? Nei,
segja yfirvöldin, en samt sem
áður er tæpast hægt að dæma
prinsa og prinsessur. Það eru til
einhver forn lög, sem segja svo
um að þeir, sem standa næstir
krúnunni verði ekki dæmdir af
veraldlegum dómstólum. Er þvi
liklegast að prinsessan sleppi
með áminningu i annað sinn.
En dómarar i Bretlandi eru
samt sem áður harðir við
konungborið fólk. Ekki alls fyrir
löngu var frændi prinsessunnar,
jarlinn af Lichfield dæmdur fyr-
ir að aka bil undur áhrifum
áfengis. Missti hann ökuleyfið i
tvöár. Annar frændi hennar var
dæmdur fyrir mun alvarlegra
brot. Það var Mountbatten lá-
_____...____ varður af Burma, sem var
dæmdur i sekt fyrir að blanda
"*---n-----' vatni saman við mjólk, sem seld
var frá búgarði hans i
Hampshire.
Loks
blöskraði Svium.
Christina Prinsessa af Sviþjóð
var nýlega á ferð i Bandarikjun-
um og vakti þar mikla eftirtekt
eins og kóngafólk gerir jafnan
þar i landi. En Amerikuferð
hennar vakti einnig athygli i
Sviþjóð, og eru heimamenn þar
yfir sig hneykslaðir á klæða-
burði prinsessunnar. Þótti Svi-
um efnið i kjól, sem hún var i i
mikilli veizlu i Los Angeles,
vera heldur spart notað og
blöskrar Svium ekki hvað sem
er i þeim efnum.
Blöð i Bandarikjunum spör-
uðu hvergi rúm til að birta
myndir af prinsessunni i flegna
kjólnum og i Sviþjóð kepptust
blöðin um að birta sömu myndir
og hneyksluðust ákaflega á þvi
myndaefni, sem þau voru sjálf
að birta.
☆ ☆ ☆
Smágjöf handa Jackie.
Ari Onassis er ekkert smá-
smugulegur þegar um er að
ræða gjafir fyrir eiginkonuna.
Flestir eiginmenn mundu telja
sæmilega gott að gefa konum
sinum demant, en gamli mað-
urinn er nú staddur i Suður-
Afriku, ásamt syni sinum
Alexander og 30 jarðfræðingum
og verkfræðingum, og eru þeir
að skoða álitlega demants-
námu, sem er til sölu og ætlar
Ari að gefa konu sinni námuna
þegar hann hefur gengið frá
kaupunum. Myndin, sem hér
fylgir með af hjónunum, er tek-
in er þau héldu upp á fjögurra
ára brúpkaupsafmæli sitt i New
York fyrir skömmu.
,íP
Blóðsuguveizla.
Giinter Sachs er þekktur fyrir
samneyti sitt við fagrar konur
og peningaeyðslu. Hann hélt ný-
lega upp á afmæli sitt með mik-
illi veizlu, og voru allir gestirnir
klæddir eins og blóðsugur, eins
og þeim er lýst i kvikmyndum.
Meðal gestanna var mikið af
riku og frægu fólki, má þar
nefna kvikmyndahöfundinn
Boger Vadim, sem eitt sinn var
kvæntur Birgitte Bardot, var
reyndar fyrsti eiginmaður
hennar, en afmælisbarnið var
sá þriðji i röðinni, og Roman
Polanski, sem gert hefur kvik-
mynd um blóðsugur, og lék þá-
verandi eiginkona hans, Sharon
Tate, aðalhlutverkið, en hún var
siðar myrt á hryllilegan hátt.
Veizlan stóð til klukkan fimm
að morgni og fór að sögn prúð-
mannlega fram, enda var sterk-
ur lögregluvörður umhverfis
glauminn og var engum hleypt
inn, sem klæddur var, eða leit út
fyrir að vera nokkurn veginn
venjuleg manneskja.
Myndirnar eru af nokkrum
veizlugestanna, á þeirri efstu er
leikkonan Elsa Martinelli, þá
barón Guy de Rothchild og frú
og á neðstu myndinni er
Cristina Onassis, dóttir auðjöf-
ursins, en samkvæmisherra
hennar er Mick einhver Flick,
sem við vitum engin deili á.
DENNI
DÆMALAUSI
Ég vil enga inn. Það þýðir, að ég
hafði mitt fram, en samt fæ ég
ekkert.