Fréttablaðið - 26.07.2004, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
MÁNUDAGUR
LEIKIÐ Í ÁRBÆNUM Einn leikur fer
fram í 12. umferð Landsbankadeildar
karla í kvöld. Fylkismenn taka á móti
Grindvíkingum í Árbænum og hefst viður-
eign liðanna klukkan 20.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
LÉTTIR SMÁM SAMAN Leifar af
úrkomusvæði við austurströndina sem
þornar upp síðdegis. Hiti 12-20 stig, hlýjast
norðaustan til. Sjá síðu 6.
26. júlí 2004 – 202. tölublað – 4. árgangur
● hús ● fasteignir
Finnst gamli steinninn
mjög fallegur
Bragi Þór Jósefsson:
● skoðar vestfirðina
Ritstýrir Icelandic
Geographic
Þórdís Hadda Ingvadóttir:
▲
SÍÐA 18
● frumsýndur á íslandi
Bjargvætturinn
Erla B. Skúladóttir:
▲
SÍÐA 30
● sigraði ásamt ólöfu maríu á akranesi
Birgir Leifur
vann aftur
Íslandsmótið í golfi:
▲
SÍÐA 20
ENGIN LEIT UM
HELGINA Engin skipu-
leg leit fór fram að Sri
Rahmawati um helgina.
Konunnar hefur verið
saknað í réttar þrjár vikur.
Fyrrverandi sambýlismaður
hennar verður yfirheyrður í
dag. Hann kærir ekki úrskurð um framleng-
ingu á gæsluvarðhaldi. Sjá síðu 2
ÁFENGISAUGLÝSINGAR KÆRÐAR
Lýðheilsustöð hefur sent inn fimm kærur
frá áramótum vegna meintra brota á banni
við áfengisauglýsingum. Flestar auglýsingar
á gráu svæði. Ákæruvaldið vill skýrari lagaá-
kvæði um auglýsingabannið. Sjá síðu 10
DEMÓKRATAR FYLKJA LIÐI
Demókratar hefja flokksþing sitt í dag. Mik-
ið er í húfi fyrir demókrata því þrátt fyrir að
John Kerry hafi meiri stuðning í skoðana-
könnunum er staða Bush sterkari þegar
hvert fylki er skoðað fyrir sig. Sjá síðu 12
TEKIÐ Á MANSALI
Fórnarlömb mansals trúa ekki sögum um
örlögin sem bíða þeirra, segir sýslumaður-
inn á Keflavíkurflugvelli. Hann telur árangur
hafa náðst bæði í baráttunni gegn smygli á
fólki og fíkniefnum. Sjá síðu 14
36%50%
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Kvikmyndir 30
Tónlist 30
Leikhús 30
Myndlist 30
Íþróttir 22
Sjónvarp 32
ÍSRAEL, AP Um sjötíu þúsund Ísra-
ela tókust í hendur og mynduðu
keðju fólks allt frá Gaza til
Jerúsalem í gær.
Með þessu var fólkið að mót-
mæla áformum Ariels Sharon
forsætisráðherra um að eyði-
leggja nokkrar landtökubyggðir
gyðinga og draga herliðið frá
Gaza-svæðinu.
Náði óslitin röð mótmælend-
anna níutíu kílómetra milli land-
nemabyggðarinnar Gush Katif á
Gaza til gamla borgarhlutans í
Jerúsalem. Málið er mikið hitamál
og sýnir sú mikla þátttaka í mót-
mælunum hversu djúpur ágrein-
ingurinn er en leiðtogi landnem-
anna segir að fólk mótmæli því að
gyðingar séu reknir burt frá landi
sínu.
Forseti þingsins var meðal
þrjátíu ísraelskra þingmanna,
þar af fimmtán úr Likudflokki
Sharons sem tóku þátt í mót-
mælunum.
Um átta þúsund landnemar á
Gaza búa þar í rúmlega tuttugu
víggirtum byggðum og ráða yfir
vatnslindum og helmingi alls
lands. Á hinum helmingnum búa
þrettán hundruð þúsund Palestínu-
menn við kröpp kjör.
Meirihluti Ísraelsmanna styður
áætlun Ariels Sharon forsætisráð-
herra um að landtökumenn skuli
fara á brott frá Gaza og að innlima
í Ísrael stórar landtökubyggðir á
Vesturbakka Jórdanar. ■
REYKJAVÍKURBORG „Það eru ekki
miklar líkur á því að niðurrif Aust-
urbæjar verði heimilað,“ sagði
Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi
Reykjavíkurlistans og forseti borg-
arstjórnar, er Fréttablaðið leitaði
eftir viðbrögðum hans vegna niður-
staðna úr skoðanakönnun um hugs-
anlegt niðurrif Austurbæjar. Þar
kom fram að ríflega sjö af hverjum
tíu Reykvíkingum vilja að Austur-
bæjarbíó fái að standa. Gallup
framkvæmdi könnunina að beiðni
Hollvinasamtaka Austurbæjarbíós.
Steinunn Birna Ragnarsdóttir,
talsmaður samtakanna, segir
niðurstöðurnar afdráttarlausar.
„Ég vænti þess og vonast til þess að
borgaryfirvöld hlusti á afgerandi
rödd borgarbúa sem þau starfa í
umboði fyrir og finni húsinu verð-
ugt hlutverk,“ sagði Steinunn.
Á.H.Á. byggingar, núverandi
eigandi Austurbæjar, hefur stefnt
að því að láta rífa húsið og byggja
þess í stað íbúðar- og verslunar-
húsnæði. Árni Þór sagði að málið
væri í vinnslu hjá skipulags- og
byggingarnefnd en það fékk nei-
kvæð viðbrögð í grenndarkynn-
ingu.
„Það eru skiptar skoðanir um
málið í borgarráði og í nefndinni
þó svo að það sé ekkert óeðlilegt
við það að málið sé ekki komið í
formlegt kynningarferli,“ sagði
Árni Þór. Hann segir að von sé á
því að skipulagsnefnd afgreiði
málið frá sér í ágúst.
Hann segir að endanleg
ákvörðun um hvort rífa eigi húsið
eða ekki verði ekki tekin með til-
liti til fyrirætlana eigenda húss-
ins.
„Eigandinn keypti húsið og tók
þar áhættu með það hvort leyfi
fengist fyrir niðurrifi eða ekki,“
segir Árni Þór.
Aðspurður hvort borgin myndi
hugsanlega koma að þeim rekstri
sem hugsanlega gæti farið fram í
húsinu, segir hann það algjörlega
útilokað.
sda@frettabladid.is
Austurbæjarbíó
verður ekki rifið
Forseti borgarstjórnar segir ekki miklar líkur á að niðurrif Austurbæjar-
bíós verði heimilað. Skoðanakönnun Gallup sýnir að sjö af hverjum tíu
Reykvíkingum eru á móti niðurrifi.
MÓTMÆLA ÁFORMUM UM BROTTFLUTNING
Tugir þúsunda Ísraela mynduðu keðju með því að takast í hendur allt frá Gaza til Jerúsalem. Með þessu er fólkið að mótmæla áformum
Ariels Sharon um að eyðileggja landtökubyggðir gyðinga og draga herliðið frá Gaza-svæðinu.
M
YN
D
A
P
Ísraelsmenn mótmæla fyrirhuguðum brottflutningi frá Gaza:
Mynduðu mótmælakeðju
frá Gaza til Jerúsalem
Týndi lyklunum:
Fundust í
fótlegg
ÍRAN Íranskur maður sem týndi
lyklunum sínum fyrir sextán
árum komst að því sér til mikill-
ar furðu að þeir voru ígræddir í
fótlegg hans allan tímann.
Maðurinn fór á sjúkrahús eft-
ir að hafa fundið mikinn verk í
fótlegg. Röntgenmyndir leiddu
það hins vegar í ljós að í fót-
leggnum voru lyklar.
Maðurinn skaut slysaskoti af
riffli sextán árum áður og slas-
aði sig á fótlegg. Hann hafði
farið á sjúkrahús og riffilskotið
var fjarlægt. Ekki er vitað
hvernig lyklarnir festust í fót-
legg mannsins. ■
NÝSTÁRLEGAR SUMARBÚÐIR
Unglingar þjálfaðir í glæpaverkum.
Sumarbúðir fyrir
fingralanga:
Þjálfun
í glæpum
RÚSSLAND Lögreglan í Rússlandi
réðst til inngöngu í sumarbúðir
sem reknar voru sem þjálfunar-
búðir fyrir glæpamenn. Ungling-
ar hlutu þar meðal annars þjálfun
í því hvernig skipuleggja ætti og
framkvæma þjófnaði og hvernig
bregðast ætti við yrðu þeir hand-
teknir. Auk þess voru fyrirlestrar
um það hvernig stjórnskipun er
háttað meðal glæpamanna í und-
irheimum.
Alls voru um þrjátíu unglingar
í búðunum og tveir „þjálfarar“.
Enginn var handtekinn en lög-
reglan rannsakar nú hvort hugs-
anlega séu reknar fleiri slíkar
sumarbúðir á svæðinu. ■
01 25.7.2004 23:32 Page 1