Fréttablaðið - 26.07.2004, Síða 8

Fréttablaðið - 26.07.2004, Síða 8
8 26. júlí 2004 MÁNUDAGUR ÞJÓNUSTA Boðið verður upp á ókeypis úttekt á fellihýsum, hjól- hýsum, tjaldvögnum og hesta- kerrum að Hesthálsi í Reykjavík fram að verslunarmannahelgi. Það eru Vátryggingafélag Ís- lands og Frumherji sem bjóða upp á þessa ókeypis úttekt til að fólk geti gengið úr skugga um að allur búnaður sé löglegur og í lagi áður en lagt er upp í ferðalag um versl- unarmannahelgina. Skoðunarstöð Frumherja að Hesthálsi í Reykjavík annast út- tekt eftirvagnanna frá og með mánudegi 26. júlí til föstudags 30. júlí klukkan 8.00-20.00. Öllum stendur þessi þjónusta til boða ókeypis fram að verslun- armannahelgi. ■ Blair ver umbreytingu Verkamannaflokksins Tony Blair sætir vaxandi gagnrýni frá vinstriarmi Verkamannaflokksins. Hann varði umbreyt- ingu flokksins í ræðu um helgina og hét flokksmönnum sigri í þriðju þingkosningunum í röð. ENGLAND, AP Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands og leiðtogi breska Verkamannaflokksins, varði um helgina þá umbreyt- ingu sem orðið hefur á Verka- mannaflokknum frá valdatöku hans í flokknum. Blair sagði flokkinn hafa alla burði til að vinna þingmeirihluta þriðja kjörtímabilið í röð en það hefur aldrei gerst áður í breskri stjórnmálasögu. „Þetta hefur verið fjarlægur draumur margra kynslóða flokks- manna en nú er möguleikinn inn- an seilingar,“ sagði Blair á stefnu- mótunarþingi Verkamannaflokks- ins í Coventry um helgina. Þing- kosningar fara fram í Bretlandi á næsta ári en Verkamannaflokkur- inn komst til valda undir stjórn Blairs árið 1997 og vann síðan sögulegan stórsigur í þingkosn- ingunum árið 2001. Blair tók við forystuhlutverki í Verkamannaflokknum af Neil Kinnock árið 1994 og umbreytti flokknum á skömmum tíma. Undir forystu Blairs fékk Verkamannaflokkurinn heitið „New Labour“ og snéri um leið baki við sósíalískri hugmynda- fræði sinni að verulegu leyti. Flokkurinn reyndi með góðum árangri að höfða til bresku mið- stéttarinnar og atvinnulífsins. Árangurinn lét ekki á sér standa og vann Blair stórsigur í sínum fyrstu þingkosningum í forystu Verkamannaflokksins árið 1997. Að undanförnu hefur þó gætt mikillar óánægju innan flokks- ins, einkum þeirra sem tilheyra vinstriarmi flokksins, með stefnu stjórnar Blairs í veiga- miklum málum. Gagnrýnendur Blairs segja hann hafa gleymt uppruna flokksins og þeim hefð- um sem flokkurinn byggir á. Í ræðu sinni viðurkenndi Blair að órói væri innan flokks- ins en hann svaraði gagnrýninni fullum hálsi: „Ef hugmynda- fræðileg gildi eiga sér ekki sam- svörun í veruleikanum, þá eru þau andvana fædd,“ sagði Blair og bætti við: „Þegar við breyt- um stefnunni til að koma til móts við væntingar fólks í nú- tímanum, erum við ekki að hverfa frá gömlu gildunum, heldur að láta þau móta nýju stefnuna,“ sagði Blair. ■ Dauðadæmdur fangi: Úrskurðaður þroskaheftur TEXAS, AP Tæpum þremur áratug- um eftir að Walter Bell var fyrst lokaður inni á dauðadeild í fang- elsi í Texas hefur hann verið úr- skurðaður þroskaheftur. Þar með aukast líkur á því að hann verði ekki tekinn af lífi. Hinn fimmtugi Walter Bell er sá maður sem hefur dvalið lengst á dauðadeild í Texas, alls 29 ár eða rúma hálfa ævina. Þangað var hann sendur eftir að hann var fundinn sekur um að myrða tvær manneskjur. Síðan þá hafa verj- endur hans barist fyrir því að dauðadómur yfir honum verði mildaður. ■ ■ LÖGREGLUFRÉTTIR SVONA ERUM VIÐ SKATTSKYLDAR HEILDARAT- VINNUTEKJUR ÍSLENDINGA ÁRIN 2002 OG 2003 Veldu náttúruliti frá Íslandsmálningu Allar Teknos vörur framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli. ÍSLANDS MÁLNING akrýlHágæða málning Íslandsmálning Sætúni 4 Sími 517 1500 Útimálning Viðarvörn Lakkmálning Þakmálning Gólfmálning Gluggamálning Innimálning Gljástig 3, 7, 20 Verð frá kr. 298 pr.ltr. Gæða málning á frábæru verði Veggfóður og borðar Skandinavísk hönnun HEILBRIGÐISMÁL „Þetta er ekki full- nægjandi þjónusta fyrir fólk með alvarlega áverka eða veikindi,“ sagði Jóhannes M. Gunnarsson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala - háskólasjúkrahúsi um þær upplýsingar Ólafs R. Ingi- marssonar, læknis á bráða- og slysadeild LSH, að þar geti fólk þurft að bíða í allt að fjórar klukkustundir eftir að fá læknis- hjálp. Fram kom í Fréttablaðinu um helgina að vitað væri um tvö til- vik þar sem börn sem bæði voru beinbrotin þurftu að bíða í um þrjár klukkustundir á biðstofu deildarinnar áður en þau fengu læknisaðstoð. Jóhannes kvaðst ekki vita til þess að neitt sérstakt væri að ger- ast í starfsemi bráða- og slysa- deildar, annað en það að slíkir álagspunktar gætu komið upp hvenær sem væri. „Það er alltaf meiri hætta á því á sumrin vegna þess að þá er ein- faldlega meira um slys,“ sagði hann. „Það er full mönnun á bráða- og slysadeild og þar hefur ekkert verið dregið úr. Sú þjón- usta á því að vera því sem næst eða alveg eins og hún er venju- lega. Bráðaþjónustan hefur alltaf verið látin ganga fyrir og það er óbreytt.“ ■ Flóttamenn skotnir: Ráðamenn fyrir dómi ÞÝSKALAND, AP Síðustu réttarhöldin yfir fyrrverandi ráðamönnum Austur-Þýskalands vegna dauða fólks sem var skotið á flótta til Vestur-Þýskalands eru hafin. Hans Joachim Böhme og Sieg- fried Lorenz sem áttu sæti í for- sætisnefnd austur-þýska komm- únistaflokksins voru dregnir fyrir dómstól ákærðir fyrir að hafa ráð- ið ákvarðanatöku sem varð til þess að þrír einstaklingar voru skotnir til bana við flótta til Vesturlanda. Kommúnistastjórnin í Austur-Þýskalandi hafði fyrir- skipað að allir sem reyndu flótta yrðu skotnir til bana. Fastlega er búist við að réttar- höldin yfir Böhme og Lorenz verði þau síðustu sinnar tegundar í Þýskalandi. ■ Langur biðtími á bráða- og slysadeild LSH: Ekki fullnægjandi þjónusta JÓHANNES M. GUNNARSSON Framkvæmdastjóri lækninga á LSH segir bráða- og slysadeild fullmannaða. TONY BLAIR Sætir vaxandi gagnrýni fyrir að hverfa frá hinni gömlu hugmyndafræði Verkamannaflokksins. Hann lætur þó engan bilbug á sér finna. EFTIRVAGNAR Boðið verður upp á ókeypis skoðun á eftirvögnum af öllum tegundum fram að verslunarmannahelgi. BÍLVELTA Á DETTIFOSSVEGI Er- lenda ferðamenn sakaði ekki þeg- ar bifreið þeirra hafnaði utan vegar með þeim afleiðingum að hún valt á Dettifossvegi. Fjar- lægja þurfti bifreiðina með krana að sögn lögreglunnar á Húsavík. STAL TVEIMUR BÍLUM Tilkynnt var um stuld á tveimur bílum til lögreglunnar á Akureyri um helgina. Báðir bílarnir fundust skömmu síðar annars staðar á Akureyri. Talið er að sami aðili standi á bak við báða stuldina en lögregla hafði ekki náð að hafa hendur í hári hans. 2003 422,3 milljarðar 2002 405,4 milljarðar Heimild: Hagstofan Allir eftirvagnar: Ókeypis skoðun 08-09 25.7.2004 21:03 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.