Fréttablaðið - 26.07.2004, Síða 23
MÁNUDAGUR 26. júlí 2004 23
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR
Chelsea bar sigurorð af Celtic, 4-2,í fyrsta leik Champions World-
mótsins, sem fram fer í Bandaríkjun-
um, á laugardagskvöldið. Serbneski
framherjinn Mateja
Kezman skoraði tví-
vegis fyrir Chelsea
þrátt fyrir að spila að-
eins síðari hálfleikinn,
Rússinn Alexei
Smertin skoraði eitt
mark og Eiður Smári
Guðjohnsen skoraði eitt og lagði
upp fyrra markið fyrir Kezman. Craig
Beattie skoraði bæði mörk Celtic.
Úrúgvæ tryggði sér þriðja sætið íSuður-Ameríkubikarnum í fót-
bolta á laugardaginn þegar liðið bar
sigurorð af Kólumbíu, 2-1. Vicente
Sanchez var hetja Úrúgvæ í leiknum
en hann skoraði sigurmark liðsins
þegar tíu mínútur voru
til leiksloka. Það má
segja að hann hafi
fengið uppreisn æru
því varin vítaspyrna frá
honum í undanúrslita-
leiknum gegn Brasilíu
kom í veg fyrir að Úrúgvæ kæmist í
úrslitaleikinn. Fabio Estoyanoff kom
Úrúgvæ yfir stax á 3. mínútu en
Sergio Herrera jafnaði metin fyrir
Kólumbíu úr vítaspyrnu áður en
Sanchez kom til skjalanna.
Jose Antonio Camacho, þjálfariReal Madrid, hefur varað David
Beckham við því að hann geti ekki
gengið að því vísu að
eiga fast sæti í byrjun-
arliði Real Madrid á
komandi tímabili.
„Það á enginn fast
sæti í liðinu og aðeins
þeir sem eru í formi
spila. Bestu leikmenn
heims eru þeir sem eru í formi til að
spila en ekki þeir sem eru frægir,“
sagði Camacho.
Ítalski ökuþórinn Jarno Trulli segistekki ætla að aka fyrir Renault-liðið
á næsta tímabili í Formúlu 1
kappakstrinum. Samingur Trullis
rennur út eftir þetta
tímabil og hefur hann
verið orðaður við
Toyota-liðið sem tryg-
gði sér nýlega þjón-
ustu Þjóðverjans Ralfs
Scumachers á kom-
andi tímabili. „Ég er
mjög sáttur við þá ákvörðun sem ég
hef tekið og hlakka mikið til næsta
tímabils,“ sagði Trulli og vildi ekki
gefa upp fyrir hverja hann æki.
Vince Carter, helsta stjarnaToronto Raptors í NBA-deildinni í
körfubolta, hefur lítinn áhuga á því
að spila áfram með liðinu. Hann hef-
ur að því fregnir herma frá Bandaríkj-
unum farið fram á að
vera skipt og eru for-
ráðamenn Toronto nú
að reyna að finna út
hvernig þeir geta skipt
honum án þess að
veikja liðið. Carter vill
helst af öllu spila með
New York Knicks og vitað er að
menn þar á bæ eru meira en tilbún-
ir til að fá þennan snjalla leikmann í
sínar raðir.
Claudio Ranieri, fyrrum knatt-spyrnustjóri Chelsea og núver-
andi þjálfari Valencia, hefur tröllatrú
á því að maðurinn sem hann tók við
af hjá Valencia, Rafael Benitez, eigi
eftir að ná góðum árangri með Liver-
pool en Benitez tók við Liverpool í
sumar af Gerard
Houllier. „Lið hans eru
eins og ítölsk lið, þau
pressa út um allan völl
og reyna að vinna
boltann til að geta sótt
hratt. Hann gerði
þetta mjög vel með
Valencia og þrátt fyrir að hann sé
með nýja leikmenn þá breytir hann
ekki um stíl. Hann er ekki of varnar-
sinnaður og á eftir að gera Liverpool
að skemmtilegu liði,“ sagði Ranieri.
Seinni dagur Meistaramótsins í frjálsum íþróttum fór fram í Laugardalnum í gær:
FH-ingar hrósuðu sigri í liðakeppni
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Engin stórtíðindi
litu dagsins ljós á seinni degi
Meistaramóts Íslands í frjálsum
íþróttum sem fram fór á Laugar-
dalsvelli. Engum keppenda tókst
að tryggja sér þátttökurétt á
ólympíuleikunum í Aþenu sem
hefjast um miðjan næsta mánuð.
Síðasta tækifærið til að fjölga í
ólympíuhóp okkar Íslendinga,
verður í Bikarkeppninni sem
fram fer um þarnæstu helgi.
FH-ingar hrósuðu öruggum
sigri í stigakeppninni eins og við
mátti búast.
Vonast var eftir að Þórey Edda
Elísdóttir, FH, myndi gera ein-
hverjar rósir en hún lét sér nægja
að fara yfir 4,20 að þessu sinni.
Magnús Aron Hallgrímsson
bar sigur úr býtum í kringlukast-
inu, eins og við mátti búast, með
kasti upp á 59,13 metra, sem er
hans besti árangur til þessa, en
það dugir ekki inn á ólympíuleik-
ana.
Sunna Gestdóttir var maður
Meistaramótsins að þessu sinni en
hún sigraði í öllum þremur grein-
unum sem hún tók þátt í og í gær
voru það 200 metrarnir eftir
harða baráttu við Silju Úlfarsdótt-
ur úr FH, sem einnig fagnaði sigri
í þremur greinum.
Fréttablaðið hitti Sunnu Gests-
dóttur að máli eftir mót. „Ég get
ekki verið annað en ánægð með
árangurinn um helgina. Fyrri dag-
urinn var virkilega góður og mjög
ánægjulegt að ná að setja Íslands-
met í 100 metrunum. Ég hef náð
að bæta mig mikið að undanförnu
í 100 metrunum en auðvitað mun-
aði mikið um að á laugardaginn
voru auðvitað algjörar kjörað-
stæður. Nú hef ég sett aukna
pressu á sjálfa mig í langstökkinu
og tel mig geta gert betur þar og
ætlunin er að fara út um næstu
helgi og reyna að fylgja þessum
árangri eftir – maður verður að
nýta meðbyrinn og mér finnst ég
vera á mjög góðu róli núna,“ sagði
Sunna Gestsdóttir. ■
BJARNI OG SILJA Fagna hér sigri FH-
inga í stigakeppni Meistaramóts Íslands í
frjálsum íþróttum sem fram fór í Laugardal
um helgina.
46-47 (22-23) Sport 25.7.2004 22:42 Page 3