Tíminn - 18.02.1973, Page 11
Sunnudagur 18. febr. 1973 TÍMINN
11
1:1!;!:
legt, sem við þurfum á að halda i
daglegu starfi. t svo umfangs-
miklu starfi, sem hér er rekið,
skortir þar ekki verkefni, og það
er mikils um vert, að geta
brugðizt fljótt við, þegar skyndi-
lagfæringa þarf við, og þurfa þá
ekki að leita lengra en til sjálfs
sin.
Þá eigum við og brauðgerð,
stóra og vel búna, og ýmsir fleiri
nauðsynlegir þættir kom inn i
okkar rekstur og styrkja hann,
hver á sinn hátt. Hver þeirra er
jafnnauðsynlegur i daglegu starfi
og allir hjálpast þeir að við að
byggja upp sterkt fyrirtæki, sem
staðið getur traustum og
öruggum fótum.
4.5% aukning
— Svo að við vikjum nú aðeins
að rekstrinum þá langar mig til
að spyrja um mjólkurmagnið,
vinnsluna og fjármálahliðina.
— Ef við tökum yfirlit yfir inn-
vegna mjólk á svæðinu siðastliðið
ár, þá var hún 56 milljónir litra
eða rúmlega það. A árinu jókst
þetta magn um 2,4 milljónir litra,
eða 4,5.%
— Nú er þetta fyrirtæki stórt i
sniðum, hefur marga starfsmenn
og mikla sölu. Geturðu frætt mig
um hve mikil árleg velta ykkar
er?
— Þvi miður liggja ekki fyrir
ennþá allir reikningar siðast
liðins árs, svo að veltan er mér
ekki kunn eins og er. Hún er þó
einhvers staðar á öðrum
milljarði, og það ber vel að
athuga, að það er aðeins velta
Mjólkursamsölunnar og þeirra
fyrirtækja, sem hún rekur.
Þarna koma þvi hin stóru tengdu
fyrirtæki, eins og Mjólkurbú Fló-
amanna og Mjólkursamlagið i
Borgarnesi, ekki inn i dæmið, en
væru þau tekin með, hækkaði út-
koman úr þessu annars stóra
dæmi verulega.
Til að gefa hugmynd um upp-
hæðina get ég hér gefið upp veltu
ársins á undan, eða 1971, en hún
var rúmlega 1.085.000.000.00
króna, og á siðasta ári hefur hún
orðið nokkru meiri.
Flókin rannsókna-
starfsemi er stunduð
stuðningslitið
— Nú er öll ykkar framleiðsla á
sviði matvöru og hlýtur þvi að
vera háð ströngu gæðamati.
Hvernig getið þið haldið fram-
leiðslunni i hæsta gæðaflokki,
þegar mörg utan að komandi
vandamál steðja að, eins og t.d. .
heilsa nautgripanna?
— Við rekum mjög fullkomna
rannsóknarstofu, sem Guð-
brandur Hliðar dýralæknir veitir
forstöðu. Þar er innihald hrá-
efnisins af ýmsum aðskota-
gerlum og efnum rannsakað áður
en það fer i vinnslu. Einkum
A skrifstofu i söludeild, en sú deild stjórnar öllum innkaupum og dreifingu framleiOsluvaranna.
framleiðsluvara ykkar rennur
beint til bænda og hve mikið fer i
vinnslu og dreifungu?
— Það er einn mikilvægasti
þátturinn i öllum rekstrinum, að
með skipulagningu svo stórs
fyrirtækis á svo stóru svæði,
gefst kostur á, að mun stærri hluti
vöruverðsins renni til fram-
leiöenda, en ella mundi, og það
eru ein sterkustu rökin fyrir þvi,
að þetta fyrirkomulag sé til
hagsbóta og gagns. Þetta hlutfall,
sem bændurnir fá af söluandvirði
allra vara, þegar búið er að
greiða allan kostnað, þar með
talinn flutningskostnað, annan en
þannfrá býlinu til mjólkurbúsins,
sem bændur greiða sjálfir með
frádrætti á útborgunarverði
mjólkurstöðvarinnar.
Siðast liðið ár nam þetta hlut-
fall, sem framleiðandinn fékk af
andvirði seldra framleiðsluvara
72.18 af hundraði, sem er miklu
hærra en viðast hvar, ef ekki alls
staðar erlendis. Þetta hlutfall
hefur siðustu árin, að minnsta
kosti verið svipað, eða þetta
rúmlega 70%.
getur of mikið penicillininnihald
hennar spillt gæðum hennar
mjög, en ofmikið innihald slikra
efna getur haft það i för með sér,
að ekki sé hægt að framleiða
góða vöru úr nýmjólkinni, eins og
t.d. skyr og hvers konar sýrðar
vörur, osta og fleira. Þess vegna
er fylgzt mjög náið með magni
þessara efna.
Þvi miður hefur dýralækna-
skortur rikt hér, og þvi hafa þessi
efni verið meira i höndum bænda
sjálfra, en æskilegt gæti talizt. Þó
að flestir séu þeir grandvarir
menn, sem vita, hvað þeir eru að
gera, eru þó alltaf til þeir, sem
nota lyfin óvarlega, eða einfald-
lega finna ekki júgurbólguna
nógu fljótt, sem hefur sizt betri
afleiðingar fyrir framleiðsluna.
Við höfum stuðningslitið gert
hér ýmsa hluti upp á okkar ein-
dæmi og hafið framkvæmdir, sem
annars staðar eru i höndum opin-
berra aðila. Af þvi má nefna
rannsóknir á júgurbólgu og út-
rýmingu hennar, en þegar hefur
nokkuð áunnizt i þeim sökum, en
þar eins og viðar segir dýra-
læknaskorturinn til sin. Annars
ætti nú að láta forstöðumann
rannsóknastofunnar fræða menn
um þess hluti fremur en mig.
72.18% af andvirði
seldrar vöru til bænda
— Hversu mikið af söluvirði
Vikulegar spár um
væntanlega sölu
Þá snúum við okkur til sölu-
stjóra Mjólkursamsölunnar, scin
cr Oddur Helgason, en hann mun
l'ræða okkur um skipulagningu
aðdrátta og sölu á liinu viðáttu-
mikla svæði, sem fyrirtækið tckur
yfir, cn islcnzkt drcifbýli og
verðurfar á það til að valda
márgháltuðum erfiðlcikum i allri
þcirri starfscini, cins og fram
kcmur hjá Oddi, scm hcfur orðið:
— A sölusvæði Mjólkursam-
sölunnar er mikill munur á inn-
vigtunarframleiðslu mjólkur-
innar i sveitunum. Sá munur er
um eða yfir 100% frá lágmarki til
hámarks. Lágmarkið er i
nóvember og fram i janúarlok, en
hámarkið siðan i mai og fram i
júli. Þessi framleiðslusveifla er
öfug við nýmjólkursöluna, þannig
að mjólkursalan er mest hér að
vetrinum, en minnst yfir há-
sumarið.
Þess vegna þarf mikið og gott
skipulag á vöruframleiðsluna i
fyrsta lagi, og svo á aðdrætti til
þess að mæta þessum stóru
sveiflum.
Við tökum tiltölulega litið magn
Oddur Helgason, sölustjóri.
Hérna verður maltbrauðið frá brauðgérð Mjólkursamsölunnar til, en hún erstærstallra brauðgerða á
landinu.