Tíminn - 18.02.1973, Side 15

Tíminn - 18.02.1973, Side 15
Sunnudagur 18. febr. 1973 TÍMINN 15 ELD- HÚSIÐ HVAÐ ER gott eldhús? Hvernig á að útbúa það? Hvernig er bezta eldhúsborðið? Hve hátt náum við? Hvað er hagræðing i eldhúsi? MIKILL timi fer til ónýtis dag hvern i flestum eldhúsum, vegna þess, að hlutir og verkfæri eru ekki á réttum eða hagkvæmum stað. Það er að segja, sem næst þeim stað, sem þeir oftast eru notaðir á. Með svo einfalda stað- reynd i huga, er það hverjum auðskilið, að mikinn tima og mörg skref má spara með góðu fyrirkomulagi og rétti niðurröðun i eldhúsinu. Stattu úti á miðju eldhúsgólfinu og virtu niðurröðunina i eldhúsinu fyrir þér af athygli, með ákveþn- ar spurningar i huga. Til dæmis: Eru stóru og litlu verkfærin rétt staðsett? Væri það lausn, að færa til inni- hald i nokkrum skúffum? Væri ef til vill bót i þvi, að flytja einstak- an hnif i aðra skúffu? Er það öruggt að fiskispaðinn sé við hlið- ina á eldavélinni? Af nógu er að taka, þvi það er satt, að eldhús eru stærsta vinnusvæði hvers lands, en jafn- framt það, sem ofterlögð minnst rækt við. Um nokkuð langt skeið hefur verið tilhneiging til að ætla eldhúsum sem minnst rúm i ibúð- um og þessa gætir oft enn. Þó ætla margir nægjanlegt rúm til eldhússins, og hafa þá i huga margþætt hlutverk þess sem vinnusvæði og matstaðar. Að gera ráð fyrir rúmgóðum mat- stað i eldhúsinu frá upphafi getur komið sér vel, jafnvel burtséð frá máltiðunum. Þvi oft og tiðum kemur hann að fullum notum, sem vinnusvæði þar sem má sauma, teikna og lima. Börnin geta ennfremur leikið þar og lært. En hvort sem við höfum litið eða stór, gamalt eða nýtt eldhús, eru alltaf tækifæri til að betrum- bæta sitt hvað, þó sumir sjái þá lausn eina að henda öllu gamla draslinu, til þess eins að setja inn nýtt, sem eitt nægir engan veg- inn til að gera gott eldhús. Einkenni góðs eldhúss eru meðal annars þessi: Það er rúm- gott, rétt vinnusvæða skipan og búið fullnægjandi vélakosti. Leyfi fjárhagur ekki nema allra nauð- synlegasta útbúnað við upphaf- lega gerð eldhússins, er rétt að gera þá þegar ráð fyrir auknum tækjakosti. Rétt er að gera ráð fyrir að hægt sé að koma fyrir og tengja kæliskáp, frystikistu, hrærivél og fl. Nokkrar auka-innstungur i gömlu eldhúsi geta gjörbreytt vinnuaðstöðu i þvi og kostnaður við slika breytingu^er hverfandi. En áður en hafizt er handa um minnstu breytingu i eldhúsi, er rétt að spyrja: Hvað gerist i eldhúsi? í eldhúsi eru unnin margvisleg og all ólik störf, sem eðlilega skipta þvi i mismunandi vinnu- svæði. Litum á hvað gerist þegar matreitt er. Við skulum lita á aðalmáltið dagsins, sem er tima- frekust. 1. Hráefni tekið fram úr kæliskáp, frystikistu og búri. (Geymslu, skápum.) 2. Hráefnið er hreinsað og skorið. 3. Hráefnið er útbúið og unnið endanlega til suðu. 4. Maturinn er soðinn eða steiktur á plötu eða i ofni. 5. Maturinn er látinn i skálar og föt. 6. Maturinn er borinn fram. 7. óhreint leirtau fjarlægt. 8. Þvegið upp. 9. Hlutir settir á sinn stað, frá- gangur. Eldhús, sem innréttað væri þannig, að vinnan hæfist i einu horni þess og flyttist siðan með veggjum hringinn, þannig að end- að væri i öfugu horni væri kenni- lega rétt. En i reynd er lausnin ekki góð, þvi nauðsynlegt yrði að krossganga eldhúsið við vinnuna. Það er einmitt, það sem gerist, þegar unnið er i eldhúsi. Það er stöðugt gengið milli vinnusvæða. Margir hafa rannsakað hvar um- ferðin eða hreyfingin er mest. Hægt er að hugsa sér, að inn á uppdrátt af eldhúsinu væru dregnar göngulinur, hvert sinn sem gengið væri frá stað til staðar. Mundu þá koma fram dökkar breiðar linur á umferða- mestu stöðunum, grennri og ljós- ari annars staðar. Af þessu er auðvitað ljóst, að það væri kostur, ef vinnusvæði, sem tengd eru breiðu, dökku strikunum, lægju sem næst hvert öðru. Linurnar milli matargerðar vinnuborðs og eldavélar, milli matargerðar vinnuborðs og vasks og eldavélar og vasks verða á slikum uppdrætti skýrast dregn- ar. Það er þess vegna mikilvægt, að matargerðar vinnuborð, elda- Innrétting i eldhúsi sem fjallað er um i greininni. vél og vaskur séu staðsett náiægt hvert öðru. Hve hátt getum við náð Það er mikilvægt að vita hversu hátt við getum náð með góðu móti, til þess að raða skynsam- lega þeim hlutum, sem dags dag- lega eru mest notaðir. Þar með er engan veginn sagt, að efri skápar megi ekki ná alveg til lofts. En efstu hillur ætti þá að nota til geymslu á hlutum, sem sjaldan eru notaðir. Meðalhá kona nær með hægu móti þetta 190-200 cm. En flestar sjá ekki hvað hillurnar hafa að geyma fyrr en i 160 cm hæð. Yfir- skápar upp i 160 cm hæð eru þess vegna beztu geymslustaðirnir, vegna þess að ekki er þörf á að skipta eða breyta vinnustöðu til að nálgast hluti, sem eru varð- veittir á þessu svæði. Hver hlutur á sinum stað Hvort heldur sem er, að bertumbæta gamalt eldhús með einföldum og ódýrum aðgerðum, eða fjarlægja það gamla algjör- lega vegna nýsmiði, er mikil hjálp i þvi að gera sér grein fyrir hinum ýmsu vinnusvæðum i eld- húsinu. Það getur verið gott til hliðsjónar við hagkvæma niður- röðun tækja og aðra staðsetningu i eldhúsinu, þannig að tryggt sé að hlutirnir séu á þeim stað, sem þeir oftast eru notaðir. Eldhúsinu má skipta i 3-5 eða fleiri vinnusvæði. Algengust eru þrjú: uppþvottasvæði, matar- gerðarsvæði og eldunarsvæði. Fleiri geta þau orðið, ef er sér- stakt bökunarsvæði, þvottasvæði og matstað i eldhúsi verður að reikna sem sérstakt vinnusvæði. Vandinn er nú, hvernig á að inn- rétta hvert einstakt vinnusvæði og tengja þau saman. Nú kemur það fyrir, að sömu verkfæri og hráefni eru notuð við vinnu, sem fram fer á ýmsum stöðum i eld- húsinu. Til þess nú að koma reglu á skulum við taka til athugunar hin ýmsu vinnusvæði. (þýtt og endursagt) frh. BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA SCNDIBIL ASTOÐIN Hf EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR JER Jón E. Ragnarsson LÖGMAÐUR Laugavegi 3 • Sími 17200 P. O. Box 579 ___________________/S ,100 hugmyndir” — .Vinnusvæði þvotta SINNUM LENGRI LÝSING 2500 klukkustunda lýsing við eðlilegar aðstæður (Einu venjulegu perurnar framleiddar fyrir svo langan lýsingartima) NORSK ÚRVALS HÖNNUN Heildsala Smásala Einar Farestveit & Co Hf Bergstaðastr. 10A Simi 16995

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.