Tíminn - 18.02.1973, Blaðsíða 26
26
TIMINN
Sunnudagur 18. febr. 1973
Umsjón: fllfreð Þorsteinssoni
„Stöðvið hann, hvaö
sem það kostar..."
Orðrómur um að Ron
DaviS/ hinn frábæri mið-
framherji Southampton,
kosti yfir 200 þús. pund,
leiðir hugann að því að
bezti miðframherji Eng-
lands síðustu 45 árin var
keyptur á 2.500 þús. pund.
En það er upphæð sú, sem
Everton borgaði Tramer
Rover fyrir William Ralph
Dean, en hann var þekktur
undir nafninu Dixie Dean.
Dean gekk i Tramer Rovers 15
ára og var keyptur til Everton á
gjafverði. Knattspyrnuferill hans
virtist þó ætla að enda áður en
hann byrjaði. Skömmu eftir að
hann kom til Everton lenti hann i
umferðarslysi. Hann var á
mótorhjóli, með farþega fyrir aft-
an sig, þegar hann tók beygju inn
i hliðargötu, og stefndi framan á
bil, sem kom á fullri ferð á móti.
Dean tókst að kasta farþeganum,
sem var fyrir aftan hann, i drullu-
poll og bjarga honum. En sjálfur
lenti hann framan á bifreiðinni,
þarsem hann höfuðkúpubrotnaði.
Everton afskrifaði hann, en stál
vilji Deans kom honum á leik-
vang Everton, Goodison Park,
eftirsex mánuði. Meðan hann átti
við meiðslin að striða, þá æfði
hann sig daglega, með mjúkan
Timmy Lawton tók við stöðu
Dean hjá Everton, eftir að Dean
hafði kennt honum a 111 sem hann
kunni.
bolta og er taliö aö hann hafi þá
fengið hina frábæru skallatækni
sina.
Menn muna eftir Dean, sem
stórskotalegum skallara, en það
er mikið óréttlæti, þvi að hann
var stórkostlegur spilari — bolt-
inn virtist limdur við tærnar á
honum og þannig með hjálp
mjaðmasveiflna þræddi hann sér
leið gegnum frægustu varnir
Englands.
Dean lék 349 leiki fyrir Everton
og skoraði 379 mörk i þeim. Hann
yfirgaf Goodison Park 1938, þegar
hann fór til Notts County og siðan
til Irlands. En nú skulum við lita
á frægasta keppnistimabil hans.
Keppnistimabilið 1927-28 verð-
ur lengi minnisstætt i Englandi,
þá byrjaði Dean sitt frægasta
leiktimabil, eftir átta fyrstu leik-
ina með Everton i deildinni var
hann búinn að senda knöttinn tólf
sinnum i netið. Og svo rann upp
stóri dagurinn hjá Dean, þegar
hann lék sinn niunda leik i deild-
inni gegn Manchester United.
Hann var hreint óstöðvandi og
skoraði fimm mörk, hvert örðu
glæsilegra, þegar Everton vann
5:2. 1 næstu umferð deildarinnar
missti hann af einum leik, þvi að
hann þurfti að leika með landslið-
inu.
En hann var ekki lengi að vinna
það upp, hann skoraði ,,hat trick”
i næstu tveimur leikjum sinum,
gegn Portsmouth og Leicester. 1
byrjun janúar 1928 sló hann út
markamet Everton og var orðinn
langmarkhæstur i deildinni. En
svo fór að ganga illa fyrir Dean og
félögum, þeir voru slegnir út af
Arsenal i ensku bikarkeppninni
og stuttu siðar sigraði annað
Lundúnaiið, Tottenham, Everton
i deildinni.
En þessi töp féllu algjörlega i
skuggann, þegar Everton tókst að
ná jafntefli gegn erkifjendunum
Liverpool, en bæði liðin eru frá
hafnarborginni frægu. Dean gerði
þrjú mörk i leiknum. Næstu fjór-
ar umferðirnar voru martröð fyr-
ir Everton, þá tókst leikmönnum
liðsins ekki að skora mark og með
þvi skuzt Huddersfield einu stigi
upp fyrir Everton.
Leikmenn Everton gugnuðu
ekki, þeir fóru af stað aftur og i
næstu niu leikjum unnu þeir sjö
og gerðu tvö jafntefli og loka-
baráttan var að hefjast. Aðeins
þrir leikir voru þá eftir á
keppnistimabilinu. Dixie Dean
var þá heldur betur i sviðsljósinu,
þvi að spurningin var, hvort hon-
Hér á myndinni sést Dixie Dean skalla knöttinn i netið hjá Arsenal. Þetta var hans 60. mark á
keppnistimahilinu 1927-28 i deildinni og þar með sló hann út markainet Camsell og Everton varð Eng-
landsmeistari.
Hann skoraði 60 mörk
í 39 deildarleikjum
um tækist að slá ársgamalt met
George Camsells út, en hann
gerði 59 mörk á keppnistimabil-
inu á undan. Þegar þrir leikir
voru eftir var Dean búinn að
skora 51 mark og þurfti þvi að
skora niu mörk til að slá marka-
metið.
Dean gafst ekki upp, þegar
Everton mætti Aston Villa, skor-
aði hann tvö mörk i leik sem
Everton vann 3:2. t næstsiðasta
leiknum i deildinni, skoraði hann
fjögur mörk, en það var leikur
gegn Brunley, sem Everton vann
5:3. Nú þurfti hann að.skora þrjú
mörk i siðasta leiknum á
keppnistimabiiinu, til að slá út
markametið. Everton átti að
mæta Arsenal á Goodison Park og
leikvangurinn var þétt setinn
áhorfendum löngu fyrir leikinn.
Arsenal fékk óskastart, liðið
komst fljótlega yfir 1:0. En Dixie
Dean var ekki af baki dottinn,
hann var hvattur áfram af áhorf-
endum og allt ætlaði um koll að
keyra þegar hann jafnaði 1:1 með
skalla og nokkrum minútum
siðar skoraði hann úr vitasprynu.
Timinn var að renna út og áhorf-
endur hvöttu Dean óspart. En
leikmenn Arsenal léku af fullum
krafti og gáfu ekkert eftir, þeim
tókst að jafna 2:2. Dean virtist
vera ánægður með að hafa jafnað
markamet Camsell.
En þegar aðeins tvær min. voru
til leiksloka, fékk vinstri kant-
maðurinn, Alec Troup, knöttinn.
Hann brauzt i gegnum vörn
Arsenal og sendi knöttinn fyrir
markið. Varnarmenn Arsenal
reyndu að skalla knöttinn frá
markinu, en þeim tókst það ekki
— knötturinn barst til Dean, sem
stökk fram og tókst að skalla
knöttinn að marki. — Áhorfendur
voru farnir að fagna, löngu áður
en knötturinn small i netinu og
þegar leiknum lauk, brutust út
geysileg fagnaðarlæti og áhorf-
endur ruddust inn á völlinn og
tóku Dean og báru hann i gullstól.
METIÐ VAR HANS OG EVER-
TON SIGRAÐI DEILDAR-
KEPPNINA.
Þótt að það hafi munað aðeins
einu marki á meti Dean og
Camsell, er markamet DeaiiTmik-
ið erfiðara, þar sem hann lék i 1.
deild þegar hann setti það, en
Camsell lék i 2. deild þegar hann
setti metið árið áður. Dean skor-
aði samtals 82 mörk á
keppnistimabilinu 1927-28, 60 i
deildinni 3 i bikarkeppninni og 19 i
öðrum leikjum.
Menn segja að Dean myndi ekki
vera svona hættulegur ef hann
spilaði i dag, þvi að nú séu dagar
varnarleiksins liðnir. Að visu er
Verðlaunastyttan, sem Dean
fékk, þegar hann setti markamet-
ið, sem verður aldrei slegið.