Tíminn - 18.02.1973, Qupperneq 28

Tíminn - 18.02.1973, Qupperneq 28
28 TÍMINN Sunnudagur 18. febr. 1973 Collegium Maius, elzta bygging Krakow háskóla. Hér nam Kópernikus á árunum 1491-1495. „í MIÐJU ALLS ER SÓLIN" Fyrir nákvæmlega fimm öldum 19. febrúar 1473, fæddist Nikolaj Kopernik (viöa betur þekktur undir latneskri þýöingu nafns sins, Kópernikus) einn mesti snillingur mannkynsins i Torun, gamalli verzlunarborg i Póllandi. Minning Kópernikusar er höfö i sérstökum hávegum i Póllandi og kemur viöa fram i siöum og venjum þjóöarinnar. Kópernikus tilheyrir engu að siður éinnig mannkyni öllu, alveg eins og sól- miöjukenning hans er mikilvæg fyrir alheiminn. Margvisleg hafa verið örlög ólikra kenninga, tilgátna, vanga- veltna og uppgötvana gegnum alla sögu mannlegrar þekkingar. Sumar öðlast þegar viðurkenn ingu og teljast algild lögmál, hvort sem þær eru réttar eða ekki. Hindranir verða i vegi annarra áöur en þær öölast at- hygli manna og áratugir liöa unz þær ná almennri viöurkenningu. Þannig fór um byltingarkennda skoöun Kópernikusar á upp- byggingu sólkerfisins okkar. Þegar allt kom til alls hafði hún endaskipti á viðurkenndum sess mannsins og jarðarinnar i mið- depli alheimsins, og skipaði plánetu okkar og ibúum hennar á sinn rétta stað i geysistórum al- heimi. Þessi nýja kenning virtist brjóta i bága við heilbrigða skyn- semi, rótgrónar skoðanir, sem höfðu verið viðurkenndar um aldir, áhrifavald mikilla heim- spekinga og fornra fræðimanna og siðast en ekki sizt i bága við Bibliuna. Hún olli miklu umróti meðal samtimamanna og þvi er ekki að furða að viðtökurnar væru ekki þegjandi samþykktar. Kópernikus var hinn fullkomni menntamaður, vikingur að af- köstum og þjóðernissinni, sem tók rikan þátt i lifi samtimans, þjóðfélags- og stjórnmálum jarðarinnar og lands sins. Gullöld pólskrar menningar Hann óx upp úr frjósömum jarðvegi blómlegrar menningar, sem rikti i Póllandi á endur reisnartimabilinu. Hann út- skrifaðist úr einum elzta háskóla i Evrópu. Krakow Alma Mater. Hann drakk i sig alla mennta- og menningarstrauma, sem hann kynntist á meðan á nokkurra ára námsdvöl hans stóð við fremstu háskóla á Italiu, heimalandi endurreisnartimans og mannúðarstefnunnar, sem höfðu til frambúðar og með riku- legum ávexti fest rætur i pólskum jarðvegi. Jafnvel mikilvægustu uppgötv- anir byggjast á grundvelli, sem áður hefur verið reistur á hugs- unum og hugmyndum, sem urðu frjókorn nýrra kenninga. Og sér- hver mikill skapandi heldur áfram starfi fyrirrennara sinna. Orð Isaks Newton halda gildi sinu þótt aldir liði: ,,Ef ég hef séð meira en aðrir, er þaö vegna þess að ég stóð á öxlum risa”. Þótt Kópernikus kollvarpaði skoðunum Aristótelesar og Ptol- emeusar, gerði hann sér ljóst aö án þeirra hefði hann ekki getað sett fram nýjan sannleika. Við höfum engar beinar sann- anir fyrir þvi aö hann hafi þekkt verk Nikulásar frá Oresmo eða nafna þeirra frá Cusanus, en 1 rit- geröum simum ihuguðu þeirþann möguleika að jörðin væri ekki miðpunktur alheimsins og vera kynni að hún væri á hreyfingu. Höfundur sólmiðjukenningar- innar kynnti sér hinsvegar allt, sem benti til þess að grisku heim- spekingarnir og rithöfundar Rómverja hefðu látið sér koma slikt til hugar. Þar fann hann þá hvatningu, sem hann þurfti til að gera rannsóknir sinar og útreikn- inga. Kópernikus þekkti vel skoðanir arabiskra stjörnufræöinga, og aö öllum likindum hefur hann þegar ungur stúdent i Krakow byrjað að gera frumdrög að kenningu sinni um að sólin væri mið punktur alheimsins (sólmiðju- kenningunni). Krakowháskóli var á þessum tima miðstöð frábærra lögfræðinga, en laðaði einnig að sér erlenda húmanista. Þáver- andi höfuðborg Póllands stóð enn- fremur fremst Evrópuborga I stærðfræði og stjarnvisindum. Þar voru geymd stjörnufræði- og stjörnuspekihandrit hvaðanæva að úr Evrópu og afrit af ritum arabiskra stjörnufræðinga. Nýjar rannsóknir hafa sýnt að þau voru þar þegar i byrjun 15. aldar. Skipti sér ekki af stjörnu- speki eins og samtíma- menn hans Margir kandidatar úr Kradow- háskóla fóru siðan til háskóla á Italiu, Þýzkalandi, Ungverja- landi og Frakklandi, þar sem þeir urðu prófessorar i stjörnu- fræði. Rétt eftir aldamótin 1500 var fyrsta prófessorsembættið i stærðfræðilegri stjörnufræði stofnaö við Krakowháskóla fyrir beiðni velmetins borgara Stobners að nafni. Skömmu siðar var stofnað prófessorsembætti I stjörnuspeki. Stundum voru sex fyrirlesarar I stjörnufræði og stærðfræði samtimis við skólann. Þeirra á meðal voru stjörnu- fræðingar og stjörnuspekingar, sem nutu frægðar um alla Evrópu, svo sem Marcin Krol frá Zurawica og Sedziwoj frá Czechlo. A námsárum Kópernikusar kenndu Jan frá Glogow og Wojiech frá Brudzew þar. Um miðja 15. öld höfðu komið upp harðar deilur á milli fræðimanna i Krakow um nýjar skoðanir Buridans um eðli hreyf- ingar. Kópernikus hlaut sem sagt menntun sina I fremstu haákólum sins tima, þar sem hann kynntist margvislegum skoðunum. Ein- kennandi fyrir hann er að hann tók þær ekki upp gagnrýnislaust, þvi hann hafði þegar myndað sér sinar eigin skoðanir. Gott dæmi um þetta er að hann skipti sér aldrei af stjörnuspeki, þótt það væri vandi samtímamanna hans og jafnvel eftirkomenda hans mörgum árum siðar. Hann var náinn vinur Bernards Wapowski, Wawryniecs Kowin og allra samstarfsmanna sinna i háskólanum.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.