Tíminn - 18.02.1973, Blaðsíða 31
Sunnudagur 18. febr. 1973
TÍMINN
31
© AAenn og . .
muni þá og eigi að verða viðhorf
þjóðarinnar til þessa samkomu-
lags. Ég held, að það liggi i aug-
um uppi, að hér er um
nauðungarsamning að ræða, þvi
að einu raunverulegu rökin, sem
hæstv. stjórnarsinnar geta haft
fyrir þessu máli og helzt kynni að
vera hægt að taka tillit til, eru
þau, að Bretar mundu aftur beita
okkur ofbeldi, ef ekki væri á þetta
samkomulag fallizt. Ég er að visu
þeirrar skoðunar, að það sé
algerlega rangt og að Bretar
mundu alls ekki gera það. En eina
röksemdin, sem þó er helzt hægt
að færa fyrir þvi, að slikur samn-
ingur sé gerður, og stjórnar-
sinnar færa helzt fyrir honum, er
sú, að Bretar kynnu aftur að
gripa til nýrra ofbeldisverka. Það
er þess vegna ljóst, að hæstv.
stjórnarsinnar gera þennan
samning undir ótta frá brezku
herskipunum, undir ótta frá
brezku ofbeldi, og þess vegna
verður ekki hægt að lita öðruvisi á
þennan samning, ef hann verður
gerður, en sem nauðungarsamn-
ing, og það verður að lita á hann
samkvæmt þvi. Jafnframt verður
að lita á þennan samning þannig,
ef þjóðaratkvgr. er hafnað, að
hann sé gerður af islenzkum
aðilum, sem hafi ekkert umboð
haft til þess að gera hann. Nú-
verandi rikisstj. hefur ekkert
umboð til að gera þennan samn-
ing, núverandi þingmeirihluti
hefur ekkert umboð til að gera
þennan samning, vegna þess.að
það var allt annað, sem þeir
lofuðu i seinustu þingkosningum.
Þess vegna verður og hlýtur að
verða litið þannig á þennan
samning af islenzkum aðilum og
Islendingum i framtiðinni, að
hann sé gerður af umboðslausum
aðilum, nauðungarsamningur,
sem sé gerður af umboðslausum
aðilum, og á þann hátt hlýtur
islenzka þjóðin að vega hann og
meta á komandi timum”.
Verri en danski
samninqurinn
1901
,,0g það vil ég segja jafnframt,
að þó að nú sé verið að tala um
það, að deilan á milli okkar og
Breta sé búin og að nú verði aftur
sátt og samlyndi milli okkar og
Breta um þessi mál, að sann-
leikurinn er sá, að ef þessi
samningur verður samþ., þá er
deilan við Breta raunverulega nú
fyrst að hef jast, þvi að nú þurfum
við að sækja rétt i hendur þeirra,
sem þeir hafa aldrei áður haft,
þ.e. stöðvunarréttinn á útfærslu
fiskveiðilandhelginnar.
Þessi samningur, sem nú á að
gera, er að þvi leyti verri en
samningurinn, sem danska
stjórnin gerði fyrir okkar hönd
1901, að i honum var uppsagnar-
ákvæði, en i þessum samningi er
ekkert uppsagnarákvæði.
Islenzkir aðilar hafa þess vegna
samið verr fyrir þjóðina i þessu
máli en dönsk stjórn gerði fyrir 60
árum. Og vegna þess að Bretar
hafa með nauðung fengið
umboðslausa aðila hér á Islandi
til að gera þennan samning, þá
getum við ekki talizt vinir þeirra,
á meðan slikur samningur er i
gildi, og vinátta okkar og Breta
getur þvi aðeins komizt i eðlilegt
horf á ný, að þessi samningur
verði felldur niður, og fyrir þvi
mun verða barizt, þótt hæstv.
rikisstj. hafi nú dregið niður hinn
islenzka fána i þessari baráttu''
Álit Nervos
Eétt er að- geta þess, að sá
dómari Alþjóðadómstólsins,
Padiollo Nervo, sem taldi dóm-
stólinn ekki eiga lögsögu i land-
helgisdeilu Breta og íslendinga,
gefur til kynna i séráliti sinu, að
hann liti á samninginn frá 1961
sem nauðungarsamning. M.a.
vitnar hann i brezkar heimildir til
sönnunar um, að Bretar hafi beitt
Islendinga ofbeldi innan 12 milna
markanna. Hinir dómararnir
látast ekki taka eftir þessu, enda
þótt athygli þeirra sé greinilega
leidd að þessu i greinargerðinni
frá islenzku rikisstjórninni. Þeir
kalla bersýnilega ekki allt ömmu
sina i þessum efnum og er það
skýring á þvi, að engin smáþjóð
hefur enn leitað til dómstólsins i
réttindabaráttu sinni, svo þröng-
sýnar og ihaldssamar eru þær
reglur, sem dómstóllinn álitur sér
skylt að fara eftir. Þ.Þ.
Norðurlandaráð
Við setningu þings Norður-
landaráðs ræddi forseti ráðsins,
Finninn V.J. Sukslainen um
náttúruhamfarirnar i Vest-
mannaeyjum, Anker Jörgensen,
forsætisráðherra Danmekrur, tók
fyrstur til máls i almennu um-
ræðunum aðlokinni þingsetningu,
og talaði hann þar um aðstoð til
handa Islendingum fyrir hönd
hinna forsætisráðherranna
þriggja.
Forseti Norðurlandaráðs fyrir
næsta kjörtimabil var kjörinn
Norðmaðurinn Kare Willoch, sem
er hægrimaður og á þá enginn
jafnaðarmaður sæti i for-
sætisnefnd ráðsins.
Af Islendinga hálfu tók fyrstur
til máls i almennu umræðunum i
gær ólafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra en siðar töluðu þeir Jó-
hann Hafstein alþingismaður og
Jón Skaftason alþingismaður, en
Jón er fulltrúi Islands i forsætis-
nefndinni.
t dag, sunnudag, eru svo á
mælendaskrá af hálfu íslendinga
þeir Gylfi Þ. Gislason, alþingis-
maður og Matthias Á. Matthisen
alþingismaður.
Að loknum sameiginlegum
fundi forstæisráðherranna og for-
sætisnefndarinnar var ákveðið að
skipa sérstaka undirnefnd til að
fjalla um aðstoð við íslendinga
vegna Heimaeyjar gossins. Mun
nefndin hafa lagt fram tillögur
sinar siðar i gær, eða á morgun.
hefur verið mikil laxveiði i
Væni.
Svo kom þar, að mennirnir
röskuðu jafnvægi náttúrunn-
ar, og gönguleiðum laxins upp
árnar, þar sem hann hafði
þryngt, lokuðust vegna raf-
virkjana og annarra slikra
mannvirkja. Þá fór að siga á
ógæfuhlið, og nú byggist við-
haldið nær einvörðungu á
klaki, sem stund hefur verið
lög á siðan 1959. Klakið hefur
þó valdið mönnum vonbrigð-
um. Stofninn virðist vera að
úrkynjast, og vöxtur fiskanna
er orðinn tregur. Oft ber við,
að hann nær ekki þeirri lág-
marksstært, fimmtiu senti-
metrum, að heimilt sé að
veiða hann, áður en hann
verður kynþroska og deyr
drottni sinúm.
Seiðunum er sleppt úr klak-
stöðvunum tveggja ára göml-
um, og eru þá sextán til tutt-
ugu og tveir sentimetrar að
lengd. Fiskarnir verða kyn-
þroska á tveim eða þrem ár-
um, stöku sinnum ekki fyrr en
á fjórða ári i vatninu. Þá far-
ast þeir svo að segja undan-
tekningalaust að loknum
hry gningartimanum.
Það er fiskifræðingurinn
Lennart Stenberg i Karlstað,
sem stungiðhefur upp á þvi að
gera einhvern hluta seiðanna
ófrjóan, áður en þeim er
sleppt, og v i 11 láta lax-
rannsóknarstöðina i Alvekarl-
by, rannsaka tæknimöguleika
á framkvæmd þessari. Hann
fullyrðir, að fiskurinn muni
vaxa betur og verða hraustari
en ella, ef þetta yrði gert.
Fleiri fiskifræðingar hafa fall-
izt á hugmynd Stengrens og
talið er vert að reyna hana,
ekki sizt vegna þess, að hún
gæti opnað nýja möguleika á
fiskirækt, ef hún heppnaðist.
© Mjólkursamsalan
mörkum til að halda þeim vágesti
i skefjum, og hafa lagt fram þann
kostnað, sem af þvi hefur hlotizt,
að langmestu leyti.
Siðan fékk ég heimild stjórnar-
innar til þess að hefja skipulagða
leit að júgurbólgu og rannsóknir á
henni á tilteknu svæði, þ.e.a.s. i
nærsveitum Reykjavikur, hjá
bændum, sem daglega senda
mjólk beint hingað. Þetta var
1967, sem við hófum þessar
rannsóknir, og þá kom strax i
ljós, að júgurbólgan var griðar-
lega útbreidd, og við teljum, að
enginn smitsjúkdómur hjá mólk-
urkúm,. valdi bændum meira
tjóni en júgurbólga. Hún sýnir sig
i ýmsu formi. Bráð júgurbólga
dylstengum, og gegn henni hefur
bóndinn vanalega aðgerðir þegar
i stað með tiltækum lyfjum. Eftjr
að bráðabólgan er gengin hjá
veitbóndinn ekki fyllil., hvort kýr
in er fulllæknuð, þvi að lengi get-
ur eimt eftir af bólgunni, og kem-
ur það bezt fram i lækkaðri nyt,
og veldur þvi verulega fjárhags-
tjóni. Þetta má kalla króniska
júgurbólgu, sem mjög erfitt er að
finna nema af fagmönnum.
Þriðja gerð júgurbólgu má svo
kalla væga eða dulda júgurbólgu.
Hún er geysiútbreidd og mjög
hættuleg. Hana getur dýralæknir
ekki fundið i fjósi við sínar venju
legu rannsóknaraðgerðir. Þá
verður rannsóknastofa að koma
til.
Þvi er i dag hugsanlegt að
bóndi, sem hefur við verulegt
júgurbólguvandamál að striða,
óski eftir rannsókn á mjókursýn-
um úr öllum mjólkandi kúm sin-
um. Þar með er lagður grundvöll-
ur að þvi að kanna smitið, og
hvers eðlis það er, en það er siðan
kortlagt. Séu það klasagerlar,
sem júgurbólgunni valda, verður
að kanna mótstöðu þeirra gegn
hinum ýmsu fúkalyfjum, sem
notuð eru sem júgurbólgulyf.
Þetta kemur til af þvi að sumir
klasagerlar geta öðlazt mótstöðu
gegn t.d. pencillini, hafi það verið
notað i mörg ár, og það verki þvi
ekki lengur til lækninga. Þá verð-
ur að finna það lyf, sem hæfir og
hefur fullar verkanir. Þetta er
mikið nauðsynjamál fyrir bænd-
ur, sem aldrei verður nógsam-
lega brýnt fyrir þeim. Baráttuna
verður að hefja strax, þvi að hún
fer fram i hans fjósi.
Ef við reiknum með að júgur-
bólgusmit annars staðar á land-
inu sé svipað og gerist á þessu til-
tekna rannsóknasvæði, má áætla,
að árlega verði islenzkir mjólk-
urframleiðendur fyrir 100 milljón
króna tjóniaf völdum júgurbólgu.
Það eru peningar, sem áttu að
koma nettó i vasa þeirra, en sem
aldrei sjást, vegna júgurbólgunn-
ar, svo að eitthvað má i sölurnar
leggja til að kveða þennan vágest
niður, og til þess höfum við nú frá
árinu 1970 fengið nokkurn opin-
beran styrk, sem að visu hrekkur
skammt, en er þó alltaf viður-
kenning fyrir starfinu, sem við
höldum áfram ótrauðir og
rannsóknum frá öllum landshorn-
um fjölgar ár frá ári. Nú er ég t.d.
að hefja úrvinnslu á rannsóknum
á árinu sem leið, en þær voru um
10.000.
Með það kveðjum við Guðbrand
og þá alla Mjólkursamsölumenn,
með óskum um góða framtið,
jafnframt þvi, sem við vonum, að
einhverjum kunni þessi skrif að
hala oröið að gagni, og menn
skilji nú betur en áður stöðu og
hlutverk þessa þarfa fyrirtækis,
sem rekið er með svo miklum
myndarskap. _ Erl. _
Drengurinn lézt
Drengurinn, sem lenti undir is á
Akureyri á föstudaginn komst
aldrei til meðvitundar, þrátt fyrir
itrekaðar lifgunartilraunir.
BJ
LANDSVIRKJUN
500 lítra ámokstursskófla
fyrir bilkrana óskast til kaups
Tilboð sendist Landsvirkjun, Suðurlandsbraut 14, Reykja-
Reykjavik: Gefjun Austurstræti 10
” Domus Laugaveg 91
Skóv. Pcturs Andréssonar Laugaveg 17
Hvammbergsbræður Laugaveg 24
Stjörnuskóbúð Laugaveg 96
” Skósalan Laugaveg 1
Skóhornið Giæsibæ / Hrisateig 41
Kópavogur Skóverzlun Kópavogs, Alfhóisvegi 5
Hafnarfirði: Skóverzl. Geirs Jóeissonar
Keflavik: Skóbúð Keflavikur
tsafirði: Skóverzlun Leós
Akranes: Staðarfell
Siglufirði: Verzlun Túngata 1
Seyðisfirði: Verzlun Túngata 15
og i kaupfélögum um land allt
IÐUNN — SKOGERÐ AKUREYRI
KULDASKÓR
Hinir vinsælu gærufóðruðu
kuldaskór frá
IÐUNNI