Tíminn - 03.05.1973, Page 15
Fimmtudagur 3. maí 1973
TÍMINN
15
Landskeppni við
Skota í Hlíðarfjalli
— keppt verður í
svigi og stórsvigi
DAGANA 5. og 6. mai n.k. fer
fram iandskeppni á skifium við
Skotland. Keppni þessi var fyrst
háð á isafirði árið 1970 og þá sigr-
uðu islendingar.
Nú fer keppni þessi fram i
Hliöarfjalli við Akureyri og sér
Skiðaráð Akureyrar um fram-
kvæmd mótsins. Keppendur
verða 4 karlar og 3 konur frá
hverju landi. Keppt verður i svigi
og stórsvigi.
Islenzku keppendurnir eru
þessir:
Margrét Baldvinsdóttir,
Margrét Þorvaldsdóttir
Margrét Vilhelmsdóttir allar frá
Akureyri.
Aslaug Sigurðardóttir, Reykjavik
og til vara
Guðrún Frimannsdóttir, Akur-
eyri.
Haukur Jóhannsson, Akureyri
Árni óðinsson, Akureyri
Hafsteinn Sigurðss. Isafirði
Gunnar Jónsson, fsafiröi
Guðjón Ingi Sverrisson, Reykja-
vik, og til vara:
Björn Haraldsson, Húsa vik og
Jónas Sigurbjörnss. Akureyri.
Fyirirliði er Hafsteinn Sigurðs-
son frá tsafirði.
Hermann Sigtryggsson, Akur-
eyri, er fulltrúi Skiöasambands-
ins við framkvæmd mótsins.
Skozka landsliðið er skipað
ungu og efnilegu skiðafólki, sem
keppt hefur viða um Evrópu við
góðan orðstir.
Keppni þessi ætti að geta orðið
mjög jöfn og spennandi.
Annað hljóð
í strokknum
hjó Fram
— sigraði Víking 4:1. Hefur skorað
12 mörk í tveimur síðustu leikjum
EFTIR mjög svo slaka
frammistöðu í meistara-
keppni KSI, þar sem
tslandsmeisturum Fram
tókst ekki að skora eitt
einasta mark, er komið
annað hljóð í strokkinn, en í
tveimur síðustu leikjum
sínum í Reykjavíkur-
mótinu hafa þeir skorað
samtals 12 mörk gegn 2.
Þeir sigruðu Ármann á
dögunum með 8:1. Og á
þriðjudaginn sigruðu þeir
Víking örugglega með 4:1.
Enginn vafi leikur á þvi, að
breytt leikaðferö liðsins frá þvi i
meistarakeppninni á sinn þátt i
velgengni liðsins nú, einkum
munar mikið um, að Marteinn
Geirsson skuli nú leika i stöðu
tengiliðs.
Fram lék undan vindi i fyrri
hálfleik og skoraði tvö mörk.
Fyrra markið skoraöi Eggert
Steingrimsson beint úr horn-
spyrnu, en siðara markiö skoraði
Erlendur Magnússon úr þvögu.
I byrjun siðari hálfleiks skoraði
Eirikur borsteinsson eina mark
Vikings, og var búizt við, að
Vikingum tækist að jafna, þar
sem þeir léku undan vindi. En
þrátt fyrir góða viöleitni tókst
þeim ekki að skora fleiri mörk.
Hins vegar voru Framarar á
skotskónum. Simon Kristjánsson,
ungur og efnilegur útherji hjá
Fram, skoraði þriðja mark félags
sins. Og undir lokin skoraði
Guögeir Leifsson fjórða markið,
en það er fyrsta mark hans með
Fram. Kannski engin tilviljun, að
fyrsta markiö, sem hann skoraði
fyrir Fram skyldi vera gegn hans
eldri félögum i Viking!
61,54 METRAR
í SPJÓTKASTI
KEPPNISTIMABIL
frjáIsiþróttafólks hófst sl.
föstudag á íþróttavellinum
Haraldur Korneliusson i keppninni á mánudaginn.
(Timamynd Róbert)
HARALDUR I SERFLOKKI
HARALDUR Kornelíusson
er i algerum sérflokki i
badminton á Islandi um
þessar mundir. Það
sannaði frammistaða hans
i nýafstöðnu Reykjavíkur-
móti, þar sem hann vann
þrefaldan sigur. Og það
afrek endurtók hann i
islandsmótinu, sem lauk á
mánudagskvöld. Sigur
hans i úrslitaleiknum í
einliðaleik — gegn hinum
gamalkunna kappa, óskari
Guðmundssyni— var svo
stór, að fara verður langt
aftur í tímann til að finna
hliðstæðu, en Harandlur
sigraði 15:0 og 15:4.
Gífurlegir yfirburðir Haralds í úrslitaleiknum í einliðaleik,
þar sem hann sigraði Óskar Guðmundsson 15:0 og 15:4
BARNALEIKTÆKI
*
ÍÞRÓTTATÆKl
Vélav«rktt»8l
BERNHAROS HANNESS..
Su3urland*braut 12.
Simi 35810.
Hvort tveggja var, að Haraldur
var í miklum ham i þessum leik
og lagði sig allan fram, og hitt, að
Óskar fann sig aldrei. Enda þótt
Haraldur sé góður, er þetta of
mikill munur.
Úrslitaleikurinn i tviliðaleik
var miklu jafnari og meira
spennandi, en þar lék Haraldur
ásamt Steinari Peterson gegn
Garðari Alfonssyni og Sigurði
Haraldssyni. Þurfti oddaleik til
að fá úrslit. Fyrstu lotuna unnu
þeir Garðar og Sigurður 15:12
Haraldur og Steinar unnu þá
næstu 17:14 og siöustu lotuna
15:11. Var þessi leikur mjög
spennandi eins og sést af
tölunum.
I tvenndarleiknum sigruðu
þau Haraldur og Hanna Lára
Pálsdóttir i úrslitum þau
Steinar Petersen og Lovisu
Sigurðardóttur 17:14 og
15:9. Þvi er ekki að neita,
að oftast hafa farið fram
meira spennandi úrslitaleik-
ir á Islandsmótinu und-
anfarin ár, einkum og sér I
lagi i einliðaleik. Það var sér-
stakt kappsmál fyrir Harald
að standa sig vel i þessum
leik, en með þvi að að sigra
vann hann til eignar stóran og
falleganbikar, sem Einar Jóns-
son gaf til keppninnar, en
Haraldur sigraði nú i þessari
keppnisgrein þriðja árið i röð.
bátttaka i tslandsmótinu i
badminton var meö mesta
móti, að þessu sinni, en þátt-
takendur voru á annað
hundrað talsins. Betri aðstaða
er fyrir áhorfendur að fylgjast
meö mótinu þegar þaö er háö i
Laugardalshöllinni en þegar
það fer fram i KR-húsinu eða
Valshúsinu. En þrátt fyrir
betri aðstööu, er eins og
badminton njóti sin ekki al-
mennilega sem keppnisiþrótt i
hinni stóru Laugardalshöll,
hvernig sem á þvi stendur.
Nánar veröur sagt frá
úrslitum i öðrum flokkum
siöar.
í Kópavogi með keppni i
spjótkasti kvenna og karla.
Arangur varð góður á okkar
mælikvarða, Asbjörn Sveinsson
UBK kastaði 61,54 m, sem er hans
langbezti árangur til þessa og i
fyrsta sinn, sem hann kastar
lengra en 60 metra. Þá sigraði
Arndis Björnsdóttir, UBK i spjót-
kasti kvenna, hún kastaði 39,18 m
en i ógildu kasti náði hún ágætu
kasti eöa vel yfir 40 metra.
Islandsmetiö er 39,60 m og það
getur falliö hvenær sem er.
Æfingar eru nú almennt að
hefjast utanhúss hyá
frjálsiþróttafólki og ýmsir hafa
náö góðum árangri á æfingum.
Guðni Halldórsson, hinn kornungi
Þingeyringur hefur t.d. varpað
kúlu hátt á 15.metra og Ragnhild-
ur hljóp 1500 m ein i norðangarr-
anum á 5:03,0 min. Metiö hennar
utanhúss er 4:57,0.
ÖE.
Aðalfundur
Vals
AÐALFUNDUR Knattspyrnu-
félagsins Vals veröur haldinn
mánudaginn 7. mai og hefst kl. 20
I félagsheimilinu að Hliðarenda.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Spennandi og tvísýn keppni um „Sendiherrabikarinn"
RVÍKURÚRVALIÐ VERÐUR AÐ SIGRA
í KVÖLD TIL AÐ HAFA MÖGULEIKA
SVOKÖLLUÐ keppni um
sendiherrabikarinn I körfu-
knattleik verður fram haldiö i
Laugardalshöllinni i kvöld.
Þessari körfuboltakeppni
var komið á fyrir 9 árum og
hefur Reykjavikurúrvaliö
sigraö 8 sinnum og unnið 2 bik-
ara til eignar, en úrval Kefla-
víkurflugvallar hefur aðeins
sigrað 1 sinni og var það I
fyrra. Leiknir eru 5 leikir,
þannig að það lið sem sigrar
þrisvar, er sigurvegari i það
skiptið. Nú hafa verið leiknir 3
leikir og er staðan 2-1 okkur i
óhag. Fyrsta leiknum lauk
með sigri Keflavikurflugvall-
arúrvals 90-83 á heimavelli
þeirra, Reykjavíkurúrvalið
vann næsta leik í Laugardals-
höllinni með 115 stigum gegn
93 og á sunnudaginn var sigr-
uðu Bandarikjamennirnir
með 105 stigum gegn 101 eftir
geysispennandi leik. Eftir
venjulegan leiktima var
staðan 95-95 og reyndust and-
stæðingarnir haröari á enda-
sprettinum, skoraði Þórir
Magnússon 39 stig i þeim leik.
1 kvöld, fimmtudag, verður
svo 4. leikurinn i keppninni i
Laugardalshöllinni og hefst
hann kl. 20.30, hálf niu, og
verður Reykjavikurúrvalið aö
sigra i þeim leik til þess að
missa ekki af lestinni.