Tíminn - 03.06.1973, Qupperneq 9
Sunnudagur 3. júni 1973.
TÍMINN
9
á það sem neitt sérstakt, islenzkt
fyrirbæri, þótt það sé nýjung hér
á landi i ráðgefandi verkfræði.
Telja verður þó að samstarf i
verktakaframkvæmdum sé ef til
vill þekktara hér á landi, saman
ber fyrri virkjanir, Sundahöfn og
fleiri framkvæmdir.
Af öðrum stórum verkefnum
Virkis hf. má nefna hönnun og
eftirlit með 220 kW háspennulinu
frá Búrfelli, sem einnig var unnin
i samráði við svissneska fyrir-
tækið. Ekkert hefði verið þvi til
fyrirstöðu að íslendingar einir
hefðu unnið þetta verkefni, en þar
kom Alþjóðabankinn til skjal-
anna, en reglur hans leyfa aðeins
viðurkennd fyrirtæki, og við það
búum við enn i dag, hvað sem sið-
ar verður. Þetta er ekki sagt til aö
skyggja á erlenda aðilaven sýnir
að timi er kominn til þess að afla
islenzkri verkfræði viðurkenning-
ar á alþjóðlegum markaði. Við
höfum nægjanlega marga mennt-
aða menn. Það sem á hefur vant-
að, eru stórar samvirkar heildir,
tækni- og visindamanna, til að
unnt sé að sinna stórum fram-
kvæmdum og mannvirkjagerð.
Merkar framkvæmdir
á döfinni —
víðtækt verksvið
Af öðrum merkum fram-
kvæmdum, sem hér er unnið að,
eru athuganir á hitaveitu fyrir
Hafnarfjörð og undirbúnings-
rannsóknir fyrir þangmjölsverk-
smiðju á Reykhólum.
Þó má segja, að Sigölduverk-
efnið er svo stórt, að við værum
svo að segja i fullu starfi, þótt
ekki kæmi fleira til en sú virkjun
ein, svo það verður að sýna
nokkra aðgát um ný verkefni. Við
Hluti af teiknistofu. Þarna vinna margir tugir manna við teikningar og tæknistörf. Þarna „leggja” menn vegi, „stifla” stjörfljót og „reisa”
stórhýsi. Það vekur athygli að fjölmargar konur vinna á verkfræðilstofunum, flestar við fagteikningar, sem er sérstakt fag. Stúlkurnar
hafa náð ótrúlegri leikni.
höfum ekki á þeim árum, sem lið-
in eru, fjölgað aðildarfyrirtækj-
um, en að þvi mun sjálfsagt
koma, innan skamms. Þá verður
þess að sjálfsögðu gætt, að Virkir
hf. er samstarfsheild, sem þarf að
hafa viðtækt verksvið, þar sem
allir þættir verkfræðinnar þurfa
að tvinnast saman, ef vel á að
vera.
Einnig kemur til álita hvort
ekki sé rétt að hafa hagfræðinga,
viðskiptafræðinga, jarðfræðinga
og arkitekta og ef til vill fulltrúa
fleiri fræðigreina, innan starfs-
hópsins. Viðhorf samfélagsins til
stórframkvæmda hafa breytzt.
Undirbúningur og hönnun er ekki
einasta verkfræðilegur, heldur
þurfa að vera greið svör við ýms-
um öðrum atriðum, sem of langt
er upp að telja hér, segir Benedikt
Gunnarsson að lokum.
Undirstaða rafvæðingar landsins er fyrst og fremst tæknikunnátta. Þeir beizla fossana og dreifa
orkunni um landið^.Mvndin er frá Búrfellslinu.