Tíminn - 03.06.1973, Qupperneq 29

Tíminn - 03.06.1973, Qupperneq 29
Sunnudagur 3. júni 1973. TÍMINN 29. „Ætli mér takist aö skora” er greinilega það eina sem kemst aö i huga þessarar stúlku og eftir einbeitninni isvip hennar að dæma, ætti það að takast. „OPIÐ HÚS" í GARÐAHREPPI SKORTUR á félagsaðstöðu fyrir ungt fólk hefur löngum þótt til- finnaniegt vandamál á Isiandi og telja margir hið svonefnda unglingavandamál eina af- leiöingu þess. i Garðahrcppi liefur þetta vandamál skotið upp kollinum, sem og viðast annars staðar, en nú hafa ýmsir aðilar i hreppnum gert sitt til að koma til móts við unglingana með þvi að hafa opið hús fyrir þá i gagn- fræöaskólanum eitt eða tvö kvöld i viku. Gefst ungmennum staðarins með þessu kostur á, að hittast þar við ýmsa tómstunda- iðju — og er óhætt að fullyrða, að þessi nýbreytni hefur mælzt vel fyrir meðal ibúa hreppsins, Blaðamaður og ljósmyndari Timans litu inn i gagnfræða- skólann nýlega, þegar opið hús var i fullum gangi. Gaf þar að lit- fjölda fólks, sem dundaði við hin fjölbreyttustu tómstundastörf. Miðpunkturinn var að sjálfsögðu dansgólfið, en þar dilluðu krakkarnir sér ákaft i takt við spil hljómsveitarinnar „Stella beauty”, en liðsmenn hennar eru ýmist nú- eða fyrrverandi nemendur gagnfræðaskólans i Garðahreppi. Annars staðar i húsinu var spilaður borðtennis og einnig hafði ýmsum leiktækjum verið komið upp, svo sem fót- bolta-og ishockeyspilum og gafst viðstöddum kosturá þvi að not- færa sér þessa aöstöðu aö vild. Gisli Jón Hjaltason, formaður nemendaráðs skólans, sagði okkur, að starfsemi þessi hefði hafizt i febrúar og hefði verið haft opið hús i skólanum tvö kvöld i viku þar til um miðjan april. Frumkvæðið að þessari starfsemi hefði komið frá nemendum sjálf um, en framkvæmdin væri i höndum þriggja aðila sameigin- lega, þ.e. nemendaráðs, foreldra- ráðs og skólastjórnar. Samstarf þessara aðila hefur verið með miklum ágætum að sögn Gisla, og var það með fullu samþykki þeirra allra, að þessi starfsemi hófst. Mikið fjármagn þurfti til að unnt væri að hefja starf- semina, kaupa þurfti hljóm- flutningstæki, auk allra leik- tækjanna, sem notuð eru. Þessir peningar fengust frá hreppnum og var þá ekkert að vanbúnaði. Opna húsið hefur notið mikilla vinsælda hjá unglingum i Garða- hreppiog hafa venjulega milli 120 og 150 manns komið i hvert skipti, sem opið hefur verið. Fyrirhugað var að hætta starf- seminni, þegar liða tók að próf- um I gagnfræðaskólanum, en sakir mikillar pressu frá nemendum var horfið að þvi, að hafa opið hús einu sinni i viku fram i júnilok a.m.k. Er ætlunin, að þá verði gert sumarhlé, en þráðurinn tekinn upp að nýju, þegar skóli hefst næsta haust. Gisli sagði, að aðgangur að opna húsinu hefði verið ókeypis i allan vetur, nema þegar hljóm- sveitir hafa verið fengnar til að leika fyrir dansi. Þá er fólki gert að greiða aðgangseyri, til að mæta kostnaðinum af þeim. -GJ. Þessar stúlkur, sem allar eru nemendur i skólanum,kvöddu okkur með hros á vör. Þær hcita talið frá vinktri Regina, Anna, Elisabet og Jóna Magga. c> „Anægður meö starfsemina”. Gisli Jón Iijaltason forniaður nemendaráðs. Verðandi heimsmeistari i borðtennis? Erfitt er að fullyröa nokkuð um liljómsveitin „Stella beauty”, skipuð fyrr- og núverandi nemendum Gagnfræöaskólans i Garðahreppi það, en liitt er augljóst, að einheitni og áhuga vantar ekki. hélt uppi ofsafjöri á staðnum, enda lagaval félaganna ekki af verri endanum.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.