Tíminn - 03.06.1973, Síða 31
Sunnudagur 3. júni 1973.
TÍMINN
31
Og svo litur það út, þegar hundur, sem er minni máttar, tekur í sig
kjark og skorar á annan sjáifsöruggan i leik.
blóðþyrstur og hann er skyldur
hundinum. Við getum hugsað
okkur úlfahóp, þar sem gamall
úlfur hefur forustu. A vegi þeirra
verður einsamall karlúlfur, sem
nálgast hópinn ógnandi. Hópurinn
stanzar og gamli úlfurinn gengur
spenntur til móts við þann að-
komna.
Báðir „gera sig digra,” þeir
blása sig upp, reisa burstir,
teygja úr sér, og skottið stendur
beint upp i loftið. Þeir reyna að
hræða hvor annan tii þess að geta
þefað hvor af annars kynfærum.
Það er ekki slegizt við dömur!
Báðir fara að urra af auknum
krafti. Og svo rjúka þeir saman —
einn grár hrærigrautur af góli,
skrækjum, urri og glefsi.
Að vörmu spori er slagurinn
búinn. Andstæöingarnir standa
hvor gegn öðrum, en nú er mynd-
in breytt. Gamli úlfurinn stendur
með úfna burst, skottið upp i loft-
ið, reist eyru og lætur skina i vig-
tennurnar. Aðkomuúlfurinn, aft-
ur á móti, lætur nú fara lltið fyrir
Öruggur hundur býður öðrum varkárari til leiks. (Það er sá
hvíti, sem er sjálfsöruggur).
sem við get-
um öll lært!
sér, hefur lagt eyrun, burstin ekki
lengur reist og búinn aö leggja
niður skottið, sem að öllum lik-
indum er milli fóta hans. Hann
litur undan og snýr viðkvæmum
hálsinum að vigtönnum þess
gamla.
En gamli úlfurinn bitur ekki —
hann getur það ekki — það gerir
' drengskaparhvötin. Hún kemur
fram við undirgefni andstæðings,
auömýkt gestsins. Gamli úlfurinn
heldur rólega að næsta tré eða
runna og merkir á þann hátt, sem
honum og hundum er laginn, að
,,á þessum stað sigraöi ég, hann
tilheyrir mér.” Aðkomuúlfurinn
dregst aftast I röðina og sleikir
sár sin...
Það er ótrúlega þýðingarmikið
að þekkja merkin, sem sá sýnir,
sem minni máttar er. Þau koma
oft I ljós I sambandi við vand-
ræðahunda og þá má ekki greina
þau skakkt.
Menn meöhöndla oft sorglega
drengskaparhvötina hjá hundin-
um. Hundurinn bregzt nákvæm-
lega eins við og úlfurinn, hvað
varðar riddaramennskuna, en
ADAX
rafmagnsþilofnarnir
hafa fengiS æSstu
verSlaun, sem veitt
eru Innan norsks
ISnaSar
Húsbyggjendur! Kynnið yður fyrst og
síðast ADAX rafmagnsþilofnana. — Þeir
standa fremst, hvað varðar útlit, öryggi
og sparneytni. Tvöfalt thermostat.
Auðveldir í uppsetningu. Létt þrif.
Margar stærðir og gerðir.
3 ÁRA ÁBYRGÐ
Sjáið þér hjá okkur
Einar Farestveit & co. hf raftækjaverzlun
Bergstaðastræti 10A. Sími 16995
Hundasáifræðingurinn, Anders Hallgrcn, ásamt sjúklingi
maðurinn getur misskilið hana
eða átt i erfiðleikum með sina
eigin.
Þegar hundur gerir af sér
skammarstrik og hann er
skammaður, lúpast hann niður.
En þá má ekki ganga lengra og
hegna honum, þvi að með þvi er
brotin þýðingarmesta regla
hundsins.
Arásargjarn og sjálfsöruggur
hundur (i ham) sperrir eyrun,
fitjar upp á trýnið, munnvikin
dragast fram og hárin risa.
Oöruggur hundur fitjar minna
upp á trýnið, leggur eyrun niður
og aftur, hárin sömuleiðis,
hræðsla er i augunum og munn-
vikin dragast aftur.
Glaður og sæll hundur litur
þannig út: Uppdregin munnvik
(litur út eins og bros), ánægju-
svipur i augunum, eftirvænting-
arfullt upplit, hann dinglar róf-
unni og hringsnýst.
Hundur er gáfaður i
á hundavisu, ef honum tekst að
leysa af hendi það, sem hann vill.
Til að mynda er sá hundur gáfað-
ur, sem tekst að komast út úr lok-
uðu herbergi. Annars eru gáfur
hans mjög tengdar sjálfsbjargar-
hvötinni.
Oft má lesa i blöðunum um
hunda, sem hafa drýgt dáöir og
svo getur litiö út sem skapandi
hugsun hafi legið þar að baki.
En hundurinn, sem bjargar
fjölskyldunni frá aö brenna inni,
hefur ef til vill ekki I huga að
vekja hana með gelti sinu. Hann
geltir einfaldlega af þvi, að hann
er dauðhræddur.
Um hunda má annars segja, að
þeir eru falslausir ogumafbrýði-
semi hjá þeim er ekki hægt að
tala i venjulegum skilningi.
— Maðurinn er nú herra hunds-
ins og hundurinn þræll hans. Er
þá þörf á að skilja hundamál?
— Sá, sem þannig hugsar, ætti
aldrei að fá sér hund. Hundurinn
á að vera meölimur fjölskyldunn-
ar, hann á að finna, að þótt sé
vænt um hann og svo á líka að
vera.
(Lausl. þýtt SSv.)
TopKvick leysist fljótt upp
Hollurog bragógóóur drykkur
Gefió börnunurr^^^^
KAUPFÉLAGIÐ