Tíminn - 12.08.1973, Qupperneq 3

Tíminn - 12.08.1973, Qupperneq 3
Sunnudagur 12. ágúst 1973. TiMINN 3 milli, ef um dýrmæta steina er að ræða. — Flestir kaupmennirnir eru múhameðstrúarmenn og hafa verið það mann fram af manni svo öldum skiptir. Feðurnir kenna sonunum bellibrögðin. En þaðerum við, Singalesarnir, sem gröfum eftir steinunum. Allir grafa: bændur, verkamenn, emb- ættismenn og lögregluþjónar. Maður fær þetta á heilann og getur ekki hætt. Margir halda áfram, þangað til þeir eiga ekki grænan eyri. — Hafið þið heyrt um smábónd- ann, sem fann kattaraugu fyrir utan húsið fyrir skömmu? Annar eins steinn hefur aldrei sézt — hann var á við barnshöfuð á stærð. Enginn gat metið hann til verðs, svo að hann fór með hann i bankann og fékk 20.000 rúpiur fyrirfram. Svo seldi bankinn hann til Astraliu fyrir fjórar milljónir rúpia. Þetta er það, sem okkqr dreymir alla um. Kaupahéðnarnir græða Lögregluþjónninn fylgir okkur til eins kaupmannsins, sem er múhameðstrúar. Hann býr i finu einbýlishúsi og fjöldi verka- manna er önnum kafinn við að stækka húsið. Kaupmaðurinn lætur okkur biða i tvo tima. Fyrst er sagt að hnn sofi, svo er hann i baði að sagt er, og loks eru það viðskipti sem tefja hann. I stof- unni með okkur eru karlar með litil köflótt knýti og við og við er einhver kvaddur upp á loft. Kaupmaðurinn hefur fengið þá flugu i höfuðið að við séum frá Sviss og heldur að lögregluþjónn- inn, sem með okkur er, eigi að rannsaka einhver hæpin banka- viðskipti. Þegar búið er að greiða úr þessum misskilningi, er okkur begar boðið upp, þar sem hús- bóndinn —hvitklæddur maður vel i skinn komið — tekur fram hið venjulega knýti og bendir á rúbina, spinella, safira og gullið kattarauga, þar sem ljósið brotnar eins og i auga á ketti, enda dregur steinninn nafn af þvi. — Við spyrjum, hvers steinarnir séu verðir, en hann hlær bara dularfullur á svip og spyr hvað við mundum vilja borga. — Ég hef keypt steina i 20 ár, segir hann. Samt kemur það ennþá fyrir, að mér verður á og ég held að gerfisteinar séu ekta. — Hann lætur nú ekki pretta sig þessi, segir lögreglumaðurinn þegar við höldum á brott. Hann getur keypt steina fyrir 40000 rúpiur að morgni og selt þá fyrir tifalda upphæð að kvöldi. Og gróðinn fer allur úr landi. — Hvers vegna er ekkert gert i málinu úr þvi að iögreglan veit þetta? — Þeir eru slungnir þessir kaupmenn. Þeir styrkja stjórn- málaflokkana og afla sér vina alls staðar. Það er ekki langt siðan þessi og annar kaupmaður 'með honum gáfu 250.000 rúpiur til eins sjúkrahússins. Arlega eru eöalsteinar fyrir um 300 milljónir rúpia fluttir frá ’Sri Lanka, að þvi er sérfræðingar áætla, en ekki eru seldir steinar á löglegan hátt fyrir meira en þrjár milljónir. Gimsteinasala rikisins, sem komið var fót i fyrra, olli þvi, að á tveim mánuðum tvöfaldaðist útflutningur á gim- steinum. Samkæmt siðustu fimm ára áætluninni er ætlunin að gim- steinaútflutningurinn færi land- inu 50 milljónir rúpia i erlendum gjaldeyri þegar á árinu 1976. Þar með hefði verið komizt fyrir einn sjötta hluta hins ólöglega gim- steinaútflutnings. Reynt er að fá menn til þess að selja með lögleg- um hætti með þvi að veita þeim skattaivilnanir af ýmsu tagi. En — eins og lögregluþjónninn sagði — þeir kunna ýmis belli- brögö gimsteínakaupmennirnir. — Þýtt HHJ VISIR AÐ VARANLEGRI GÖNGUGÖTU Næstu tvo mánuði verður gerð tilraun með göngusvæði í miðborginni til hagræðis fyrir borgarbúa. Umferð bifreiða um Austurstræti og Pósthússtræti verður takmörkuð við strætisvagna fyrri mánuðinn, en í seinni hluta tilraunarinnar aka strætisvagnar utan við göngusvæðið. Tilraun þessi er gerð af hálfu Borgarráðs Reykjavíkur, sem vonast til þess að Austurstræti megi verða vísir að varanlegri göngugötu með blómlegu viðskiptalífi og hvers konar þjónustu við almenning í hjarta borgarinnar. Þessi fyrsti áfangi í endurnýjun eldri borgarhluta Reykjavíkur hefst í Austurstræti, en árangur tilraunarinnar verður meðal annars mældur af áhuga okkar Reykvíkinga fyrir göngusvæðum og kostum þeirra í réynd. Verið velkomin í Austurstræti. Gunnarsson r Auglýsld i Timanum Verkamenn í gimsteinanámu á Ceylon viö vinnu sína

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.