Tíminn - 12.08.1973, Page 6

Tíminn - 12.08.1973, Page 6
Eyþór H. Tómasson, forstjóri Súkkulaðiverk- smiðjunnar Lindu h.f. á Akureyri kom norður yfir fjöll 1924 til að læra smiðar. Hann bar léttan mal og bar hratt yfir. Fæsta myndi hafa grunað að þar væri á ferð einn þeirra miklu iðnaðarmanna, sem sett hafa svip sinn á Akur- eyri, en hvað hann sjálf- ur hugsaði, er hann gekk yfir grasbólginn svörð og brokmýrar inn með Eyjafirði, hefur hann látið ósagt, en i þá hálfu öld, sem siðan er liðin, hefur mikið vatn runnið til sjávar. Timinn kynnir að þessu sinni Súkkulaðiverksmiðjuna LINDU, sem er frægasta fyrirtæki Eyþórs H. Tómassonar, af mörgum, sem hann hefur stofnaö, einn, eða með öörum. Timinn hitti Eyþór á skrifstofu hans á Akureyri, sem er stærsta skrifstofa, sem blaðamaðurinn hefur séð, enda hæfir hún per- sónuleika forstjórans, sem er stór i sniðum, og Eyþór i Lindu er aldrei i miðjum hliöum. Sagðist honum frá á þessa leið: Kom eignalaus i nám til Akureyrar Ég er fæddur á Bústöðum i Austurdal i Skagafirði árið 1906 og er þvi sveitamaður að upp- runa. Ég ólst upp við algenga vinnu f hópi barna, en árið 1925 kom ég norður til Akureyrar og læröi trésmiði á þrem árum, verklegt nám og tók iðnskóla. Trésmiðina lræði ég hjá Her- mundi Jóhannessyni, sem hafði mikla drift hér i bænum, bæði i húsasmiðum og i þvi að smiða utan um fólk. Iðnnámið var virðulegt i þá daga á Akureyri og menn gengu að þvi með alvöru sem nú hæfir helzt visindum. Þetta var góður skóli, ekki bara fyrir trésmiði, heldur fyrir lífs- kúnstina sjálfa. Maður fann til ábyrgðar i smáu og stóru. Þegar ég ég hafði lokið náminu, fór ég strax að vinna sjálfstætt. Ég byrjaði að byggja eitt vegleg- asta húsið á Akureyri i þá tið, Hólabraut 1, en það byggði ég fyrir föðursystur mina, Sigur- björgu Pálsdóttur, en hún var ekkja eftir Arnljót Kristjánsson, sem lengi var sjúkrahúsráðsmað- ur á Sauðárkróki. Ég setti fljót- lega upp verkstæði, keypti vélar og haföi mikil umsvif. Lánið hef- ur alltaf elt mig, og þótt ég kæmi eignalaus i nám, þá blessaðist sjálfstæður rekstur hjá mér og ég fann ávallt einhver ráð til að hafa verkefni fyrir verkstæðið og smiðina. ú-hal m yindu LINDA framleiðir 200 lestir af sælgæti á ár\ Rætt við Eyþór Tómasson forstjóra Lindu hf.: — „Get mig ekki að pólitík, því að það þurfa allir að geta étið mitt súkkulaði", segir Eyþór í Lindu Nýja 11.000 fermetra Lindu-vcrksmiðjuhúsið á Akureyri. Þetta mikia hús var hannað á sérstakan hátt af sérfræðingum, þannigað fyrst var teiknuð verksmiðja, en síðan var húsið byggt utan um verksmiðju-. skipulagið. Með likkistubil i sautján ár Árið 1932 tók ég að mér likkistu- smiði. Hafði ég likkistubil og allar útfarargræjur og þetta starf stundaði ég i 17 ár. Hermundur, sem ég lærði hjá, hafði likkistu- verkstæði með öðru, svo ég var þessari iðngrein, eða iðnfram- Ieiðslu ekki með öllu ókunnur. Það er samt dálitið erfitt að tala um þessa starfsgrein. Al- menningi virðist standa hálfgerð- ur stuggur af henni og menn eru viðkvæmir, en i likkistusmiði kynnist þú þó einni hlið mannsins, sem þú mátt helzt ekki án vera, eða manninum i sorginni. Og ég héltáfram að smiða og smiða yfir menn og utanum menn. Hafði aldrei áhuga á tré- smiði. Áhugi minn var ekki i trésmið- inni, þótt merkilegt sé, heldur i verzlun og framleiðslu. Þetta er held ég i ættinni. Með peninga hefur mér þótt gaman að fara og ég held að ég sé kannski likastur móðursystur minni, Guðrúnu Sveinsdóttur, sem gaf sex milljónir i fyrra til Krabbameins og Hjartaverndarfélagsins. Hún kunni á peninga. Arið 1940 lagði ég i að reisa stórhýsiö Skipagötu 6 hér á Akur- eyri. Helminginn af neðri hæð- inni, notaöi ég undir trésmiða- verkstæði, en hinn helminginn undir verzlun. Þá verzlaði ég með kvenfatnað og ýmsar algengar vörur. Arið 1943 tók ég alla hæð- ina undir verzlun, og þar meö var ég hættur að smiöa og hefi ekki snert á þvi siðan. Sælgætisgerðin Linda stofnuð á haftaárum Arið 1949 var erfitt ár með inn- flutning og þá alla verzlun þvi mikill hörgull var á söluvarningi. Þá kom mér i hug að fara að framleiöa sælgæti. Ég get ekki fengið sælgæti keypt i nægilegum mæli og einhvernveginn fannst mér, að þetta gæti ég framleitt sjálfur. Ég komst i sambönd við erlenda aðila og fékk hingað sér- fræöing. — Ég byggði 200 fer- metra hæð ofan á hús eitt við Texti: Jónas Guðmundsson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.