Tíminn - 12.08.1973, Qupperneq 10
10
TÍMINN
Sunnudagur 12. ágúst 1973.
sjaldgæfa — gleöur, gamma og
uglur. Enginn dýragarður i heim-
inum hefur slikt úrval ránfugla.
Sjálfur metur Schmidt fuglana
sina á um 32 milljónir króna.
Meðal þeirra sjaldgæfustu er
stórglæsilegur ameriskur hettu-
örn — þjóðarfugl Bandarikja-
manna — en aöeins 35 hettu-
arnarpör eru til i Norður-
Ameriku nú.
Schmidt lætur ekki uppskátt
hvernig hann náði i þennan örn.
Þegar ég spurði hann, svaraði
hann snubbótt ,,það segi ég þér
aldrei...” Ég gizkaði á að honum
hefði tekizt að ná sér i slikt arnar-
egg og siðan látiö einn af hinum
örnunum sinum unga þvi út.
„Engar upplýsingar gefnar”
svaraði Herbert. Hann vildi
greinilega ekki hætta á nein
vandræði með þvi að segja frá þvi
hvernig hann hefði náð i fuglinn...
Frá húsmæðraskólan.
um að Laugalandi,
Eyjafirði
Haustpróf landsprófs miðskóla og gagn-
fræðaprófs fer fram i Vogaskóla i
Reykjavik og i Gagnfræðaskólanum á
Akureyri, dagana 20.-29. ágúst, sam-
kvæmt eftirfarandi próftöflu:
Mánudagur 20. ágúst kl. 9—13 islenzka I
Þriöjudagur 21. ágúst kl. 9—11 Landafræði
Miðvikudagur 22. ágúst kl. 9—11:30 Enska
Fimmtudagur 23. ágúst kl. 9—11 : Eðlisfræði
Föstudagur 24. ágúst kl. 9—12 I íslenzka II
Laugardagur 25. ágúst kl. 9—11 Saga
Mánudagur 27. ágúst kl. 9—12 Stærðfræði
Þriðjuda'gur 28. ágúst kl. 9—11:30 Danska
Miðvikudagur 29. ágúst kl. 9—11 N'áttúrufræði
Gagnfræðaprófsnefnd
Landsprófsnefnd
Hcrbert Schmidt hefur um 75
ránfugla af ýmsum tegundum i
nágrenni Bad Wörishofen. Þetta
er snjógammur úr Himmlaya-
fjöllum. Ilann breiðir út vængina
til að friska sig upp.
ÖRN SEM HÚSDÝR
Orðið fuglatemjari eða
fuglari finnst tæpast á
nokkrum lista yfir starfs-
greinar nú til dags. En
Þjóðverjinn Herbert
Schmidt lifirá þvíað temja
ránfugla og þjálfa þá til
veiða.
Þessi ævaforna list er að
deyja út, þótt enn séu til
auðmenn, sem vilja hafa
Schmidt og fuglana hans
með sér á villidýraveiðar.
Um hverja helgi heldur
Schmidt sýningu á ömum
sínum og öðrum fuglum.
Margir spyrja hversvegna
ernirnir hans fljúgi ekki
burt.
— Þeim líöur betur hjá mér en
úti i náttúrunni, svarar Schmidt.
Frú Schmidt stendur i nokkurra
metra fjarlægö frá manni sinum
með lifandi mörö i höndum. Hún
sleppir dýrinu, sem þýtur i burtu
eins og örskot i átt að skógar-
kjarrinu. En möröurinn kemst
ekki langt. Nokkrum sekúndum
áður en mörðurinn kemst að
skógarjaðrinum hefur Herbert
Schmidt sleppt lausum griðar-
stórum erni. Ránfuglinn flýgur
upp i hæfilega hæö og steypir sér
siðan leiftursnöggt niður aö
varnarlausri bráð sinni.
örninn rifur i sundur veiði sina
með hvössum goggnum. Mörður-
inn spriklar i örvæntingu unz lifið
fjarar út. Hann átti sér engrar
undankomu auðið, örninn mat
Ertu að byggja?
Viltu breyta?
Þarftu að bæta?
fjarlægðina nákvæmar en
myndavél. Ahorfendur fylgdust
með ójöfnum leiknum með ótta-
blandinni aðdáun. Aðeins fáeinir
finna til viðbjóðs.
Þegar Herbert Schmidt sleppir
ránfuglum sinum lausum hefur
hann alltaf áhorfendur. Þessi 38
ára gamli maöur er sennilega
mesti fálkatemjari i heimi, og
einn sárafárra, sem nú halda lifi i
þeirra sjaldgæfu list. Að temja og
þjálfa fálka til veiða er gömul list,
sem náði mestri fullkomnun viö
hirðirkonunga og fursta miðalda.
Notkun fálka og annarra ránfugla
til veiöa tiðkast ekki lengur i okk-
ar heimshlutum af skiljanlegum
ástæðum. En gerð eru boð fyrir
menn eins og Herbert Schmidt
um að taka þátt i veiðiferðum til
fjarlægari heimshorna. Nýlega
var hann fálkatemjari hjá
„sjeik” frá Marokkó i slikri ferð.
Fyrir vinnu sina tekur Schmidt
16.000 kr. (isl.) á dag auk fæðis,
húsnæðis og ferðakostnaðar.
Engum vex þessi kostnaöur i aug-
um. En þrátt fyrir allt er ekki á
hverjum degi gerð boð fyrir
fálkatemjara, og þess á milli hafa
Schmidt og kona hans vikulegar
sýningar við Bad Wörishofen,
þekktan orlofsstað i átta milna
fjarlægö frá Míinchen. Á einu ári
koma ekki færri en 65.000 manns i
hina stórkostlegu fuglamiðstöð
Schmidts, þar sem hann hefur nú
yfir 75 stóra ránfugla, sem nær
allir eru tamdir til veiða.
Auk minni fálka og hauka á
hann marga stóra erni — ýmsa
Ævagamlar venjur.
Aö sjálfsögðu geta hvorki
Schmidt né aðrir fariö út og veitt
þessa ránfugla i Þýzkalandi nú —
örninn er t.d. friðaöur i flestum
heimkynnum sinum i Evrópu. En
Schmidt hefur sambönd um allan
heim og hefur tekizt aö ná sér i
fugla. Þetta á einkum við um
Sovétrikin, en þaðan fengu for-
feður hans sjaldgæfa ránfugla,
sem þeir tömdu til veiöa.
Herbert Schmidt segir, að veið-
ar og fálkatamningar sé ævaforn
iðja i fjölskyldu hans. Faðir hans
og afi voru þekktir fálkatemjarar
i Bæjaralandi, og sjálfur fór hann
að veiöa með ránfuglum um tiu
ára gamall. í striöinu eyðilagöist
stórt fálkahús, sem faðir hans
átti, i loftárásum bandamanna,
og þegar friður komst á átti fjöl-
skyídan tæpast nokkra fugla. En
Herbert hófst handa við það erf-
iða verkefni að byggja staðinn
upp á nýju af óbugandi viljaþreki,
og 1948 gat hann enduropnað
veiðimiðstöð fjölskyldunnar viö
Bad Wörishofen.
A fáum stöðum i heiminum get-
ur að lita tamda konungserni, en
einn þeirra er hjá Schmidt. Allir
undrast að ernirnir skuli ekki
fljúga burt og sjást ekki meir. En
Schmidt útskýrir, að þessir fuglar
skilji mætavel að þeir fái meiri
mat hjá honum og lifi miklu kon-
unglegra lifi, en væru þeir frjáls-
ir. Þvi koma þeir alltaf aftur.
Raunar eru þeir allir merktir,
ef þeir skyldu týnast, og þegar
þeireru ekki á „veiðum” eru þeir
tjóðraðir við staura. En þeir geta
flogið stuttan hring i tjóðurband-
inu.
Ég spyr Schmidt hvað satt sé i
sögunum um að ernir hafi flogið
burt af bæjum með hvitvoðunga i
klónum. Hann heldur þvi eindreg-
iö fram, að slikt hljóti að vera
undantekningar, þvi að þessir
fuglar séu að eðli til mannfælnir
og hræðist undir venjulegum
kringumstæðum jafnvel börn.
Samt sem áður getur hann ekki
látiö örninn leika lausum hala
heima á bænum. Þá fengi hann
orð i eyra frá nágrönnunum og
bændum i héraðinu, segir hann.
Sumum áhorfenda er um og ó,
þegar þeir sjá Schmidt „fóðra”
fuglana á lifandi dýrum, sérstak-
lega mávum. — En við verðum að
Veggfóður
Fjölbreyttasta veggfóður
sem völ er á.
Vymura og Decorene
ásamt fjölda annarra gerða.
UTAVER