Tíminn - 12.08.1973, Side 12

Tíminn - 12.08.1973, Side 12
12 TÍMINN Sunnudagur 12. ágúst 1973. GLÆSILEGIR HEST- AR í RYKI OG SÓL Frá fjórðungsmóti austfirzkra hestamanna á Iðavöllum FJÓUÐUNGSMÓT austfirzkra hestamanna var haldih að Iða- völlum á Fljótsdalshérafti daguna 27., 28. og 29. júli s.l. Mótsvæfti Austfirðinga cr rúma 12 km frá Kgilsstöðum skamml frá prest- setrinu Vallanesi, það er á marg- an hátt mjög skemmtilegt t.d. eru áhorfcndasvæði sérlega góð frá náttúrunnar hendi. Kitt var þó, er setti lciðan svip yfir staðinn og var fólki til ama en það var rykið, sem var gífurlcgl. Veður var gott og tókst mótið mjög vel. Að sögn framkvæmdastjóra mótsins, Sigfúsar Þorsteinssonar, komu um 2000 manns á mótið. Töluvert bar á hestafólki komnu um lang- an veg, t.d. úr Ucykjavík, Borg- arfirði og Skagafirði cn ekki kom þetta fólk á hestum og mun !>ur- kell Bjarnason, hrossaræktar- -rúðunautur hafa komið lengst að riðandi en hann koin frá Laugar- vatni. Fjöldi Austfirðinga koin riðandi til mótsins svo sem hópar úr Ilornafirði og Borgarfirði eystra. Anægjulegt var að fyl gjast með þessu móti, þó ekki væri nema vegna þess hversu mikið var af ungum knöpum, er voru til mikils sóma bæði hvaö snertir framkomu og reiðlag. Þetta mót sýndi einnig að hestamenn eru slfellt að bæta sin mót og auka fjölbreytni þeirra. Þarna var ungum krökkum leyft að fara á hestbak, fjórir unglingar sýndu gerðis- og hindrunaræfingar og efnt var til sölusýningar á hross- um en flest viðskiptin fóru þó fram fyrir utan hana. Siödegis á sunnudag ávarpaði Halldór E. Sigurðsson, land- búnaðarráðherra mótsgesti en hann og Sveinbjörn Dagfinnsson, ráðuneytisstjóri i landbúnaðar- ráðuneytinu sýndu mótinu þann heiður að sækja það heim. Halldór þakkaði i ávarpi sinu Austfirðingum fyrir hvatningar um að heimsækja þá og fór nokkrum oröum um landskosti Austurlands, siðan vék hann að hrossaræktinni og benti á hvað hlutur hestamanna ætti þar að vera mikill og einnig þegar talað væri um hrossautflutning. llér skal á eftir gerð stuttlega grein fyrir úrslitum mótsins. Stóðhestar Aðeins einn stóðhestur var sýndur með afkvæmum og var það Forni 027 frá Fornustekkum, Hornafirði, en eigandi hans er Friðrik Sigurjónsson, Fornu- stekkum. Forni hlaut II. verðlaun og eftirfarandi umsögn: „Afkvæmi Forna 627 eru tæp- lega nógu stór, meðaltal sex full- vaxinna alkvæma, sem mæld hafa verið er 138,7 cm á bandmál. Friðleiki er misjafn og ekki margt um glæsigripi þótt þeir finnist. Fótabygging er mjög traust, litilsháttar kjúkusnúning- ur eroft i hægra afturfæti og sum afkvæmi eru útskeif á hægra framfæti, en hvoru tveggja á lágu stigi. Mörg þeirra eru fremur augnsmá, en æðrulaus og traust- ur svipur og ákveðin kjarkmikil skapgerð einkenna hópinn. Telja má að klárgangur með miklu rými bæði á brokki og tölti séu mun meira rikjandi en vekurðin, þótt hún finnist. Fótaburðúr er oftast mjög góður. Viljinn er traustur og oft mikill, þau eru venjulega vel reist og taumlétt. Forni er álitlegur til undaneldis, sem tölthrossa faðir ásamt létt- um vilja. Finleiki og næg stærð er það eina, sem helzt mundi vanta”. Enginn stóðhestur var sýndur i flokki 6 vetra og eldri. En á þessu móti má segja að komið hafi fram hvað greinilegast, hin tvö sjónar- mið i hrossaræktinni, annars veg- ar stofnræktunin, sem stunduð er i Hornafirði og sú aðferð, sem ef til vill mætti kalla leit að hinu bezta. Seinni aðferðin er fólgin i þvi að fá stóðhesta aö og blanda þeim saman við stofninn i von um betri útkomu Þetta hafa þeir á Héraði gert og mátti sjá að Sörli frá Sauöárkrók, sem notaður var eitt sumar fyrir austan hefur gef- ið mjög gott með austfirzku hryssunum. Af 5 vetra stóðhestum stóð efst- ur Krapi frá Egilsstaðakauptúni, eig. Gunnlaugur Sigurbjörnsson. Krapi er undan Glófaxa frá Ketilsstöðum, Völlum, S-Múl. og Sneglu frá Breiðumörk, Jökulsár- hlíð. Faðir Glófaxa er Blesi 500 frá Bólstað en hann var sonur Goða 401 frá Sauðárkróki og fl. kunnir stoðhestar standa að Krapa þvi faðir Sneglu er Lýsing- ur 409 frá Voðmúlastöðum, Rang. Krapi hlaut 7,8 fyrir byggingu, 8,0 fyrir hæfileika og 7,9 i aðaleink- unn. Með þessar tölur fyrir fram- an sig verður vart hjá þvi komizt að velta þvi fyrir sér, hvaða gildi þær hafi. I rauninni er ekki hægt að lesa neitt út úr þeim annað en röð þeirra hesta, er til dóms komu. Hvernig byggingu hefur hestur, sem hlýtur 7,8 fyrir bygg- ingu? Ekki er hægt að dæma það af þessari tölu. Það er ljóst að með vaxandi áhuga fólks fyrir hrossarækt, verður að gera dóm- ana nákvæmari og þannig að hægt sé að lesa upplýsingar út úr þeim einkunnum, sem hesturinn hlýtur. Auk Krapa voru sýndir tveir aðrir hestar í þessum flokki H- Blesi frá Skorrastað, Norðfirði eigandi Þórður Júliusson Skorra- stað og Geysir 821 frá Arnanesi, Hornafiröi, eign Páls Jónssonar. Báðir eru þessir hestar sonar- synir Hrafns 583 frá Arnanesi. 4ra vetra stóðhestarnir, sem voru þrir voru allir synir Sörla 653 frá Sauðárkróki, en eins og áður sagði varhann notaður fyrir aust- an eitt sumar og settu afkvæmi hans mikinn svip á þennan ár- gang þvi þrjár efstu hryssurnar i flokki 4ra vetra hryssa voru dæt- ur Sörla. Þá hafnaði 4ra vetra sonur Sörla i fimmta sæti klár- hesta með tölti og verður ekki annað sagt en að það sé gott, af svo ungum hesti. Afkvæmi Sörla hafa mikinn vilja og gangrými. Fyrstur i þessum flokki varð Kolbakur, Péturs Jónssonar, Egilsstöðum og hlaut 7.85 i aðal- einkunn. Kolbakur er þróttlegur hestur með allan gang, vel reist- ur, en heldur hálsstuttur, með góða bóga. Annar varð Blakkur, Jóns Bergssonar Ketilsstöðum, Völlum og þriðji Andvari frá Fáskrúðsfirði eign Braga Er- lendssonar. 1 flokki 3ja vetra stóðhesta komu fram einstaklega athyglis- ■TOrðirfolar, hvað getu snertir hjá svona ungum hestum. Alls voru sýndir 4 3ja vetra folar og urðu efstir þeir Skór frá Flatey, Hornafirði og Snær frá Snjóholti, Eiðaþinghá S-Múl. eign Þórólfs Sölvasonar, Snjóholti. Þeir hlutu báðir 7,84 i aðaleinkunn. Skór, sem er frá Bergi Þorleifssyni i Flatey, en hefur nú verið seldúr til Reykjavikur, er óvenjulega reistur klárhestur með tölti og með efnilegustu klárhestum i flokki unghrossa. Skór er sonur Faxa 646 frá Arnanesi. Snær, sem er sonur Svips 385 frá Akureyri, er einnig mjög efnilegur og hefur ágætan fótaburð en lélegur fóta- burður hefur háð afkvæmum Svips. Þriðji varð Smári frá Meðalfelli, Hornafirði, eign Hestamannafélagsins Hornfirð- ings, einnig sonur Faxa frá Arna- nesi. Smári hefur góða reisingu höfuð ekki nógu göfugt og mjög lélega afturbyggingu en viljugur. Hann hlaut 7.30 i aðaleinkunn. Fjórði varð Kúði, Friðriks Sigur- jónssonar Fornustekkum. Enginn stóðhestur hlaut I. verðlaun en til þess þarf að fá yfir 8,0 i aðaleinkunn, en hafa verður i huga að hér er um unga hesta að ræða og ekki raunhæft að gefa þeim mjög hátt, þvi þeir eiga eftir að bæta sig og verður þá að vera hægt aö bæta við einkunn þeirra. Hryssur Alls voru sýndar sjö hryssur með afkvæmum en ekki reyndist unnt að mæta með allar mæðurn- ar vegna flutningaerfiðleika. Bezta hryssan var dæmd Elding frá Jaðri, Suðursveit, eig. Þor- bergur Bjarnason, Gerði, Suður- sveit. Elding er dóttir Hóla-jarps 474 frá Hólum, Hornafirði og hlaut hún I. verðlaun Afkvæmi Eldingar, sem sýnd voru eru bæði miklir gæðingar en annað þeirra var Svipur, Ingimars á Jaðri, þekktur gæðingur. önnur varð Bára frá Stórulág, Hornafirði, eign Sigurðar Sigfinnssonar, Stórulág og þriðja Bleikála frá Enni, Refasveit, a.-Hún. eign Jóns Bergssonar, Ketilsstöðumt en með henni var sýnd mjög at- hyglisverð 4ra vetra hryssa undan Sörla frá Sauðárkróki. Af hrvssum 6 vetra og eldri stóðu þessar efstar, fyrst varð Hremsa frá Eyvindará, Eiða- þinghá, eig. Sævarr Pálsson Möðrudal og hlaut 8,06 I aöal- einkunn og I. verðlaun, önnur varö Vaka frá Borgum, Horna- firði, eig. Skirnir Hákonarson, Borgum. Hún hlaut 8.02 i aðal- einkunn. Þriðja var Hrönn frá Króksstöðum, Eyjafirði, eig. Gunnþórunn Hvönn Einarsdóttir, Egilsstaðakauptúni, og hlaut 7,95 I einkunn og II. verðlaun. Gála frá Ketilsstöðum á Völlum eign Atla Vilbergssonar, var dæmd bezta hryssan, 5 vetra, önnur varð Hæra frá Höfn, Hornafirði eign Guðmundar Jónssonar, Höfn. Þriðja varð Pila frá Stórulág eig. Páll Sigfinnsson, Stórulág. I fjögurra vetra flokknum var efst Nótt frá Beinárgerði, Völlum, eig. Klara Benediktsdóttir, Beinárgerði, önnur varð Kolbrún frá Jaðri,VöIlum eign Asmundar Þórissonar, Jaðri og þriðja Kvika frá Ketilsstöðum eig. Jón Bergs- son. Ýmsir höfðu á orði að þeim þætti skorta skörungs hryssur, en ekki mun ástæðan vera sú, að ekki séu þær til heldur hitt, að mörgum beztu hryssunum var haldið i fyrrasumar og eru þær nú með folöldum. Þótt ánægjulegt sé að fá góðar og glæsilegar hryssur á svona mót er þó enn ánægju- 'légra að beztu hryssurnar séu jiýttar til folaldseigna, þvi góðar hryssur á að nota til þess en ekki sem reiðhross, það er til nóg af lakari hryssum og hestum, er hægt er að nýta til brúkunar. Glæsilegir gæðingar ' Keppt var i tveimur flokkum A. alhliða ganghesta og B. klárhesta með tölti. Eitt var það, sem ein- kenndi þessa keppni en það var hinn hái vilji austfirzku hest- anna og þá einkum Hornfirðing- anna. Talað hefur verið um að lit- ið væri orðið um áberandi alhliða gæðinga eins og kom t.d. fram á Skógarhólamótinu i sumar, en ekki þurfa Austfirðingar, að kvarta yfir þvi, þarna voru getu- miklir krafthestar og skeiðið virðist vera i framrás. Það sama má emnig segja um klárhestana, sem voru heldur yngri. Gæðingarnir voru dæmdir með Skór frá Flatey einn athyglisveröasti stóðhesturinn á fjórðungsmótinu. Hann var seldur til Reykjavikur, og er talið að verðið hafi nálgast 200.000 krónur. Knapi er Benedikt Þorbjörnsson. (Ljósniyndir Jakob R. Guðinundsson). Sigfinnur bóndi I Stórulág tekur Skúm til skeiðs. Fáir bændur þykja eins vel riðandi og hann.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.