Tíminn - 12.08.1973, Qupperneq 14

Tíminn - 12.08.1973, Qupperneq 14
TÍMINN Sunnudagur 12, ágúst 1973. þjónustunnar, sem hefur haft eftirlit með segulbandsspólunum, að bera vitni fyrir rannsóknar- nefndinni. Hann rökstyður þessa afstöðu sina með tvennum hætti. önnur röksemd hans er aðskilnaðurinn á milli fram- kvæmdavalds, löggjafarvalds og dómsvalds. Hin er hefðin um það sem Bandarikjamenn kalla „Executive Privilege” — þ.e. um þagnarskyldu um allt það, sem farið hefur á milli forseta og nánustu samstarfsmanna hans eða ráðgjafa i Hvita húsinu. Þessi hefö byggir ekki á ákvæðum stjórnarskrárinnar, heldur hefur hún myndazt i timans rás og ýmsir Bandarikjaforsetar, allt frá Lincoln til Eisenhowers, hafa borið hana fyrir sig. Þaö hefur aðeins einu sinni áður komið fyrir, að bandariska þingið hefur sent stefnu til Bandarikjaforseta. Það var fyrir 166 árum, þegar Jefferson, þá- verandi forseti, neitaði að af- henda skjöl með nöfnum manna, sem blandaðir voru inni svonefnt Aaron Burr-samsæri. Forsetinn afhenti þessi skjöl hins vegar áður en málið kom fyrir dóm- stólana. Hafinn yfir lögin? Dómstólarnir taka nú við málinu, þar sem rannsóknar- nefndin og Cox saksóknari hafa ekki völd til að heimta spólurnar úr hendi forsetans án aðstoðar þeirra. Dómstólarnir munu þurfa að skera úr um ýmis þýðingarmikil atriöi. Þar á meðal er, hvort þri- skipting valdsins þýði, að forseta Bandarikjanna sé ekki hægt að stefna fyrir dómstól, ef hann „hindrar .framkvæmd réttlætis- ins”, eins og öðrum þegnum rikisins. Og einnig, hvort hefðin um „Executive Privilege” þýði i raun og veru, að forsetinn sé yfir lögin hafinn og geti þvi fyrir- skipaö eða samþykkt innbrot, simahleranir, njósnir um einkalif annarra manna o.s.frv. Þrjár kenningar um ástæður Nixons A meðan vinsældir Nixons meöal Bandarikjamanna hrapa samkvæmt skoöanakönnunum, einkum vegna þess aö menn trúa ekki á sakleysi hans i Watergate-- málinu, velta margir þvi fyrir sér, hvers vegna forsetinn neiti aö afhenda segulbandsspólur, sem ættu að geta gert út um máliö i einni svipan og gera þannig langar vitnaleiðslur fyrir framan sjónvarpsmyndavélarnar óþarf- Rannsóknarncfndin samþykkir i einu hljóði að stefna Nixon Bandaríkjaforseta til þcss að neyöa hann til að láta af hendi segulbandsspólur með samtölum í llvita húsinu. Watergate-hneykslið minnir á framtíðar- martröð Orwells 1984 „Þetta er mesti harmleikurinn I sögu Bandarikjanna — harm- lcikur, sem er jafnvel ömurlegri cn borgarastyrjöldin. t henni sýndu þó báðir aðilar bæði hetju- skap og fórnarlund. Ekkert slikt fyrirfinnst nú”. Þessi orð lét Sam Ervin, for- maöur þeirrar nefndar i banda- risku öldungadeildinni, sem rannsakar Watergate-málið, falla, þegar Richard Nixon, Bandarikjaforseti, haföi neitaö að láta af hendi segulbandsspólur, sem hafa að geyma samtöl þau, sem fram hafa farið i Hvita húsinu — þar á meðal samtöl forsetans og nánustu samstarfs- manna hans umWatergate-máliö. Og þar sem bæði rannsóknar- nefndin, og sérlegur rikissak- sóknari i Watergate-málinu, Archibald Cox, hafa stefnt Bandarlkjaforseta vegna þessarar neitunar hans, er málið, sem hófst með misheppnuðu inn- broti i aðalstöðvar bandariska Demókrataflokksins siðastliðið sumar, orðið aö alvarlegri stjórnarskrárdeilu, sem mun hafa langvarandi afleiðingar. Fer fyrir hæstarétt Forsetanum er i stefnum þess- um gert skylt að afhenda um- ræddar segulbandsspólur, og munu dómsstólarnir hafa siöasta orðið I þeim þætti Watergate- málsins. Málið mun vafalaust fara gegnum hin ýmsu dómsstig og allt til hæstaréttar. Undir venjulegum kringumstæöum myndi slikt dómsmál taka 1-2 ár, en flest bendir þó til þess, aö i þessu máli — sem mun hafa svo miklarstjórnarfarsréttarlegar og stjórnmálalegar afleiöingar — veröi um forgangshrað að ræöa, og aö endanlegur dómsúrskurður hæstaréttar liggi fyrir eftir 4-5 mánuði. Ekki virðist vera nokkur vafi á þvi, að báðir aðilar muni sætta sig við úrskurð hæstaréttar i málinu. Afstaða Nixons Nixon hefur bæöi neitaö aö af- henda segulbandsspólurnar, sem hafa að geyma öll samtöl, sem fram fóru i skrifstofu forsetans i Hvita húsinu, og eins bannaö starfsmönnum leyni- I.ögfræftingar Nixons, þeir Leonard Garment (t.v.), Charles Wright og Fred Buzhardt. forsetann gegn árásum þeim, sem frá rannsóknarnefndinni og rikissaksóknaranum koma. Rannsóknarnefndin t rannsóknarnefndinni, sem öldungadeildin skipaöi með sér- stakri þingsályktun, eru sjö þing- menn, en formaftur er Sam Ervin, sem er 74 ára gamall. Hann er einn þeirra bandarisku þing- manna, sem talinn er bezt aft sér i öllu er varöar stjórnarskrá Bandarikjanna, auk þess sem hann er vel að sér i bibliunni og vitnar óspart i hana ef vitni, sem fyrir nefndina koma, gefa tilefni til. Nefndin hefur mikiö starfsliö sér til aðstoðar, eða alls um 65 manns. Þar af eru 15 lögfræfting- ar, en auk þess sérfræðingar ýmis konar, hraðritarar, ritarar o.s. frv. Tveir lögfræftingar stjórna þessu starfsliöi. Þar ber fyrst að nefna Samuel Dash, sem er nú prófessor I lögum og hefur mikla reynslu sem saksóknari i glæpa- málum. Hans verk er fyrst og fremst að vera eins konar „ákær- andi” fyrir rannsóknarnefndina. Hann, og aðstoðarmenn, yfir- heyra öll vitni áður en þau koma fyrir fund i nefndinni þar sem öllu er sjónvarpað beint. Hefur hann þegar yfirheyrt nokkuð á annað hundrað manns, þó að einungis nokkrir tugir hafi enn borið vitni fyrir nefndinni opin- berlega. Næstur Dash aft völdum meöal starfsliðs nefndarinnar er Fred Thompson, sem er lögfræftingur minnihluta nefndarinnar — þ.e. repúblikana. Thompson var áður rikissaksóknari i Nashville, og hefur einnig mikla reynslu i saka- málum. Venjulegur vinnumáti nefndar- innar er með þeim hætti, aö starfsliðiö yfirheyrir fyrst hugsanleg vitni, og gerir skýrslu um vitnisburð þeirra. Þessar skýrslur fara llar til nefndarinnar, sem ákveður hvort ástæða sé til að kalla umrætt vitni fyrir nefndina eða ekki. Sé ákveðiö aö kalla vitnið fyrir undir býr starfsliöið nefndarmenn ma. með þvi að veita þeim allar tiltækar upp- lýsingar um vitnið og væntanleg- ar upplýsingar sem það kann að gefa. Rikissaksóknarinn 1 stórri og nýinnréttaðri skrif- stofu viö K-stræti I Washington starfar sérlegur rikissaksóknari i Watergatemálinu, Archibaid Cox. A hurðinni stendur: „Water- gate Special Prosecution Force”, og innan dyra hafa safnast saman stórir skjalabunkar — í alltmeira en 8000 skjöl. Þetta er árangur af þeim yfirheyrslum, sem þegar hafa farið fram. Cox vandi sjálfur samstarfsmenn sina, sem eru flestir frá Kennedy- timanum. Þeirra á meöal er Philip Heyman, lögfræðipró- fessor við Harward, sem á sinum tima starfaði i dómsmálaráðu- neytinu hjá Robert Kennedy, Thomas McBride, sem er sér- fræðingur i „skipulegri glæpa- starfsemi” i Bandarikjunum, og James Neal, sem var sérlegur Framhald á bls. 39 Þrjár herbúðir Watergate- stríðsins Sérlegur rikissaksóknari i Watergateiniilinu. Archibald Cow. Sam Ervin, formaftur rann- sóknarnefndar öidungardeildar Bandarikjaþings. Watergate-málið er mun við- tækara en nafnið eitt gefur til kynna, þvi innbrotiö I Watergate er einungis einn liður i málinu — þótt það hafi hins vegar veriö sá þáttur málsins, sem leiddi af sér uppsljóstrun annarra þátta. Þess vegna hefur þetta nafn verið notað til aö tákna alla þá spillingu, sem Hvita húsið — samstarfsmenn forsetans og ef til vill Nixon sjálfur — hafa staftið fyrir. Segja má, að i Watergate-mál- inu séu þrjár megin-herbúftir, þar sem málið þróast. Það er i fyrsta lagi rannsóknar- nefnd öldungadeildarinnar, sem lýtur forystu Sam Ervins. I öðru lagi er það hinn sérlegi rikissak- sóknari vegna Watergate-máls- ins, Archibald Cox, sem Nixon forseti skipaöi til þess að kanna, hvort um lögbrot hafi verið að ræða, og hverjir hafi framið þau, og hefja siðan mál gegn þeim mönnum. Og i þriðja lagi er það svo Hvita húsið, þar sem ýmsir af beztu lögfræðingum Banda- rikjanna vinna að þvi aö verja

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.