Tíminn - 12.08.1973, Page 17

Tíminn - 12.08.1973, Page 17
Sunnudagur 12. ágúst 1973. TÍMINN 17 Ný landbjargarstefna Svía í ferðamálum AÐ LOKINNI verzlunarmanna- helgi fjallar leiðari aukablaðs Timans i dag um ferðamál, en blöðin höfðu öll beint athygli les- enda sinna að þeim fyrir og um helgina með f jölbreytilegum greinum, og gefið þá auglýsend- um góðfúslega tækifærítil að kynna ferðaþjónustu, sem hér er á boðstólum fyrir þá, sem njóta vilja fristunda i ferðalögum heima eða erlendis. I hinum fyrrgreinda leiðara Timans, sem nefnist „Islenzk ferðamál”, er vikið að frétt, sem nýlega birtist um það, að Sviar væru nú búnir að taka ákvörðun um að hætta að verja fé til þess að laða erlenda ferðamenn til lands- ins. Þykir höfundi leiðarans þetta að vonum vert állrar athygli, svo sem jafnan hefir orðið hér á Is- landi, þegar Sviar hafa rutt nýjar menningarbrautir, og segir hann „Viðbrögð Svia má skoða sem áskorun til annarra þjóða, þ.á.m. Islendinga, að endurskoða stefn- una i ferðamálum.” Þá höfum við það Upplýst er i leiðaranum, að ár- lega heimsækja Svia „u.þ.b. tvær milljónir erlendra ferðamanna”, en hins vegar er þagað um fjölda þeirra Svia, sem fara árlega til útlanda, enda skiptir hann senni- lega engu i þessu sambandi þó að sú tala sé hærri en útlendinganna, sem sækja Svia heim. Aðalatriðið er nú það, að $viar hafa tekið ákvörðun um að „endurskoða stefnuna i ferðamálum”, og ger- ast þannig brautryðjendur i land- bjargarmálum annarra þjóða „þ.á.m. Islendinga.” Þessu til áréttingar birtir Timinn einnig i þessu sama blaði grein Eiriks nokkurs Tómassonar, sem trú- lega er „E.T.” leiðarans, þar sem lýst er með ófögrum orðum þess fróma timarits Newsweek hvern- ig ameriskir — og trúlega einnig sænskir — túristar séu búnir að útsvina Kaupmannahöfn og Rómaborg. „Klámið tröllriður nú borginni við sundið”, og á Via Veneto, se.m Feljini kvað hafa gertódauðlega i mynd um strætið „sem var þá imynd glæsileikans” vegna þess að „auðugir greifar og barónar, jafnvel landlausir konungar eyddu kvöldunum á frægustu næturklúbbunum”, en þar sem náttúrumiklir Rómverj- ar kváðu nú nýlega hafa gert að- súg að eiginmanni bandariskrar konu „af þvi einu að hann hélt i hönd hennar.” Þetta er nú orðin mikil and- styggð sænskum heimatrúboðs- mönnum. Það skal engum Róm- verjanum átölulaust að stuðla að ósklrlifi á Stórgötunni i Stokk- hólmi. Héðan i frá skulu engir Danir fá að drekka sig fulla á Eyrarsundsferjunni yfir til Svi- þjóðar, þó að Sviar megi fá sér þar i staupi á leið til sinnar kæru Nýhafnar. Og hvers vegna eiga Rómverjar og Italir að leggja leið til Sviþjóðar, þegar alkunna er að enginn skortur er á ljóshærðum og lausgirtum senoritum, sem óð- fúsar vilja láta sænskar ferða- skrifstofur og flugfélög fá sinn siðasta eyri til Suðurlandaferðar? Nei, enga útlenda ferðamenn til Sviþjóðar. Þar vilja heimamenn fá að njóta i friði sinnar eigin náttúru. Um erlenda verkamenn gegnir náttúrlega allt öðru máli. 1 þvi efni gilda auðvitað allt aðrar reglur, sennilega þær sömu, sem uppi voru hafðar hér á árunum þegar þýzki vinnulýðurinn átti að bjarga islenzkum landbúnaði. En það var nú áður en útlendingarnir tóku til við að eyðileggja Rauð- hólana, sem leiðarasmiðurinn nefndir til dæmis um þá útbiun, sem varað er við i þessari ein- stæðu ritsmiö, þar sem uppistað an, textinn, er mesta ferðahelgi okkar Islendinga en útleggingin einangrunarraus. Nú má það.vel vera, að báðum sé það hollt, Svi- um og Islendingum, að reisa ein- hverjar skorður við sivaxandi fjölda erlendra ferðamanna. En meðan báðar þjóðirnar setja eng- ar takmarkanir við ferðum eigin þegna til annarra landa, þá verð- ur fordæmi Svia um fyrirhugaðar þjóðbjargaraðgerðir ekki flokkað til annars en þeirrar skinhelgi og þess strútsháttar, sem er öllu ær- legu fólki ósamboðiö, og áreiðan- lega engum Islendingi til fyrir- myndar. Mér vitanlega hafa aldrei verið hafðar uppi neinar ráðagerðir á Islandi um að troðfylla hér allt af erlendum ferðamönnum. Hér hafa nýlega verið sérfræðingar frá Sameinuðu þjóðunum, sem gerðu tillögur um islenzk ferða- mál, tillögur, sem við eigum eftir að ræða og taka um ákvarðanir. Það þurfum við vitanlega að gera sem allra fyrst. En i millitiðinni er okkur þess áreiðanlega meiri þörf að búa þannig i haginn, að við getum sjálf ferðast um landið, án þess að fyrirverða okkur fyrir sóðaskap, hirðuleysi og þau nátt- úruspjöll sem þvi fylgja en taka til við að apa eina vitleysuna enn eftir þeirri þjóð, sem eyðir hlut- fallslega meiri fjármunum til ferðalaga en flestar aðrar, og hef- ir ekki, mér vitanlega, verið talin til neinnar sérstakrar fyrirmynd- ar I hópi erléndra ferðamanna, hvorki i Kaupmannahöfn né Via Veneto. 7. ágúst, 1973 Sigurður Magnússon. Tilkynning til kaupgreiðenda Kaupgreiðendur, sem hafa i þjónustu sinni starfsfólk búsett i Kópavogi, eru hér með minntir á skyldu þeirra til að tilkynna mér um þessa starfsmenn sina og skyldu til að halda eftir opinberum gjöldum af launum starfsmanna að viðlagðri sömu ábyrgð og þeir bera á eigin gjaldskuldum. Verði kaupgreiðandi valdur að þvi með vanskilum á innheimtufé, að gjaldandi fái kröfu um dráttarvexti, verður kaupgreið- andi gerður ábyrgur fyrir greiðslu þeirra, auk þess sem slik vanskil varða refsingu skv. 247. gr. hegningarlaganna. Bæjarfógetinn i Kópavogi, 8. ágúst 1973 Sigurgeir Jónsson. •,*. ... • • • • t•• • •• ^ “ MÐ NÝJASTfl - «•• ••• • • #••• af tíz’ er nú að ::!i FOTIN • • • % * « • • • - • * • • • • • • • • • • fær unga fólkið við sitt hæfi — í CESAR Brekkugötu 3 — Sími 1-11-06 Póstsendum um allt land orane á Akureyri SKÓNA fó eldri sem yngri — við sitt hæfi — í LEÐURVÖRUAA Brekkugötu 3 — Sími 2-11-00 Póstsendum um land allt ■ • • •••# • • • • • • • • *••• *•• • • • • • •• • • • • • • • • • • *•••#

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.