Tíminn - 12.08.1973, Síða 21

Tíminn - 12.08.1973, Síða 21
Sunnudagur 12. áglist 1973. TtMINN 21 Hér má sjá nemendur Hvanneyrarskólans veturinn 1922-1923. Aö vísu mun einhvcrja nemendur vanta á sknlaspjaldiö, en þar eru allir, sem þátt tóku i ferðinni 23.-24. júni, siðast liðinn. Geta þeir sem gaman hafa af, bnriö nafualistann scm hér fylgir ineð, saman við skólaspjaldið. um og drukkið þar miðdagskaffi. Reyndar er hið hversdagslega orð „miðdagskaffi” villandi i þessu sambandi, og væri nær að tala um veizlu, svo höfðinglegar voru við- tökurnar á bænum þeim. — Það er sagt, að hófleg tilbreyting sé holl, og vist er það ekki amaleg viðbót, þegar ferðazt er um fag- urt hérað, að geta stigið út úr bflnum rétt úr bakinu og litazt um af hlaði stórbýlis, — ekki sizt þeg- ar veizluborð biður innan dyra. í Halldórslundi Þegar menn höfðu innbyrt góð- gerðirnar á Skálpastöðum eftir beztu getu, var aftur haldið_ af stað. Nú var farið að Halldors- lundi i Skorradal, en þar er skóg- rækt mikil. Lundurinn ber nafn Halldórs Vilhjálmssonar, fyrrum skólastjóra á Hvanneyri, og er helgaöur minningu hans. Skógar- vörður á staðnum er Agúst Arna- son, mikill áhugamaður um rækt- un og framúrskarandi viðræðu- góður. Agúst leiddi ferðalangana „vitt of mörkina” og sagði okkur frá þeirri starfsemi, sem þarna fer fram. Það var numið staðar hjá steininum, sem geymir nafn Halldórs Vilhjálmssonar. Þórður Njálsson kvaddi sér hljóðs og las frumsamið kvæði, en flutti fyrst stuttan inngang i óbundnu máii. Að þessu loknu var aftur haldið af stað og gengið i stóran sveig gegnum skóginn niður á veg. Menn höfðu f jarlægzt mjög bflinn, sem beiö niðri á vegi, en það kom ekki að sök,þvf að bilstjórinn hélt i humátt á móti göngumönnum, og innan skamms voru allir komnir i sæti sin á ný. Var nú stefnan tekin á Hvanneyri og ekið þangaö I einum áfanga. Ekki var annað hægt að sjá en að veðurguðirnir legðu blessun sina yfir þetta ferðalag. Rigning- in, sem dundi á bilnum um morguninn, hafði skilið við okkur i þann mund, sem við yfirgáfum bæi Hallgrims Péturssonar, Saurbæ og Ferstiklu, — og hún lét ekki sjá sig eftir það.Við fengum þurrviðri allan daginn, fjallabjart að mestu og meira að segja sólfar um tima. Ég held, að Ok hafi ver- ið eina fjaliið, sem ekki sýndi okkur tind sinn, þegar við vorum að sniglast i kringum Húsafell. Undir kvöldið þyngdi þó aftur að. Þá varð svalara i veðri og dálitið hráslagalegt. Við komum aftur að Hvanneyri, rétt mátulega til þess að drekka kvöldkaffið. Þegar þvi var lokið, var orðið timabært að taka á sig náðir, og fóru menn nú að búast til svefns. Flestir sváfu i nýju skólabyggingunni á Hvanneyri, en nokkrir hjá kunningjum. Þótt dagurinn hefði verið skemmtileg- ur, var hann þó engan veginn erfiðislau^enda munu menn yfir- leitt hafa verið þvi fegnir að taka á sig náðir. Það var hvorki meira né minna en sjálf Jónsmessunóttin, sem nú fór i hönd. Gjöf afhent. — Búizt til brottferðar. Næsti dagur, sem var sunnu- dagurinn 24. júni, var eingöngu helgaöur Hvanneyri. Skólastjóri Framhald á 29. siðu. Þátttakendur í móti Hvanneyringa 23. júní 1973 Björn J. Blöndal, Laugaholti, Andakilshreppi. Finnbogi Helgason, Sólvöllum, Mosfellssveit. Friðjón Ólafsson, Hafnarstræti 71, Akureyri. Guðlaugur Sigurðsson, Hrisum, Helgafellssveit. Gunnar Jónatansson, Laugateigi 17, Reykjavik. Helgi Skúlason, Guðlaugsvik, Bæjarhreppi, Strandasýslu. Hróflur Árnason frá Þverá, Húsavik, S-Þing. Karl E. Norðdahl, Hólmi v/Suðurlandsbraut, Reykjavik. Lýður Guðmundsson, Litlu-Sandvik, Árnessýslu. Magnús Kristjánsson, Þambárvöllum, Strandasýslu. Ólafur Helgason, Lindarflöt 43, Garðahreppi. Sigurbjörn Jónsson, Melhaga 17, Reykjavik. Sigurður Sigurgeirsson, Lundarbrekku, Bárðardal. Tómas Guðbrandsson, Viðivöllum 23, Selfossi. Þórður Njálsson, Hjarðardal, V-ísafj. Þorlákur Björnsson, Eyjarhólum, V-Skaft. Þorsteinn Guðmundsson, Skálpastöðum, Lundarreykjadal, Borg. _______________________________________________________________/ 1 feröinni var viða áö, meðal annars hjá Hvitá við Hraunfossa.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.