Fréttablaðið - 20.09.2004, Qupperneq 51
1–0 Julian Johnsson 16.
2–0 Julian Johnsson 23.
2–1 Andri Ólafsson 83.
DÓMARINN
Gylfi Þór Orrason slakur
BESTUR Á VELLINUM
Julian Johnsson ÍA
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 13–11 (7–6)
Horn 4–11
Aukaspyrnur fengnar 22–19
Rangstöður 1–3
GÓÐIR
Þórður Þórðarson ÍA
Hjálmur Dór Hjálmsson ÍA
Reynir Leósson ÍA
Gunnlaugur Jónsson ÍA
Julian Johnsson ÍA
Stefán Þór Þórðarson ÍA
Einar Þór Daníelsson ÍBV
2-1
ÍA ÍBV
MÁNUDAGUR 20. september 2004 19
Gildir út sept. 04
LIPPI Á VELLINUM Landsliðsþjálfari Ítala
kíkti á sína gömlu lærisveina í Juventus.
Ítalska A-deildin:
Montella
með þrennu
FÓTBOLTI Átta leikir fóru fram í ít-
ölsku deildinni í knattspyrnu í
gær. Bologna tók á móti AC Milan
þar sem gestirnir tryggðu sér sig-
ur með tveimur mörkum á
lokamínútum leiksins. Andriy
Shevchenko skoraði úr víta-
spyrnu á 85. mínútu og Ricardo
Kaka innsiglaði sigurinn þegar
hefðbundinn leiktími var liðinn.
Juventus vann Atalanta 2–0 með
tveimur mörkum Frakkans David
Trezeguet og er eitt á toppnum
með fullt hús stiga.
Fjörugasti leikurinn var viður-
eign Messina og Roma en þrenna
Vincenzo Montella dugði ekki til
fyrir gestina, sem töpuðu 4-3 og
fóru því stigalausir úr þeirri
viðureign. Lazio og Reggina skil-
du jöfn, 1-1, með mörkum frá
Simone og Bonazzoli.
Fiorentina vann Cagliari á
heimavelli, 2-1, Siena vann Samp-
doria, 2-1, og Udinese burstaði
Parma, 4-0.
Magnús Gylfason er búinn að gera frábæra hluti á síðustu tveim árum með ÍBV-liðið:
Hefur áhuga á að þjálfa Eyjaliðið áfram
FÓTBOLTI Magnús Gylfason, þjálf-
ari ÍBV, reyndi að bera sig vel
þrátt fyrir tapið. Hann átti
reyndar inni fyrir því enda búinn
að vinna frábært starf með liðið.
„Við vorum svolítið stressaðir og
komumst ekki í gang,“ sagði
Magnús en strákarnir hans urðu
pirraðir mjög snemma í leiknum
og gerðu sig ítrekað seka um ljót
brot í leiknum. „Þetta er svolítið
jaxlalið, ég verð að viðurkenna
það. Ég er samt sáttur við að hafa
náð öðru sæti í mótinu. Við
höfum spilað sóknarbolta og
skoruðum mest í sumar.“
Samningur Magnúsar við ÍBV er
búinn en hann mun setjast niður
með forráðamönnum félagsins
eftir helgi.
„Ég hef áhuga á að starfa áfram
fyrir félagið og vonandi vilja
þeir halda áfram að vinna með
mér.“
Ólafur Þórðarson, þjálfari ÍA,
var ánægður að hafa endað mótið
vel.
„Ég veit ekki hvar þessi bolti
hefur verið. Ætli hann hafi ekki
verið í höfðinu á mönnum. Því
miður vorum við í ládeyðu á
köflum og náðum ekki okkar
besta í sumar. Við ætluðum
okkur meira. Okkur vantar tíu
marka mann og það höfum við
ekki. Það er erfitt. Það verða ein-
hverjar breytingar í vetur og
hvað varðar sjálfan mig þá ræði
ég málin við stjórnina strax eftir
helgi.
ÍBV sá aldrei til sólar á Akranesi
Skagamenn sáu til þess að ÍBV átti aldrei möguleika á titlinum. Eyjamenn fengu engu að síður
silfur en Skagamenn urðu að sætta sig við þriðja sætið í deildinni.
FÓTBOLTI ÍBV átti möguleika á að
verða Íslandsmeistari í gær ef
þeir hefðu lagt ÍA og FH hefði
tapað fyrir KA. Það reyndist
aldrei vera raunhæfur mögu-
leiki. ÍA sigraði ÍBV sanngjarnt
og sannfærandi, 2–1, og svo vann
FH fyrir norðan. ÍBV varð því í
öðru sæti í ár en ÍA í þriðja en
þeir hefðu þurft að sigra ÍBV
með fimm marka mun til þess að
komast í annað sætið.
Julian Johnsson skoraði bæði
mörk Skagamanna í leiknum og
þau slökktu í raun allar vonir
ÍBV. Leikmenn ÍA léku á als oddi
í fyrri hálfleik og hefðu hæglega
getað skorað fleiri mörk í
hálfleiknum. Þeir léku hreint út
sagt frábæra knattspyrnu og
hefðu þeir leikið svona í allt
sumar hefði staða þeirra hugsan-
lega verið önnur en hún var.
ÍBV byrjaði síðari hálfleik af
miklum krafti en ÍA stóðst álagið
og eftir það dró smám saman úr
sóknarkrafti ÍBV. Eyjamenn
skoruðu skömmu fyrir leikslok
en sköpuðu sér engin færi eftir
það. Sigur Skagamanna var því
aldrei í hættu þrátt fyrir að þeir
hefðu gjarnan vilja vinna leikinn
stærra, en eins og svo oft áður í
sumar gekk þeim illa að skora.
Vilji þeir eiga möguleika á titli
næsta sumar verða þeir að gjöra
svo vel og kaupa sér almennilega
markaskorara fyrir næsta
sumar. Rætt hefur verið um að
þeir vilji fá Færeyinginn
Andrew av Flötum í framlínuna
en undirritaður efast stórlega
um að hann sé maðurinn sem
Skagamenn vantar.
Árangur ÍBV í sumar er stór-
glæsilegur enda var ekki búist
við neinu af liðinu og margir
spáðu því jafnframt falli.
Eyjamenn blésu á slíkar hrak-
spár og voru með í baráttunni
allt til enda.
Þeir féllu þó illilega á loka-
prófinu og liðið virkaði tauga-
veiklað og komst aldrei almennile-
ga í gang að þessu sinni. Einar Þór
Daníelsson virtist hafa mestan
áhuga á því að leika knattspyrnu í
liðinu en flestir kollega hans höfðu
meiri áhuga á því að rífa kjaft og
að meiða Skagamennina.
ÍA stendur uppi með tvær
hendur tómar í lok sumars og
verða án Grétars Rafns Steins-
sonar næsta sumar og svo er
hugsanlegt að Haraldur Ing-
ólfsson leggi skóna á hilluna. Það
verður áhugavert að sjá hverju
þeir bæta við sig í vetur en
viðbúið er að Ólafur Þórðarson
þjálfi liðið áfram.
Grunnurinn að meistaraliði er
svo sannarlega til staðar hjá
Skagamönnum en þeir verða að
stoppa í götin ætli þeir sér alla
leið.
henry@frettabladid.is
SILFURSTRÁKAR
Leikmenn ÍBV tóku á móti silfurpeningum
eftir leikinn gegn ÍA. Þeir höfðu þó litlu að
fagna þar sem þeir töpuðu leiknum.
Spænska úrvalsdeildin:
Markaregn
FÓTBOLTI Það var nóg sem gladdi
augað í leik Real Zaragoza og
Albacete í spænsku deildinni í
knattspyrnu í gær, sem endaði 4-3
fyrir heimamenn. Zaragoza komst
í 4-3 en Castro Ruben minnkaði
muninn á 89. mínútu fyrir Al-
bacete. Javi Moreno skoraði tvö
fyrir Real og Bortolini Savio og
David Villa gerðu sitt markið hvor.
Það var hins vegar fátt sem
gladdi augað í leik Atletico Ma-
drid og Barcelona. Leikurinn var
með daufara móti og endaði með
jafntefli, 1-1. Giovanni van
Bronckhorst kom gestunum yfir á
21. mínútu en Fernando Torres
jafnaði í byrjun seinni hálfleiks.
Önnur úrslit voru þau að Atlet-
ico Bilbao gerði jafntefli við
Deportivo La Coruna, 1-1. Sevilla
vann Levante, 3-0. Mallorca tap-
aði fyrir Malaga á heimavelli, 1-2.
Numancia sigraði Getafe með
marki frá Julio Pineda, 1-0, og
loks gerðu Racing Santander og
Villarreal jafntefli, 1-1.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I