Fréttablaðið - 22.09.2004, Síða 17
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 133 stk.
Keypt & selt 25 stk.
Þjónusta 36 stk.
Heilsa 10 stk.
Skólar & námskeið 2 stk.
Heimilið 17 stk.
Tómstundir & ferðir 6 stk.
Húsnæði 24 stk.
Atvinna 34 stk.
Tilkynningar 7 stk.
Fjölmargir í fjarnámi í Ármúla
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er miðvikudagurinn
22. september,
266. dagur ársins 2004.
Reykjavík 7.11 13.20 19.28
Akureyri 6.55 13.05 19.13
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Miðstöð símenntunar í Hafnarfirði reynir
að brydda upp á skemmtilegum nýjungum
á hverri önn og í haust verður boðið upp á
nýtt námskeið í mósaík. Það er Alice Olivia
Clarke sem leiðbeinir á námskeiðinu en hún
er kanadísk mósaíklistakona sem hefur
verið búsett á Íslandi í 11 ár og gert mörg
stór mósaíkverk, meðal annars á veitinga-
staðnum Vegamótum og nú nýlega afhenti
hún stórt listaverk sem prýðir nýja bóka-
safnið í Hafnarfirði.
„Eftir að hafa unnið svona stór verk þar
sem ég þarf að vera mjög nákvæm og öguð
langar mig að leika mér svolítið,“ segir Alice.
„Ég ætla að hafa námskeiðið létt og
skemmtilegt og vona að ég fái sem flesta
með mér. Ég hef oft verið spurð hvenær ég
ætli að halda námskeið og nú þegar ég er
komin með aðstöðu er bara að slá til. Við
munum búa til spegla og fólk fær leiðsögn
um hvernig á að nota verkfærin og efnið og
hvernig maður ber sig að við skurðinn. Ef
vel gengur verð ég örugglega með fram-
haldsnámskeið,“ segir Alice, og bendir á
heimasíðu sína sem er www.aok.is.
Mósaíknámskeiðið hefst 27. september
og hægt er að skrá sig hjá Námsflokkum
Hafnarfjarðar. ■
Námskeið í Hafnarfirði:
Mósaík fyrir byrjendur
nam@frettabladid.is
Sérstakar aðferðir sem stjórn-
endur geta beitt til að ná
hámarksárangri starfsfólks eru
kenndar á námskeiði hjá fyrir-
tækinu Þekkingarmiðlun 27.
og 29. september kl. 9-13. Þar er
meðal annars kennt hvernig má
leysa úr læðingi aukna ábyrgðar-
tilfinningu og frumkvæði hjá
fólki. Námskeiðið er ætlað
stjórnendum, ráðgjöfum og öðru
lykilfólki fyrirtækja. Það hentar
öllum þeim sem hafa það mark-
mið að draga fram það besta hjá
samstarfsfólki sínu. Kennari er
Ingrid Kuhlman og veffangið er
thekkingarmidlun.is
Menntagátt er gagnagrunn-
ur með námsefni fyrir öll skóla-
stig. Þar eiga allir frían aðgang á
slóðinni menntagatt.is. og geta
kennarar og aðrir sem hafa
áhuga á skólamálum fengið á
svipstundu upplýsingar um
námsefni sem tengist ákveðinni
námsgrein, skólastigi eða sér-
stöku markmiði í námsskrá. Á
forsíðu Menntagáttar birtast líka
daglega áhugaverðar fréttir sem
tengjast skólamálum og mennt-
un í víðu samhengi. Sigrún Eva
Ármannsdóttir er verkefnastjóri
Menntagáttar.
Að efla sjálfstraust og
sjálfsöryggi er heiti námskeiðs
sem haldið er hjá Þekkingar-
miðlun 4. október kl. 8.30-
16.30. Þar læra þátttakendur
leiðir til að virkja afl jákvæðs
sjálfsálits. Farið er í mikilvægi
þess að þora að gera mistök,
læra af þeim og takast á við
gagnrýni. Þátttakendur fá innsýn
í eigin hugsanir og hegðun og
öðlast meira öryggi í samskipt-
um. Farið er m.a. í skynjun á
eigin getu, tengsl hugarfars og
líðan og áhrif hugsana á hegðun
og ákveðni í samskiptum. Vef-
fang fyrirtækisins er thekking-
armidlun.is
Helgarnámskeið í ljósmynd-
un verða haldin þrjár helgar í
október að Völuteigi 8 í Mos-
fellsbæ. Þau kosta 9.900 kr.
Kennd er stafræn ljósmyndun
og leiðbeinandinn er Pálmi
Guðmundsson. Námskeiðin eru
2. og 3. , 9. og 10. og 30. og 31.
október og eru haldin á vegum
www.ljosmyndari.is. Einnig er
þar í boði fjarnámskeið í ljós-
myndun sem fólk getur tekið
hvenær sem er og á þeim hraða
sem hentar því. Verð þeirra er
11.500 krónur.
Alice er mósaíklistamaður og hefur gert fjölda stórra verka. Nú
ætlar hún að kenna fólki þessa list á námskeiði í Hafnarfirði.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í NÁMI
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Pabbi klippir
runnana úti
og ég klippi
stofublómin
inni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Vídeóupptökur, heimilisbók-
hald og vellíðan á vinnustað
eru meðal nokkurra nám-
skeiða sem félögum í SFR,
stéttarfélagi í almannaþjón-
ustu og Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar býðst á
þessu hausti. Yfirskrift
námskeiðanna er Gott að
vita og eru þau flest ókeypis
fyrir félagsmenn. Jóhanna
Þórdórsdóttir, fræðslustjóri
SFR, var spurð út í nám-
skeiðin. Fyrst vídeófræðsl-
una. „Þetta er nýtt nám-
skeið,“ segir hún. „Mjög
margir eiga vídeóvélar en
eru kannski ekki nógu
öruggir með hvernig best er
að taka myndirnar, út frá
hvaða sjónarhorni og annað
slíkt.“ Námskeið um fjármál
heimilanna og heimilisbók-
hald segir Jóhanna stöðugt
vera vinsæl og líka sjálfs-
hjálparnámskeið af ýmsu
tagi. Þekkirðu hæfni þína,
heitir eitt og Breytingar sem
tækifæri, annað. Hið þriðja
heitir Vellíðan á vinnustað
og Jóhanna bendir á að fólk
verji að jafnaði einum þriðja
af ævi sinni á vinnustað
og mikilvægt sé að því líði
þar vel. „Öll lífsins þraut
verður auðvitað ekki leyst á
þremur tímum en kveikir
kannski einhverjar hug-
myndir til bóta,“ bendir hún
á að lokum. ■
Fólk eyðir þriðjungi ævinnar á
vinnustað og því mikilvægt að
líða vel þar.
Gott að vita:
Mikilvægt að líða vel á vinnustað