Fréttablaðið - 18.10.2004, Page 56
Friðrik Sophusson forstjóri
Landsvirkjunar, er afmælisbarn
dagsins en hann er 61 árs í dag.
„Það stendur ekkert sérstakt til á
afmælisdaginn en heima er þó
venja að halda upp á afmælis-
daga með afmæliskaffi eða hafa
sérstakan mat í tilefni dagsins.
Annars er þessi dagur mér sér-
staklega kær því amma mín átti
afmæli þennan sama dag,“ segir
Friðrik og vill nefna að heilmikið
sé um dýrðir hjá fjölskyldunni í
októbermánuði því hvorki meira
né minna en fimm afkomendur
hans eiga afmæli í mánuðinum.
Þegar talið berst að eftir-
minnilegum afmælisdögum nefn-
ir hann sextugsafmælið fyrir ári
síðan. „Ég hélt upp á það með
fjölskyldunni austur við Búrfell,
við Búrfellsvirkjun, og var það
afskaplega eftirminnilegt. Þetta
var einstaklega ánægjulegt
vegna þess að móðir mín sem lést
fyrr á þessu ári gat tekið þátt í
þessu með okkur. Svo höfum við
þann sið hér í Landsvirkjun að
við bjóðum nánustu samstarfs-
mönnum meðlæti með kaffinu,“
segir Friðrik sem segist nú ekki
vera mikið með hugann við af-
mælið, frekar séu það orkumálin
sem eru honum hugleikin.
„Orkumálin eru mikið í
brennidepli og það er ekki bara
vegna Kárahnjúkavirkjunar,
heldur hefur hátt olíuverð í heim-
inum mikil áhrif. Það er ljóst að
græn og endurvinnanleg orka
sem fæst hér á Íslandi úr eldi og
ís vekur alls staðar athygli,“ seg-
ir Friðrik en hann situr í samtök-
unum Samorku sem formaður en
það eru samtök orkufyrirtækja á
Íslandi.
„Samorka hélt ákaflega vel
sóttan fund um orku í tengslum
við menningarhátíðina í París.
Allar ræður fóru fram á frönsku
og Vigdís Finnbogadóttir stjórn-
aði af mikilli list umræðunum á
fundinum,“ segir Friðrik sem
segir Landsvirkjun sjálfa vera í
góðum gír enda er verið að undir-
búa fyrirtækið undir miklar
breytingar sem eiga sér stað um
áramótin. „Er það ekki það sem
menn vilja komnir á þennan ald-
ur, góða heilsu og næg verkefni?“
spyr Friðrik að lokum.
kristineva@frettabladid.is
20 18. október 2004 MÁNUDAGUR
CHUCK BERRY
Þessi mikli áhrifavaldur í rokkinu fæddist á
þessum degi árið 1926.
Góð heilsa og næg verkefni
FRIÐRIK SOPHUSSON: SINNIR VINNU SINNI Á 61 ÁRS AFMÆLINU SÍNU
„Ef þið viljið reyna að gefa rokki og róli
annað nafn gætuð þið alveg kallað það
Chuck Berry.“
- Meistari John Lennon kunni að orða hlutina og hafði þetta að
segja um afmælisbarn dagsins.
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
Gísli Felix Bjarnason handboltamaður
er 42 ára.
ANDLÁT
Árni Einar Guðmundsson, Meðalholti
10, lést 3. október. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey.
Sigríður S. Jakobsdóttir, áður Álftahól-
um 8, lést 7. október.
Oddur Jakob Bjarnason, Engjavegi 20,
lést 9. október.
JARÐARFARIR
13.30 Árni Sveinsson, Starengi 10, verð-
ur jarðsunginn frá Grafarvogs-
kirkju.
13.30 Hjördís Kjartansdóttir, Seilugranda
9, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju.
FRIÐRIK SOPHUSSON Er 61 árs í dag en er frekar með hugann við orkumálin og sérstöðu Íslands í þeim málum en afmælið. „Það er
ljóst að græn og endurvinnanleg orka sem fæst hér á Íslandi úr eldi og ís vekur alls staðar athygli.“
Einar Jónsson myndhöggv-
ari lést á þessum degi árið
1954 en hann var þá 80 ára
að aldri. Hann var fyrsti ís-
lenski myndhöggvarinn og
ruddi listinni braut á Ís-
landi auk þess sem áhrif
hans á íslenska myndlist
voru veruleg. Hann nam við
Konunglega listaakademí-
una í Kaupmannahöfn á ár-
unum 1896-1899 hjá Wil-
helm Bissen og Theobald
Stein.
Einar sótti innblástur í
íslenska þjóðsagnaarfinn í
Útlögunum og fleiri verk-
um frá fyrsta áratug 20.
aldarinnar en vann einnig
með goðfræðileg og trúar-
leg minni.
Árið 1909 bauð Einar ís-
lensku þjóðinni öll verk sín
að gjöf með því skilyrði að
reist yrði yfir þau safnhús.
Það var hins vegar ekki fyrr
en árið 1914 sem Alþingi Ís-
lendinga þáði gjöfina. Einar
valdi safni sínu stað á Skóla-
vörðuhæð. Safnið var reist
eftir teikningu listamanns-
ins og má því segja að safn-
byggingin sé hans stærsti
skúlptúr en þar vann hann
verk sín, sýndi þau og bjó
sér jafnframt heimili.
18. OKTÓBER 1954 Einar Jóns-
son myndhöggvari lést á þessum
degi 80 ára gamall.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1469 Ferdinand af Aragon geng-
ur að eiga Ísabellu frá
Kastillíu en hjónabandið
sameinar öll héröð Spánar.
1867 Bandaríkjamenn taka
formlega við Alaska af
Rússum. Bandaríkjamenn
greiddu 7 milljónir dollara
fyrir landsvæðið.
1931 Uppfinningamaðurinn
Thomas Alva Edison deyr
84 ára að aldri.
1943 Fyrsti útvarpsþátturinn um
ævintýri lögfræðingsins
Perry Mason fer í loftið á
CBS. Þátturinn fór svo í
sjónvarp árið 1957.
1944 Sovétmenn ráðast inn í
Tekkóslóvakíu í seinni
heimsstyrjöldinni.
1971 Síðasta tölublað tímaritsins
Look kemur út og þar með
lýkur 34 ára útgáfusögu
þess.
Ísabella Ósk Eyþórsdóttir var
kjörin blaðberi októbermánaðar
af dreifingardeild Fréttablaðsins
og fékk að launum DVD-spilara
sem hún segist vera alsæl með.
Hún hefur verið blaðberi í rúmt
ár í Keflavík og segir þetta ekki
vera neitt mál. „Ég vakna klukkan
hálfsex á morgnana til að bera út
og er búin um sjöleytið. Þá tek ég
mig til fyrir skólann sem byrjar
klukkan átta,“ segir Ísabella Ósk,
en henni þykir lítið mál að fara á
fætur á morgnana. „Og ef það er
kalt úti þá klæði ég mig bara vel.“
Samkvæmt dreifingardeild blaðs-
ins var hún valin sökum þess
hversu vel hún stendur sig. Aldrei
hafa borist neinar kvartanir, en
Ísabella segist vera skipulögð og
halda sig við sömu rútínuna á
hverjum morgni.
Hún segist lítið hafa fyrir
stafni í verkfallinu nema blað-
burðinn og fótboltaæfingar en
hún spilar með 4. flokki kvenna í
Keflavík. „Fótboltinn er mjög
skemmtilegur og er ég yfirleitt í
marki sem er mjög fínt,“ segir
Ísabella Ósk. Verkfallið plagar
hana svo sem engin ósköp þó
stundum segist hún vera til í að
fara aftur í skólann. „Ég er reynd-
ar í fermingarfræðslunni líka og
hlakka ég mikið til að fermast í
vor,“ segir Ísabella Ósk. ■
BLAÐBERI MÁNAÐARINS
ÍSABELLU ÓSK EYÞÓRSDÓTTUR FINNST EKKERT MÁL AÐ RÍFA SIG UPP SNEMMA Á MORGNANA
Lítið mál að vakna snemma
Brautryðjandi fellur frá
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn
19. október kl. 13.30.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Ófeigsson
Kirkjusandi 1, Reykjavík,
Kristín Guðmundsdóttir, Jóhann Guðmundsson, Guðrún Kristinsdóttir,
Helga Guðmundsdóttir Sørdal, Bjarnfríður Guðmundsdóttir,
Guðmundur Ingi Haraldsson, Ófeigur Guðmundsson,
Lilja Friðvinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
ÍSABELLA ÓSK EYÞÓRSDÓTTIR Ísabella Ósk Eyþórsdóttir er blaðberi mánaðarins hjá
Fréttablaðinu. Hún er búin að bera út í rúmt ár og segir það ekkert mál að rífa sig upp
snemma á morgnana og koma Fréttablaðinu til lesenda í Keflavík.
Tilkynningar um
andlát og jarðarfarir
eru velkomnar á síður
Fréttablaðsins.
Sími: 550 5000
KELDUSKÓGAR 1-3 Fyrstu íbúðirnar í
þessu fjölbýlishúsi á Egilsstöðum voru af-
hentar eigendum sínum á laugardaginn.
Fyrsta háhýsið
á Austurlandi
Malarvinnslan hf. afhenti fyrstu
tvær fullbúnu íbúðirnar í nýju sjö
hæða fjölbýlishúsi við Keldu-
skóga 1-3 á Egilsstöðum á laugar-
daginn. Viðburðurinn markaði
ákveðin tímamót í byggingarsögu
Austurlands því fjölbýlishúsið við
Kelduskóga er fyrsta eiginlega
háhýsið á Austurlandi. Þar fyrir
utan hafa svo margar íbúðir
aldrei áður komið inn á fasteigna-
markaðinn á Austurlandi í einu.
Þetta er í takt við þá þróun sem
átt hefur sér stað á fasteigna-
markaðnum á Austurlandi undan-
farna mánuði og er lýsandi fyrir
þá hröðu uppbyggingu sem nú á
sér stað í fjórðungnum.
Fjölbýlishúsið við Kelduskóga
1-3 er byggt úr forsteyptum ein-
ingum sem framleiddar eru í ein-
ingaverksmiðju Malarvinnslunn-
ar á Egilsstöðum. Fyrsta skóflu-
stungan að húsinu var tekin 2. maí
2003 og 10. júní var byrjað að
steypa sökkla. ■