Fréttablaðið - 31.10.2004, Page 10

Fréttablaðið - 31.10.2004, Page 10
Samfélag íslenskrar tungu er fá- mennt. Í reynd má segja með ólík- indum hvað hún hefur haft það gott í einangrun sinni í ystu höfum. Um margra aldna skeið lifði ís- lenskan af erlend ítök og varð síðar að helsta vopni landsmanna í sjálf- stæðisbaráttu þeirra. Tungan varð snar þáttur í sjálfsvit- und þjóðarinnar; einkennis- tákn hennar og auðkenni. Fáar aðrar þjóðir – ef nokkrar – hafa státað af einu tungumáli í landi sínu. Og eintunguþjóðinni hefur fátt fundist skemmtilegra en að baða sig í þessari dá- samlegu sérstöðu. Eitt mál. Einstök þjóð. Alla síðustu öld var ís- lenskan sjálfsagt mál. Og þrátt fyrir æ enskari áhrif stóðu menn vörð um hana; ákafir og íhaldssamir og þess fullvissir um að hún stæðist áhlaup umheims- ins. Heilu ljóðabálkarnir voru jafnvel samdir um yfirburði íslenskrar tungu; heilu fræðigreinarnar hafa orðið til um mikilleika málsins; heilu stofnanirnar hafa verað settar á fót til að verja stöðu þess. Málfræðilega hefur Ís- land verið varið land. Þjóð- fræðilega höfum við talið okkur trú um að gamla ís- lenskan geti staðist tímans tönn. En tönnin er brotnuð Vörnin er brostin. Einangrun Íslands löngu rofin. Útrás Íslendinga virðist engin takmörk sett. Þjóðarvitundin hefur brenglast. Íslenskan hefur veikst. Og hún mun halda áfram að veikjast eftir því sem hnattvæð- ingin verður sjálfsagðari partur af daglegu lífi fólks. Á nýrri öld mun ekkert ljóðskáld yrkja um yfir- burði íslenskunnar. Á nýrri öld er líklegra að skáldin yrki á öðru tungumáli en íslensku. Og eru svo sem þegar byrjuð á því. Ísland er að verða fjöltungu- þjóð. Ef gengið er inn á milli rekk- anna í matvörubúðum landsins er allt eins líklegt að heyra pólsku í stað íslensku – og handan við hornið má allt eins búast við portú- gölsku, taílensku og serbnesku. Fyrir nú utan enskuna sem um- lykur landið eins og lægðarsveipur. Fyrir nokkrum vikum ráfaði ég um Kringluna. Mér varð hverft við þegar ég sá nafngift einnar búðar- innar. Þar stóð skýrum stöfum; Ið- unn. Mér þótti þetta óvenjulegt. Ensk heiti velflestra verslana á Ís- landi eru fólki svo töm að íslenskar nafngiftir vekja athygli, jafnvel undrun, aðhlátur. Margar þessara búða auglýsa varning sinn á ensku. Límmiðar í gluggum þeirra bera ekki lengur nafnið „útsala“ heldur „sale“ og æ oftar gerist það að sölumaðurinn sjálfur talar ensku í stað íslensku. Kvikmyndahús eru hætt að aug- lýsa myndir sínar með íslenskum heitum. Sömu hús kynna myndir sínar með enskum þulum og eru hætt að birta skýringartexta á ís- lensku með djúpradda áróðrinum. Einn kunnasti bílainnflytjandi landsins er að mestu hættur að nota íslenskt slagorð með bifreið- um sínum en notast þess í stað við orðin „tomorrow“ og „today“. Í heftum sem fylgja sölumennsk- unni eru eiginleikar bílsins út- skýrðir á ensku. Allt umhverfi Íslendinga er ým- ist að verða enskara eða alþjóð- legra. Tölvan og önnur tækni ræð- ur för; ekki íslenskan. Allt upplýs- ingasamfélagið er knúið áfram af auðskildu máli; ekki íslensku. Öll samskiptakerfi tala einu máli; ekki íslensku. Nútíminn er powerpoint. Nútíminn er rush hour. Og amen er enter. Þórður Ævarsson heitir Thord- ur Aevarsson. Fyrirtæki sem ætla sér vinn- inga á erlendri grundu hafa unn- vörpum beytt um nafn. Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna heitir Icelandic Group. Flugleiðir heita Icelandair. Keppinauturinn Iceland Express. Annað félag Avion. Ef enskan dugar ekki er sótt í sjóði latínunnar, svo sem Actavis hefur gert og sömuleiðis ótölulegur fjöldi lögmanna- og innheimtufyrirtækja sem heita óskiljanlegustu nöfnum, en allt mun það þykja heldur flott. Meira að segja íslenskar fasteigna- sölur hafa flúið íslenskuna og ým- ist gripið til ensku eða latínu – og er þá fokið í flest skjól. En þetta er eðlileg þróun. Svona hlaut íslenskan að þróast. Það hlaut að koma að því að hún tæki stökk. Íslenskt tungumál er að verða undir í alþjóð- legri samkeppni. Heilu fyrirlestrarnir í skólum landsins eru fluttir á ensku; sumar námsgrein- ar eru ekki lengur kennd- ar á íslensku; heilu ráð- stefnurnar fara einvörð- ungu fram á ensku. Rétt eins og íslensk þjóð, sem lifði af margra aldna stöðnun fram á miðja síðustu öld, hjakk- aði íslenskan í sama far- inu mann fram af manni og sótti – og sækir enn – líkingar sínar í löngu liðna verkmenningu. Hreintungustefnan hef- ur gert hana berskjald- aða fyrir utanaðkomandi áreiti. Varnarbaráttan, sem hefur staðið yfir í góðan mannsaldur, hef- ur eyðilagt sóknarfærin. Og nú líður að leikslok- um; ylhýra íslenskan nálgast óðum „injury time“. Íslensk tunga mun á næstu áratugum verða eitt af tungumál- um þjóðarinnar. Þegar fram í sækir verður hún þægileg hvíld frá alþjóðamálinu; ágætis heimil- ismál en úti á vinnumarkaðnum mun enskan sækja á af stóraukn- um krafti. Þjóðin verður tví- tyngd, jafnvel fjöltyngd. Eftir nokkur ár verða allir upplýsinga- bæklingar jafnt á ensku sem íslensku. Svili minn er bandarískur – og hefur verið búsettur hér á landi í tæpt ár. Hann starfar í tölvu- bransanum. Hann þarf ekki að tala íslensku þar. Fyrirtækjamál í mörgum greinum atvinnulífsins eru fyrir margt löngu orðin blanda nokkurra tungumála. Fé- lagi minn rekur útflutningsfyrir- tæki og kveðst tala ensku oftar en íslensku. Símsvarinn í fyrirtæki hans er einvörðungu á ensku. Öll skjöl sem hann lætur frá sér eru sömuleiðis á ensku. Og svo eru það börnin; nýtt tungumál þeirra lýtur lögmálum tækninnar – sms, tölvuleikja, far- tölva – og ég er að mörgu leyti hættur að skilja þau. Well, its strange, but happen- ing ... ■ Stjórnmálaástandið á Íslandi um þessar mundir er að mörguleyti einkennilegt. Það er eins og enginn viti hver ræður íraun ferðinni í landsstjórninni eða hvert stefnt er. Fram- vinda allra hinna stærri mála er í óvissu. Hnyttilegt orðasamband, „Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra í ríkisstjórn Davíðs Odds- sonar“, sem heyrist víða á förnum vegi um þessar mundir, birtir með sínum hætti ákveðna mynd af stöðunni. Hinum nýja forsæt- isráðherra hefur enn ekki tekist að skapa sér þá mynd í augum al- mennings að hann sé skipstjórinn á þjóðarskútunni. Líklegt er að linkind hans og geðleysi í kennaradeilunni eigi þar hlut að máli. Þótt liðinn sé mánuður frá því að Alþingi kom saman eftir sumarhlé liggja engin stór og stefnumarkandi stjórnarfrumvörp, önnur en fjárlagafrumvarpið, fyrir þinginu. Frumvörpin sem fyrir liggja eru aðeins sextán að tölu og flest um léttvæg efni. Nær helmingur allra ráðherra í ríkisstjórninni hefur enn ekkert fram að færa. Ekki eitt einasta stjórnarfrumvarp er komið frá forsætisráðherra, utanríkisráðherra, menntamálaráðherra, landbúnaðarráðherra og sjávarútvegsráðherra. Er ólíklegt að slík staða hafi nokkru sinni áður komið upp nema þegar um óvenjulegt stjórnmálaumrót hefur verið að ræða. Stjórnarandstæðingar hafa lagt fram mörg þingmannafrumvörp, flest endurflutt frá fyrri þingum, en reynslan segir okkur að ekkert þeirra muni ná fram að ganga. Nú um helgina fóru næstum allir ráðherrarnir á þing Norður- landaráðs í Stokkhólmi. Á sama tíma ríkir algjör óvissa um skóla- starf á Íslandi vegna þeirra dræmu undirtekta sem miðlunartil- laga ríkissáttasemjara í kennaradeilunni virðist ætla að fá. Það er ákveðið virðingarleysi við þjóðina þegar æðstu ráðamenn hennar víkja sér undan því að standa vaktina á heimavelli meðan svo alvarleg deila, sem kennaraverkfallið er, er til lykta leidd. Fyrir Norðurlandaþinginu liggur ekkert til afgreiðslu sem máli skiptir. Mikilvægi samkomunnar er að venju stórlega ýkt af hagsmuna- ástæðum. Nær sanni er að tala um hefðbundna skemmtiför og samkvæmisleik stjórnmálamanna og embættismanna. Það eru ekki ráðherrarnir einir sem fara á ballið í Stokkhólmi. Þangað fer einnig stór hluti þingmanna úr öllum flokkum, þar á meðal leiðtogar stjórnarandstöðunnar. Reynslan segir að þingstörf muni að mesta liggja niðri á meðan þótt þinghald sé að forminu til. Í vikunni sem leið voru engir fundir á Alþingi vegna svokallaðrar kjördæmaviku. Er óskiljanleg sú ráðstöfun að gera hlé á störfum þingsins í sjö daga þegar það hefur aðeins setið í þrjár vikur. Sumir segja að því sjaldnar sem Alþingi komi saman því betra fyrir þjóðfélagið. Átt er við að lagasetning og aðrar þingsam- þykktir séu ekki alltaf þjóðlífinu til framdráttar. Vissulega eru mörg dæmi um vond lög og vondar ályktanir Alþingis en hinu má ekki gleyma að Alþingi er lykilstofnun í lýðræðiskerfi okkar og málstofa þjóðkjörinna fulltrúa. Þótt finna megi með réttu að mörgu sem frá þinginu kemur er hitt mikilvægara að það er hinn lýðræðislegi vettvangur réttarbóta og nýmæla, þjóðfélagsum- ræðu og eftirlits með framkvæmdavaldinu. Deyfðin á Alþingi og stefnuleysið í þingstörfunum og ríkisstjórninni er því réttmætt áhyggjuefni. ■ 31. október 2004 SUNNUDAGUR SJÓNARMIÐ GUÐMUNDUR MAGNÚSSON TÍÐARANDINN SIGMUNDUR ERNIR RÚNARSSON Deyfð yfir Alþingi og ríkisstjórn en samkvæmislíf fjörugt á Norðurlandaþingi í Stokkhólmi. Einkennilegt ástand FRÁ DEGI TIL DAGS Kópavogur – tækifæri í menningu og listum Samfylkingin í Kópavogi efnir til opins fundar um menningar- og listastarf í Kópavogi mánudagskvöldið 1. nóvember kl 20.00 í sal Samfylkingarinnar, Hamraborg 11 3. hæð. Dagskrá: Fjárframlög til lista- og menningarmála í Kópavogi • Sigrún Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Kraftar leystir úr læðingi - framtíðarsýn • Ása Richardsdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í Lista- og men- ningarráði Listir og menning í Reykjavík • Eiríkur Hjálmarsson, aðstoðarmaður borgarstjóra í Reykjavík Samræður um stöðu lista og menningar í Kópavogi Fundarstjóri: Hafsteinn Karlsson, bæjarfulltrúi Samfylkingin í Kópavogi ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Undanhald íslenskunnar Misjafnt hljóðið Það tóku ýmsir eftir því að það var misjafnt hljóðið í fulltrúum sveitarfé- laga og kennara eftir miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Á meðan Eiríkur Jónsson lagði kapp á að vera hvorki með né á móti tillögu Ásmundar Stef- ánssonar og sagði kennara þurfa að meta tillöguna sjálfir, voru fulltrúar sveitarfélaganna komnir í PR- gírinn og töluðu nær ein- göngu um hvað þetta yrði dýrt fyrir sveitarfélögin. Þannig gáfu þeir eindregið til kynna að samningurinn væri svo góður fyrir kennara að þetta væri meira en þeir gætu fengið með beinum samningum. Kennarar voru greinilega ekki á sama máli, eins og sást strax á viðbrögðum þeirra. Bandarísk afskipti Í síðustu viku var viðtal hér í Frétta- blaðinu við Arrin Hawkins, varaforseta- efni Sósíalíska verkamannaflokksins í Bandaríkjunum. Militant, blað ame- rískra trotskíista, segir nú frá því að hún sé hér á Íslandi og hafi talað við um hundrað kennara í verkfalli á með- an kosningabaráttan vestanhafs er á fullu. Þetta skýrist af því að flokkurinn boðar heimsbyltingu og lætur landamæri því ekki flækjast fyrir sér. Ekki kemur fram hver við- brögð kennara við framlagi Arr- ins til baráttunnar hafi verið. Sigurður sár? Einhverjir hafa velt því fyrir sér hvort Sigurður G. Guðjónsson sé eitthvað sár eftir að hafa verið sagt upp störf- um hjá Norðurljósum, eftir samein- inguna við OgVodafone. Heyrst hefur að hann hafi strax næsta dag flutt öll sín síma- viðskipti frá OgVodafo- ne til Landssímans. Hann hefur væntan- lega staðið frammi fyrir vali um símafyrir- tæki þegar hann missti starfsmannasíma Norðurljósa en þeir hafa verið í við- skiptum við Og- Vodafone. svanborg@frettabladid.is TE IK N . H EL G I S IG . - W W .H U G VE R K A. IS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.