Fréttablaðið - 31.10.2004, Side 11

Fréttablaðið - 31.10.2004, Side 11
Listasafn Íslands er ekki eina íslenska stofnunin sem stundar rannsóknir á íslenskri myndlist á 20. öld. Rannsóknir og ritun íslenskrar listasögu Fyrir skömmu bárust fréttir af því að menntamálaráðherra hefði ákveðið að veita 10 milljónum króna til ritunar sögu íslenskrar myndlistar á 20. öld. Þetta eru miklar gleðifréttir fyrir fagmenn og allt áhugafólk um íslenska myndlist. Ekkert heildstætt rit er til um þetta efni og fyrir löngu kominn tími til að bæta í eyðurnar í listasögu Björns Th. Björnsson- ar. Það sem hins vegar vekur athygli er að 10 milljónirnar skuli renna til Listasafns Íslands og því ætlað að sjá um útgáfu verksins – í fjórum bindum. Menntamálaráð- herra virðist ekki hafa hugsað út í það þegar fjárveitingin var ákveðin að Listasafn Íslands er ekki eina íslenska stofnunin sem stundar rannsóknir á íslenskri myndlist á 20. öld. Það er því ekkert sjálfgefið að safnið fái eitt fjárveitingu til að skrifa íslenska listasögu. Nema við trúum því að til sé eitthvað sem heitir ein og endanlega saga íslenskrar listar. Ef það er skoðun ráðherra hefði þá ekki verið eðlilegt, áður en tek- in var ákvörðun um hvert fjár- magnið ætti að renna, að spyrja hvort einhver annar væri hugsan- lega betur eða jafnvel til þess fall- inn að halda utan um verkefnið? Hefði til dæmis ekki verið ástæða til að hafa í huga að nú er boðið upp á nám í listfræði við íslenska háskóla og er þar átt við sam- vinnuverkefni Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands. Innan Listasafns Íslands eru starfandi þrír listfræðingar að safnstjóranum meðtöldum. Eiga þeir að sitja í fagráðinu sem kem- ur til með að ráða höfunda að verk- inu og ráða sjálfa sig? Það er ekki líklegt enda ræður Listasafn Ís- lands oft utanaðkomandi listfræð- inga í einstök verkefni. Þeir list- fræðingar koma flestir, en þó ekki allir, með einum eða öðrum hætti að starfsemi háskólanna, þar sem þeir hafa ýmist fastar stöður eða sinna stundakennslu. Með því að setja á stofn sérstakt nám í list- fræði hafa háskólarnir gefið til kynna að þeir hyggist stunda rann- sóknir á listasögu. Reyndar má fullyrða að þær rannsóknir séu þegar hafnar því boðið er upp á fleiri en eitt námskeið í íslenskri listasögu á 20. öld innan listfræð- innar. Vegna skorts á útgefnu efni um íslenska myndlist hlýtur að vera augljóst að sú kennsla fer ekki fram án þess að kennararnir hafi lagst í rannsóknir. Nú þegar ráðherra hefur ákveðið að veita Listasafni Íslands 10 milljónir til að skrifa íslenska listasögu án þess að rökstyðja þá ákvörðun frekar, er ekki úr vegi að spyrja hvort ekki sé ástæða til að veita öðrum 10 milljónum til háskólanna. Í framhaldinu mætti gera ritun ís- lenskrar listasögu á 20. öld að sam- vinnuverkefni þessara þriggja stofnana eða hreinlega hvetja til þess að gefnar verði út tvær ólíkar útgáfur að íslensku listasögunni. ■ 11SUNNUDAGUR 31. október 2004 Siðapredikun Illuga. Mér er sagt að sjálfur boðberi hinnar málefnalegu umræðu, Illugi Jökulsson, DV-stjóri, hafi veitt undirrituðum þann óverðskuldaða heiður að beina til hans nokkrum hnitmiðuðum ábendingum og lærdómsmolum um listina að fjalla um menn og málefni með heiðarleika og kjarnyrtan máltilbúning að leiðarljósi. Sannarlega löngu þörf tilsögn. Ekki spillir að ritstjóri þessi er kunnur af sterkri siðgæðisvitund, sannleiksást, vandvirkni og sérlegri nærgætni gagn- vart hinu manneskjulega. Hlakka til að koma heim og ylja mér við hinar göfugu leiðbeiningar. Hjálmar Árnason á althingi.is/hjalmara Ekki fögnuður í Ísrael. Margir hefðu talið að fögnuður myndi brjótast út meðal stjórnvalda í Ísrael við fréttir af veikindum Arafats en Ariel Sharon og hans mönnum virðist ekki alls varnað því þeir hafa lýst áhyggjum sínum af ástandi þessa mikla fjand- manns þeirra. Telja þeir líklegt að falli hann frá muni palestínskir öfgamenn kenna ísraelskum stjórnvöldum um dauða hans (hvernig sem þeir fara nú að því), og að í kjölfarið muni árásum á saklausa borgara fjölga. Er haft eftir háttsettum mönnum innan stjórnar Sharons að menn búi sig undir það ver- sta fyrir botni Miðjarðarhafs á sama tíma og Yasser Arafat berst fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi í París. Ætli franskir friðar- sinnar muni mótmæla komu hans til Frakklands einsog þeirra er siður þegar leiðtogar stríðandi landa knýja dyra í landi þeirra? Stefán Einar Stefánsson á sus.is Samþjöppun eignarhalds. Tilraun ríkisstjórnarinnar til að brytja fjölmiðlamarkaðinn í bita mistókst og því var gripið til annarra ráða. Tilraunir ráðamanna hafa orðið til enn frekari samþjöppunar þar sem tvö fyrirtæki virðast ætla að verða langstærst. Afskipti ríkisins hafa því skapað það umhverfi sem umtöluðum fjölmiðlalögum var ætlað að hindra. Afskipti ríkisins hafa skapað aðstöðu til fákeppni á markaði. Haukur Agnarsson á sellan.is Fjölmiðlafrumvarp úr sögunni. Ég tel að kaup Og Vodafone hafi afgreitt fjölmiðlafrumvarpið endanlega. Ég veit ekki hvað sú nýja nefnd allra stjórn- málaflokka, sem menntamálaráðherra hefur skipað til að taka þráðinn upp að nýju, ætlar að gera. Hvað hún ætlar að afgreiða. Ætlar hún að rífa allt í sundur? Ætlar hún að banna Símanum að eiga Skjá einn? Ætlar hún að banna Og Vodafone að eiga Norðurljós? Ekki getur hún gert upp á milli þeirra Brynjólfs og Jóns Ásgeirs? Er Og Vodafone orðið markaðsráðandi fyrirtæki. Er það svo? Ég held að ef einhverjir lagaklækir og lagarefir komi til sögunnar verði allt rifið í sundur. Nei, fjölmiðlafrumvarpið hefur verið afgreitt í eitt skipti fyrir öll; ekki af alþingismönnum heldur viðskiptalífinu. Tvö þekkt fjölmiðlafyrirtæki Norðurljós og Íslenska sjónvarpsfélagið (Skjár einn) sem börðust fyrir tilveru sinni allt síðasta ár og voru „gjaldþrota í hugum manna“ sýnast komin í öruggt skjól. Jón G. Hauksson á heimur.is MARGRÉT ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR FAGURFRÆÐINGUR UMRÆÐAN RITUN ÍSLENSKRAR LISTASÖGU ,, AF NETINU ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S F LU 2 63 17 10 /2 00 4 Verðlaunaðu fólkið þitt Þegar góður hópur hefur skilað vel unnu verki er sjálfsagt að verðlauna starfsmenn og hvetja þá þannig til enn frekari dáða. Hvataferð Flugfélags Íslands er ný þjónusta fyrir fyrirtæki sem vilja gera vel við fólkið sitt, hrista nýjan hóp saman eða efla hann fyrir átökin framundan. Við gerum þér frábær ferðatilboð fyrir fólkið þitt til allra áfangastaða okkar innanlands, þar sem þess býður spennandi upplifun, ævintýri og skemmtun sem skilar sér í sterkari hóp. Kannaðu möguleikana fyrir fólkið þitt í síma 570 3075, á vefsíðunni www.flugfelag.is eða sendu fyrirspurn á hopadeild@flugfelag.is (Lágmarksfjöldi er 10 manns.) skemmtun - áreynsla - upplifun - ævintýri - áskorun - hópefli - samstaða - ánægja - verðlaun - hvatning - sigur - fyrirtæki - starfsmenn - félög - klúbbar - samtök flugfelag.is | 570 3075 Taktu flugið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.