Fréttablaðið - 31.10.2004, Síða 19
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 108 stk.
Keypt & selt 17 stk.
Þjónusta 12 stk.
Heilsa 13 stk.
Skólar & námskeið 3 stk.
Heimilið 12 stk.
Tómstundir & ferðir 9 stk.
Húsnæði 29 stk.
Atvinna 21 stk.
Tilkynningar 6 stk.
Smáralind - www.adams.is Smáralind - www.adams.is
Við erum 1 árs
15% afsláttur af öllum vörum aðeins í dag
Allir þeir sem versla hjá Adams þennan dag geta tekið þátt
í happdrætti þar sem vinningar verða m.a. vöruúttektir
Rán í Feimu fræðir konurnar
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er sunnudagurinn 31. okt.,
305. dagur ársins 2004.
Reykjavík 9.08 13.11 17.13
Akureyri 9.03 12.56 16.48
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
„Við smíðum skóna frá grunni. Það geta
verið allt upp í 15-18 bútar í einum skó,“
segir Lárus Gunnlaugsson sjúkraskósmið-
ur sem starfar hjá Össuri. Þar tekur hann á
móti öllum sem þurfa að láta sérsmíða á sig
skó og auk hans eru fjórir menn í vinnu við
skósmíðarnar.
Lárus útskrifaðist sem meistari í skó-
smíði 1982 og fór svo að áeggjan starfs-
manns hjá Össuri í tveggja ára nám til Jök-
öping í Svíþjóð til að læra smíði sjúkraskóa.
„Það er alltaf ákveðinn fjöldi einstaklinga
sem þarf á sérsmíðuðum skóm að halda,“
segir hann og byrjar að reikna. „Ætli það
séu ekki framleidd svona um 700 pör á ári á
Íslandi?“ Hann segir misjafnar ástæður
fyrir því að menn þurfi sérsmíðaða skó.
„Sumir eru með einhverja fötlun sem út-
heimtir sérsmíðaða skó, aðrir þurfa breið-
ari skó en fást á markaðinum eða stífari
sóla.“ Lárus upplýsir að sérsmíðaðir skór
kosti á bilinu 100–120 þúsund. „En ef maður
reiknar tímavinnuna sem getur verið frá 24
upp í 36 klukkutíma þá er kaupið ekki mjög
hátt,“ segir Lárus. Bætir við að barnaskór
séu ódýrari, eða á 60-75 þúsund. Einnig
nefnir hann að þróunin í Evrópu sé þannig
að farið sé að fjöldaframleiða stuðningsskó
fyrir börn sem séu mun ódýrari. Hann
segir viðskiptavininn velja sér skó eftir
myndum sem honum séu sýndar. „Stundum
kemur hann með mynd af ákveðnum skóm
sem hann hefur hug á að eignast og við
reynum að verða við slíkum óskum, þó með
heilsufarið í huga fyrst og fremst,“ segir
Lárus að lokum. ■
Atvinnan mín:
Einn skór úr átján bútum
atvinna@frettabladid.is
Tekjur kvæntra karla innan VR
eða þeirra sem eru í sambúð
eru mun hærri en annarra
karla, eða 25%, og virðist mun-
urinn hafa vaxið fremur en hitt
á síðustu árum. Hjúskaparstaða
hefur hins vegar lítil sem engin
áhrif á tekjur
kvenna innan
félagsins. Þetta
má sjá í nýrri
skýrslu um þró-
un launa félags-
manna VR.
“Réttarstaða
launafólks hefur veikst á und-
anförnum misserum,“ segir
m.a. í ályktun um atvinnumál
sem ársfundur ASÍ 2004 sam-
þykkti sl. föstudag. Þar segir
ennfremur að stjórnendur og
eigendur fyrirtækja telji sig ekki
lengur bera samfélagslega
ábyrgð né ábyrgð á starfs-
mönnum sínum.
Laun félagsmanna VR í fjár-
málafyrirtækjum og öðrum fyr-
irtækjum í sérhæfðri þjónustu
hafa hækkað langmest á allra
síðustu árum, eða um 120% á
milli áranna 1988 og 2003. Á
þessu tímabili hækkuðu laun
að meðaltali um 60% hjá fé-
lagsmönnum VR. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu Hagfræði-
stofnunar Há-
skóla Íslands um
launaþróun inn-
an VR.
Íslendingar
munu að öllum
líkindum þurfa
að taka upp nýja
tilskipun um þjónustu á innri
markaði ESB en drög að henni
liggja nú fyrir. Í henni felst m.a.
að hægt verði að ráða erlent
vinnuafl á samningum sem
taka mið af kjarasamningum
og réttindum í heimalandi þess
aðila sem ræður vinnuaflið
hingað. Einnig mundi menntun
og heilbrigðiskerfi færast inn í
rekstrarumhverfi almenna
markaðarins. Verkalýðshreyfing-
in í Evrópu er mjög andvíg
þessari tilskipun.
„Hér á landi eru búin til um 700 sjúkraskópör á ári,“
segir Lárus, yfirmaður innanlandsdeildar Össurar.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í ATVINNU
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Maginn á mér
gaular og gólar.
Er ég líka með
rödd þar?
Pajero Sport ár ‘00. Dekurbíll, ek. 63
þús. Einn eigandi. Uppl. 8567458.
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
MIÐVIKUDAGUR