Fréttablaðið - 31.10.2004, Síða 20

Fréttablaðið - 31.10.2004, Síða 20
Þegar þú ert að sækja um vinnu þá er mikilvægt fyrir þig að kíkja á tölvupóstinn þinn á hverjum degi. Margir vinnuveitendur nota þann miðil og þú þarft að kíkja oft á póstinn til að geta svarað sem fyrst. „Við þurfum að fá ábendingar um fyrirtæki sem sýna góðan skiln- ing á þörfum og aðstæðum starfs- manna sinna í einkalífinu,“ segir Hildur Jónsdóttir, jafnréttisráð- gjafi Reykjavíkur sem ásamt fleirum undirbýr ráðstefnuna Heima og heiman: Samræming vinnu og einkalífs í fjölmenning- arsamfélagi, sem haldin verður á Nordica hóteli 17. nóvember. Þar verður veitt viðurkenningin Lóð á vogarskálina og fellur hún tveimur fyrirtækjum í skaut sem skara framúr í að hjálpa starfs- fólki sínu að samræma starf og einkalíf, annars vegar opinberri stofnun og hinsvegar einkareknu fyrirtæki. Leitað er eftir þátttöku almennings í að velja þau fyrir- tæki og rökstuddar ábendingar þurfa að hafa borist inn á vefinn hgj.is fyrir 5. nóvember. „Við vonumst til að safna þarna inn mörgum sögum og lýs- ingum á fyrirtækjum sem eru að standa sig vel að þessu leyti. Svo mun vinnuhópur fara í gegnum þær ábendingar og velja,“ segir Hildur. Það eru „Hollvinir hins gullna jafnvægis“, samtök 17 aðila sem standa að ráðstefnunni og verð- launaveitingunni. Þeir halda úti vefsvæðinu hgj.is og þetta verð- ur í annað sinn sem þeir veita svona viðurkenningu fyrir fram- lag sem stuðlar að samræmingu vinnu og einkalífs í orði og verki. gun@frettabladid.is Atvinnuástandið: Eftirspurn eykst eftir afgreiðslufólki „Eftirspurn eftir fólki í af- greiðslustörf og þjónustu á höfuð- borgarsvæðinu er verulega að aukast,“ segir Kolbeinn Pálsson hjá atvinnumiðluninni job.is og sem vinnustaði tekur hann sem dæmi verslanir, veitingahús og pöbba. „Þarna er ekki lengur listi af fólki sem er að leita starfa eins og á sama tíma í fyrra. Þar er orð- in veruleg breyting á,“ segir hann og heldur áfram. „Nú eru fyrir- tæki að auglýsa eftir starfsfólki sem ekki hafa auglýst undanfarin ár vegna þess að þá var nægilegt framboð af vinnuafli.“ Kolbeinn telur atvinnuleysis á höfuðborg- arsvæðinu gæta einkum hjá þeim sem fari ekki í þessi afgreiðslu-og þjónustustörf, vegna þess hve launin þar séu lág. Auk þessa bendir Kolbeinn á að mikið sé um að verslanir bæti við mannskap fyrir jólin. Margir skólanemendur ráði sig í búðirnar í jólafríunum en jóla- ösin sé hinsvegar alltaf að fær- ast fram en frí skólafólks að styttast. Því þurfi verslunareig- endur að sækja sér vinnuafl í auknum mæli út á hinn al- menna markað. Hinsvegar sé lítið um fastráðningar í jóla- mánuðinum. „Fyrirtæki bíða oft framyfir áramót með að ráða starfsfólk til lengri tíma þar til nýjar fjárhagsáætlanir koma og svo framvegis,“ segir Kolbeinn og bætir við að lokum – bjartsýnn. „Þá fer allt á fulla ferð að nýju.“ gun@frettabladid.is Rán Viðarsdóttir hársnyrtifræð- ingur, sem er ekki nema 21 árs, festi nýverið kaup á hársnyrti- stofunni Feimu í Ásholti 2, en hún útskrifaðist sem hársnyrtir um síðustu jól, dúxaði í sinni deild og varð semídúx yfir skólann. „Ég lærði í Feimu og ákvað að slá til og kaupa þegar stofan var til sölu. Það var reyndar áður en ég útskrifaðist,“ segir Rán. „Það var annaðhvort að hrökkva eða stökkva og mér fannst best að slá til meðan ég hefði nóga orku og gaman af þessu.“ Hún segir marga fastakúnna hafa fylgt sér en að kaupa stofu sem nemi hafi bæði kosti og galla, „Fyrir sumum verð ég alltaf bara neminn,“ segir hún og hlær. „Það breytist þó vonandi smátt og smátt.“ Rán segir að þetta sé hörku- vinna frá morgni til kvölds en hún hefur hingað til verið ein á stof- unni. „Það stendur nú til bóta og ég er að fá manneskju í fullt starf. Maður þarf að vera vakinn og sof- inn yfir þessu, fylgjast vel með öllum nýjungum og sækja nám- skeið. Og ekki síst að vera skap- andi sjálfur. Ég hef fengið Magneu Elínardóttur snyrtifræð- ing til liðs við mig og nú ætlum við að halda námskeið í förðun og snyrtingu,“ segir Rán. „Við höld- um þessi námskeið hér á Feimu, en förum líka í fyrirtæki og hitt- um hópa úti í bæ ef fólk vill. Nám- skeiðin snúast um að kenna kon- um að hugsa um húðina og mála sig, hvort sem er dagsdaglega eða fyrir samkvæmið og sömuleiðis að hugsa um hárið á sér þannig að þær séu alltaf eins og nýkomnar úr hársnyrtingu,“ segir hún og hlær. „Námskeiðið fer þannig fram að Magnea málar mig og ég greiði henni og svo gera konurnar þetta sjálfar með okkar aðstoð. Það er mjög mikilvægt að kennsl- an sé ekki bara sýnikennsla og fyrirlestur heldur að þær spreyti sig og fari heim með kunnáttuna í farteskinu.“ Upplýsingar um námskeiðin er hægt að fá í Feimu. edda@frettabladid.is Hildur Jónsdóttir, jafnréttisráðgjafi Reykjavíkur. Viðurkenningin Lóð á vogarskálina eftir Sigurð Steinþórsson, gullsmíða- meistara. Hollvinir hins gullna jafnvægis: Veita Lóð á vogarskálina Kolbeinn segir atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu einkum til komið af því að fólk vilji ekki fara í láglaunastörfin. Þegar nær líður jólum eykst annríkið í búðunum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Rán dúxaði í hár- snyrtináminu og keypti sér hár- greiðslustofu. Hún og Magnea Elínar- dóttir bjóða nú upp á skemmtileg námskeið fyrir konur á öllum aldri í förðun og hársnyrtingu. Ungt fólk í atvinnurekstri: Keypti hársnyrtistofu fyrir útskrift FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.