Fréttablaðið - 31.10.2004, Side 39
SUNNUDAGUR 31. október 2004
Tónlist eða hávaði?
HVAÐ AÐGREINIR TÓNLIST
FRÁ HÁVAÐA?
SVAR: Sennilega hefðu Evrópubú-
ar 19. aldar átt mun auðveldara
með að svara þessari spurningu
heldur en ég árið 2004. Nútíma-
menn eru örugglega ekki sam-
mála um svarið og má búast við að
margir myndu svara spurning-
unni allt öðruvísi en ég. Árið 1850
hefði svarið væntanlega hljóðað
eitthvað á þá leið að tónlist væri
annaðhvort sungin eða leikin á
hljóðfæri og samin eftir ákveðn-
um hljómfræðilögmálum innan
ákveðinna forma; önnur hljóð
hefðu ekkert með tónlist að gera.
Væntanlega hefði hávaði verið
skilgreindur sem hávær og jafn-
vel óþægileg hljóð. Margir nú-
tímamenn mundu sennilega svara
spurningunni nokkurn veginn
eins og 19. aldar maðurinn, en
ekki ég.
Elektrónísk hljóðfæri
Hljóðheimur nútímamannsins er
miklu flóknari en áður var. Alla
20. öldina voru í gangi tilraunir til
að útvíkka hljóðheiminn sem nota
mætti til tónsköpunar og nú eru
öll hljóð gjaldgeng sem efniviður í
tónlist. Strax upp úr aldamótun-
um 1900 fóru menn að gera
tilraunir með elektrónísk hljóð-
færi og á 3. áratugnum vakti
elektróníska hljóðfærið theremin
talsverða athygli víða um lönd, en
það var rússneskur sellóleikari,
Lev Sergeyevich Termen sem átti
heiðurinn að þeirri uppfinningu.
Stuttu seinna kom annað
elektrónískt hljóðfæri, ondes
martinot, til sögunnar. Það heitir
einnig í höfuðið á höfundi sínum,
en hann hét Maurice Martenot og
kynnti hljóðfærið fyrst árið 1928.
Ondes martinot heyrist enn í tón-
leikasölum í verkum eftir Olivier
Messiaen og er Turangalîla-sin-
fónían sennilega þeirra frægust.
Á 5. áratugnum varð hugtakið
musique concrete til, en sú stefna
fól í sér að taka hljóð úr umhverf-
inu upp á segulband og klippa þau
til og nota til tónsmíða. Upp úr
1950 fóru elektrónísk tónlistar-
stúdíó að spretta upp í Evrópu,
Bandaríkjunum og Japan. Þar
fóru fram tilraunir og rannsóknir
og voru þau helsti vettvangur
nýjunga í tónsköpun 20. aldarinn-
ar. Tölvurnar tóku smám saman
yfir og í dag er tölvutónlist notuð
jöfnum höndum í popptónlist og
klassískri nútímatónlist.
Hljóðfærin tekin öðrum tökum
Samfara þessari þróun hafa tón-
skáld sífellt verið að leita að nýj-
um hljóðum úr hefðbundnum
hljóðfærum, prófað hefur verið
að banka í sellókassann, ná nýjum
hljóðum úr blásturshljóðfærun-
um, strengirnir innan í píanóinu
eru plokkaðir og alla vega hlutir
settir inn í það. Þetta kallast á
ensku prepared piano. Margir
þessara 20. aldar hljóðgjafa hefðu
hljómað sem argasti hávaði í eyr-
um tónlistarunnenda fyrri alda og
gera sjálfsagt enn í eyrum sumra
nútímamanna.
Hvað aðgreinir þá tónlist frá
hávaða? Við skulum gefa okkur að
skilgreining 19. aldar mannsins
standist ekki lengur, að skilningur
okkar hafi víkkað talsvert út.
Eru umhverfishljóð tónlist?
Eru þá öll hljóð tónlist? Er fugla-
söngur, brimhljóð og vélarhljóð
tónlist? Erum við búin að brjóta
öll mörk og hömlur og er allt
leyfilegt? Já sennilega er allt
leyfilegt, en það þýðir ekki að öll
hljóð eins og þau koma fyrir í um-
hverfi okkar sé sjálfkrafa hægt að
flokka sem tónlist. Flestir eru ör-
ugglega sammála um að fugla-
söngur og brimhljóð geti látið í
eyrum eins og fegursta tónlist, en
tónlist er meira en hljóð. Tónlist
er listform og þar með mannlegt
tjáningarform og sem slíkt fullt af
merkingu, ræðri og óræðri. Tón-
list hefur margs konar skírskot-
un, hún vekur tilfinningar og
höfðar til greindar mannsins.
Tónlist hefur höfund og áheyr-
anda, sem getur upplifað tónlist á
margvíslegan hátt.
Niðurstaðan er því sú að öll
hljóð í kringum okkur geti verið
hráefni í tónlist, hvort sem hljóðið
kemur úr mannsbarka, fugls-
barka, hljóðfæri, tölvu eða vél. En
hljóð er ekki orðið tónlist fyrr en
mannleg hugsun er búin að koma
því inn í eitthvert heildarform,
sem hefur merkingu fyrir höfund-
inn og áheyrandann.
Lofpressa, sinfónía og desíbel
En hvað er þá hávaði? Eflaust er
mjög einstaklingsbundið hvaða
hljóð hver og einn flokkar sem há-
vaða, en orðið hefur á sér frekar
neikvæðan blæ. Desíbel eru mæli-
kvarði á styrk hljóðs og er venju-
lega talað um að sársaukamörkum
sé náð við 120 dB styrk. Þetta
þýðir að manni líður líkamlega
illa þegar þessum styrk er náð. Í
venjulegu daglegu umhverfi er
hljóðstyrkurinn oft í kringum
60 - 70 dB og hljóð í loftpressu er
um 110 dB.
Flestum líður illa í hávaða,
löngu áður en sársaukamörkum
er náð, en inn í mat hvers einstak-
lings á hávaða kemur jafnframt
persónulegur smekkur á hvaða
hljóð séu falleg og hver ekki. Sin-
fóníuhljómsveit getur til dæmis
framleitt býsna mikinn hljóð-
styrk, en sennilega myndu fáir
nota orðið hávaði í neikvæðri
merkingu orðsins um sinfóníu eft-
ir Beethoven. Sami einstaklingur
væri hins vegar vís til að flokka
vélarhljóð eða ískur sem hávaða,
jafnvel þó að hljóðstyrkurinn
væri mun lægri en í sinfóníunni.
Allir kannast við hljóðstyrkinn
sem rafmögnuð rokkhljómsveit
gefur frá sér, sumir forðast fyrir-
bærið en aðrir eru tilbúnir að
borga of fjár til að upplifa það.
Svarið við spurningunni er því
ekki einhlítt. Þó að hægt sé að tína
til ýmsar skilgreiningar þá er
matið á því hvenær hljóð flokkist
sem hávaði og hvenær sem tónlist
að einhverju leyti háð persónuleg-
um smekk, menningarumhverfi
og tíma.
Karólína Eiríksdóttir,
tónskáld.
VÍSINDAVEFUR
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Á Vísindavef Háskóla Íslands er meðal annars að finna svör við fjölmörgum spurningum
um tónlist: Hverjir hönnuðu nótnaskrift upphaflega? Er til tónn sem er svo ljótur að
hann er kenndur við djöfulinn? Er ólöglegt að afrita tónlist ef flytjendur njóta höfunda-
réttar? Hver er líkleg þróun tónlistar og hvað er vitað um áhrif tónlistar á námshæfi-
leika? Hægt er að lesa svörin við þessum spurningum og fjölmörgum öðrum með því
að setja efnisorð í leitarvél vefsins á slóðinni www.visindavefur.hi.is.
KYNNINGARSPJALD HEIMILDAR-
MYNDAR UM LEV TERMEN OG
HLJÓÐFÆRIÐ THEREMIN. Eins og sést
á myndinni er spilað á theremin án snert-
ingar. Termen kynnti hljóðfærið árið 1920
og spilaði meðal annars á það fyrir Lenín
tveimur árum síðar.
SMSLEIKURSMSLEIKURSMSLEIKURSMSLEIKURSMSLEIKURSMSLEIKURSMSLEIKURSMSLEIKURSMS
Við sendum þér
spurningu. þú svarar með
því að senda SMS skeytið BT
A, B eða C á númerið 1900.
Sendu SMS skeytið
BT BTF á númerið 1900
og þú gætir unnið.
Aukavinningar
Panasonic SCHT-520 heimabíó - Denver ferðaspilari sem spilar MP3 - X-Box leikjavélar - Harwa 14-29" sjónvörp
Samsung A-800 og SGH-X450 GSM símar - PlayStation 2 tölvur - Bíómiðar á Sky Captain - Sims 2 og FIFA 2005
tölvuleikir - Pottþétt 80’s - Pottþétt 35 og 34 - StarWars trilogy DVD - Kill Bill 1 og 2 á DVD - Van Helsing DVD
Coke kippur og margt margt fleira
Vinningar verða afhendir í BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
10.
*Aðalvinningur
verður dreginn út úr
öllum innsendum SMS
skeytum
MEÐ 15” FLATSKJÁ
Frumsýnd 28. október
8. janúar á Hótel Örk
Styrktarfjáröflunardansleikur
Zontaklúbbs Selfoss
Hinn vinsæli Vínardansleikur verður haldinn
laugardaginn 8. janúar 2005 að Hótel Örk.
Hátíðin hefst klukkan 19.00 með fordrykk.
Glæsilegur fimm rétta hátíðarkvöldverður.
Dansleikur með hljómsveit hússins til 03.00.
Veislustjóri:
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Einsöngvari:
Guðrún Ingimarsdóttir.
Undirleikur:
Anna Guðný Guðmundsdóttir
Einleikur á fiðlu:
Sigrún Eðvaldsdóttir
Hljómsveit:
Veislutríóið ásamt Sigrúni Eðvaldsdóttur
spilar milli 20.00 og 24.00.
Matreiðslumeistari:
Eiríkur (Eiki) Friðriksson
Matreiðslumenn:
Tómas Þóroddsson Jakob V. Arnarson
Verð með gistingu: 10.100,- krónur á mann í tvíbýli
Verð án gistingar: 6.800,- krónur
Pantanir í síma 483 4700, info@hotel-ork.is
Jólahlaðborð á Hótel Örk
20. 26. 27. nóvember og 3. 4. 10. og 11. desember
Krakka - Jólahlaðborð krónur 1.490,-
5. og 12. desember klukkan 15.00 til 17.00.
Föstudagstilboð:
Jólahlaðborð á
3.990,- krónur og
7.990,- krónur
með gistingu