Fréttablaðið - 31.10.2004, Page 42

Fréttablaðið - 31.10.2004, Page 42
22 31. október 2004 SUNNUDAGUR Við hrósum... ... Eiði Smára Guðjohnsen fyrir að bæta sinn leik enn frekar þegar Chelsea þarf helst á að halda. Hann hefur hingað til verið mest í að leggja upp mörk en eftir frammistöðuna í síðustu leikjum er hann einnig orðinn mesti markaskorari liðsins. „Ertu eitthvað verri? Ég er ekki í neinu rugli, maður.“ ...sagði Adrian Mutu við Jose Mourinho aðspurður hvort hann notaði kókaín. Mourinho spurði Mutu að þessu fyrsta daginn sem þeir hittust. sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 28 29 30 31 1 2 3 Sunnudagur OKTÓBER FÓTBOLTI Það var talsvert um óvænt úrslit í enska boltanum í gær. Meistarar Arsenal mörðu jafntefli á heimavelli gegn Southampton, Man. Utd tapaði gegn Portsmouth og Liverpool gerði jafntefli við Blackburn. Chelsea heldur aftur á móti sínu striki en þeir unnu mjög öruggan sigur gegn WBA. „Ef við tökum saman tölfræði- na í Meistaradeildinni, ensku deildinni og deildarbikarnum þá erum við besta liðið á Englandi,“ sagði hinn lítilláti stjóri Chelsea, Jose Mourinho en strákarnir hans voru slakir í fyrri hálfleik gegn WBA en fóru á kostum í þeim síðari. Þar fór Eiður Smári Guðjohnsen mikinn en hann skor- aði enn og aftur fyrir Chelsea. Arjen Robben spilaði á ný eftir meiðsli og Mourinho var ánægður með hans framlag. „Robben var frábær. Hann hreyfði boltann og var sífellt að búa eitthvað til. Í hvert skipti sem hann fékk boltann bjuggust áhorfendur við miklu. Robben kemur með eitthvað óvænt í leik liðsins og á því þurfum við að halda,“ sagði Mourinho. Það var greinilegt á leik Arsenal í gær að tapið gegn Man. Utd um síðustu helgi sat í þeim. Meira að segja stjóri liðsins, Arsene Wenger, viðurkenndi það. „Tapið var okkur mikið áfall og það sást að menn voru ekki búnir að jafna sig. Sendingar voru slakar og menn voru á hælunum. Við börðumst ekki eins og við erum vanir að gera,“ sagði Wenger en hann má þakka fyrir stigið því Robin Van Persie jafnaði fyrir Arsenal á lokamínútu leiksins. Eftir leiki gærdagsins er Chelsea komið upp að hlið Arsenal á toppi deildarinnar. „Ég vissi alltaf að Chelsea myndi þjarma að okkur í vetur. Þeir hafa eytt miklum peningum í leikmenn þannig að ég átti von á þeim sterkari núna en í fyrra,“ sagði Wenger. Manchester United náði engan veginn að fylgja eftir sigrinum góða gegn Arsenal. Þeir voru mjög slakir er þeir heimsóttu Portsmouth á Fratton Park og sigur heimamanna var fyllilega sanngjarn. Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, átti erfitt með að leyna vonbrigðum sínum í leikslok. „Þetta gjörsamlega eyðileggur það sem við byggðum upp um síðustu helgi. Þetta er gríðarlega vonbrigði og frammistaðan var engan veginn nógu góð,“ sagði Ferguson. Liverpool hefur verið í fantaformi á heimavelli í vetur en þeir voru ólíkur sjálfum sér er botnlið Blackburn heimsótti þá. Úrslitin voru vonbrigði og þeir urðu fyrir öðru áfalli er Djibril Cisse meiddist en hann er lík- legast fótbrotinn „Ég heyrði skelfilegt hljóð og held hann sé brotinn,“ sagði Milan Baros sem bjargaði stigi fyrir Liverpool í leiknum. henry@frettabladid.is SJÁÐU HVERNIG ÉG TÓK ÞIG KALLINN MINN! Thierry Henry bendir Antti Niemi, markverði Southampton, að fylgjast með sjónvarpsskjánum á Highbury þegar mark hans í leiknum var endursýnt. Arsenal-vélin hikstar Chelsea er komið upp að hlið Arsenal sem rétt náði jafntefli á heimavelli gegn Southampton. Man. Utd tapaði mjög óvænt gegn Portsmouth.■ ■ LEIKIR  13.00 Haukar og KR mætast á Ásvöllum í Hópbílabikar kvenna í körfubolta.  14.00 Drangur og Stjarnan mætast í Vík í 1. deild karla í körfubolta.  17.00 Haukar og Creteil mætast á Ásvöllum í meistaradeild Evrópu í handbolta.  19.15 Skallagrímur og Grindavík mætast í Borgarnesi í Hópbílabikar karla í körfubolta.  19.15 KR og Snæfell mætast í DHL-Höllinni í Hópbílabikar karla í körfubolta.  19.15 ÍR og Keflavík mætast í Seljaskóla í Hópbílabikar karla í körfubolta.  20.00 Haukar og Njarðvík mætast í Ásvöllum í Hópbílabikar karla í körfubolta. ■ ■ SJÓNVARP  13.00 X-Games á Sýn. Ofurhugaleikar.  13.50 Ítalski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Juventus og Chievo í ítölsku A-deildinni í fót- bolta.  15.50 US PGA Tour 2004 á Sýn. sýnt frá Opna Valero Texas-mót- inu á bandarísku PGA-mótaröðin- ni í golfi.  16.00 Enski boltinn á Skjá Einum. Bein útsending frá leik Bolton og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.  16.45 Meistaradeildin í hand- bolta á Sýn. Bein útsending frá leik Hauka og Creteil í meista- radeild Evrópu í handbolta.  18.30 Inside the US PGA Tour 2004 á Sýn.  18.50 World Series of Poker á Sýn.  20.20 Meistaradeildin í fótbolta á Sýn. Fréttaþáttur um meistaradeil- dina í fótbolta.  20.50 Ameríski fótboltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Denver Broncos og Atlanta Falcons í NFL-deildinni.  21.55 Helgarsportið á RÚV.  23.00 Meistaradeildin í hand- bolta á Sýn. Útsending frá leik Hauka og Creteil í meistaradeild Evrópu í handbolta. KR - Snæfell DHL – Höllin 31. október kl. 19:15 [ LEIKIR GÆRDAGSINS ] ENSKA ÚRVALSDEILDIN Birmingham–Crystal Palace 0–1 0–1 Andy Johnson (41.). Arsenal–Southampton 2–2 1–0 Thierry Henry (67.), 1–1 Rory Delap (80.), 1–2 Rory Delap (85.), 2–2 Robin Van Persie (90.). Charlton–Middlesbrough 1–2 0–1 Talal El Karkouri, sjm (21.), 1–1 Jonatan Johansson (45.), 1–2 Boudewijn Zenden (58.). Everton–Aston Villa 1–1 0–1 Lee Hendrie (26.), 1–1 Marcus Bent (33.). Fulham–Tottenham 2–0 1–0 Luis Boa Morte (33.), 2–0 Andy Cole (61.). Portsmouth–Man. Utd 2–0 1–0 David Unsworth, víti (53.), 2–0 Aiyegbieni Yakubu (72.). WBA–Chelsea 1–4 0–1 William Gallas (45.), 0–2 Eiður Smári Guðjohnsen (51.), 1–2 Zoltan Gera (56.), 1–3 Damien Duff (59.), 1–4 Frank Lampard (81.). Blackburn–Liverpool 2–2 0–1 John Arne Riise (7.), 1–1 Jay Bothroyd (16.), 2–1 Brett Emerton (45.), 2–2 Milan Baros (54.). STAÐAN: Arsenal 11 8 2 1 31–12 26 Chelsea 11 8 2 1 16–3 26 Everton 11 7 2 2 14–10 23 Middlesbr. 11 5 3 3 19–14 18 Bolton 10 5 3 2 16–12 18 Liverpool 10 5 2 3 18–10 17 Man. Utd 11 4 5 2 11–9 17 Newcastle 10 4 4 2 21–17 16 Portsmouth 10 4 3 3 15–12 15 Aston Villa 11 3 6 2 14–13 15 Tottenham 11 3 4 4 6–8 13 Charlton 11 3 3 5 10–19 12 Man. City 10 3 2 5 12–11 11 C. Palace 11 3 2 6 12–15 11 Fulham 11 3 2 6 12–19 11 Birmingh. 11 1 6 4 7–10 9 WBA 11 1 5 5 9–20 8 Blackburn 11 1 4 6 9–24 7 Southamp. 10 1 3 6 6–12 6 Norwich 10 0 6 4 9–17 6 – Í ensku 1. deildinni skoraði Heiðar Helguson bæði mörk Watford sem sigraði Nott. Forest, 2–1. Brynjar Björn Gunnarsson var einnig í byrjunarliði Watford en var skipt af velli á 70. mínútu. – Ívar Ingimarsson og félagar í Reading töpuðu fyrir Coventry, 3–2. Ívar lék allan leikinn fyrir Reading en Bjarni Guðjónsson var ekki í leikmannahópi Coventry að þessu sinni. ÞÝSKA BUNDESLIGAN Dortmund–Bayer Leverkusen 1–0 1–0 Ewerthon (41.). Mönchengladbach–Bayern Munchen 2–0 1–0 Marcello Pletsch (49.), 2–0 Joris Van Hout (83.). Hannover–Bochum 3–0 1–0 Thomas Christiansen (16.), 2–0 Daniel Stendel (65.), 3–0 Leandro Fonseca (88.). Freiburg–Hertha Berlin 1–3 1–0 Ellery Cairo (25.), 1–1 Nando Rafael (36.), 1–2 Gilberto Da Silva (49.), 1–3 Arne Friedrich (63.). Schalke–Stuttgart 3–2 1–0 Ailton (1.), 2–0 Levan Kobiashvili (2.), 3–0 Cassio Lincoln (25.), 3–1 Zvonimir Soldo (30.), 3–2 Imre Szabics (33.). Wolfsburg–Mainz 4–3 0–1 Matthias Abel (15.), 0–2 Conor Casey (17.), 1–2 Martin Petrov (45.), 2–2 Martin Petrov (45.), 3–2 Martin Petrov, víti (57.), 4–2 Martin Petrov (62.), 4–3 Cristoph Babatz (75.). Werder Bremen–Hamburger SV 1–1 0–1 David Jarolim (22.), 1–1 Christian Schulz (74.). STAÐAN: Wolfsburg 11 8 0 3 20–14 24 Schalke 11 7 0 4 16–15 21 Stuttgart 11 6 2 3 20–12 20 Hannover 11 6 2 3 19–11 20 B. Munchen11 6 2 3 16–12 20 W. Bremen 11 6 1 4 23–13 19 Mainz 11 5 3 3 20–17 18 Leverkusen 11 4 3 4 17–17 15 Hertha B. 11 3 5 3 13–10 14 Bielefeld 10 4 2 4 10–10 14 Dortmund 11 3 5 3 14–16 14 HSV 11 4 1 6 15–18 13 M´Gladbac. 11 3 3 5 15–17 12 Nurnberg 10 2 4 4 16–18 10 Bochum 11 2 4 5 15–22 10 Freiburg 11 2 4 5 10–19 10 H. Rostock 10 2 2 6 10–19 8 Kaiserslaut. 10 2 1 7 11–20 7 – Þórður Guðjónsson var í leikman- nahópi Bochum en kom ekki við sögu. [ LEIKIR GÆRDAGSINS ] HANDBOLTADELD KARLA SUÐUR-RIÐILL ÍR–ÍBV 31–29 Leikurinn var æsispennandi allt til enda. ÍR náði þriggja marka forystu, 30–27, þegar skammt var eftir en ÍBV náði að minnka muninn í eitt mark, 30–29, þegar tæp mínúta var eftir. ÍR kláraði dæmið á lokasekúndunni. Ingimundur Ingimund- arson var markahæstur ÍR-inga með 11 mörk. Zoltan Belany skoraði líka 11 fyrir ÍBV. STAÐAN: ÍR 7 6 0 1232–197 12 Víkingur 6 5 0 1167–144 10 Valur 6 4 0 2168–147 8 ÍBV 7 3 0 4208–198 6 Grótta/KR 6 3 0 3139–142 6 Selfoss 6 1 0 5161–186 2 Stjarnan 6 0 0 6134–197 0 NÆSTU LEIKIR: Selfoss–Valur 2. nóvember HK–Haukar 3. nóvember Þór Ak.–KA 5. nóvember Grótta/KR–Víkingur 5. nóvember Valur–Stjarnan 5. nóvember ÍBV–Selfoss 5. nóvember 1. DEILD KVENNA ÚRSLIT: Víkingur–Stjarnan 25–18 ÍBV–KA\Þór 42–15 Valur–FH 34–29 Grótta/KR–Haukar 22–35 STAÐAN: Haukar 7 7 0 0216–153 14 ÍBV 7 6 0 1220–169 12 Valur 7 5 0 2180–166 10 Stjarnan 7 4 1 2207–174 9 FH 8 3 2 3224–229 8 Grótta/KR 7 2 0 5171–182 4 Fram 7 1 1 5163–195 3 Víkingur 7 2 0 5162–177 4 KA/Þór 7 0 0 7145–243 0 NÆSTU LEIKIR: Stjarnan–Valur 6. nóvember Fram–Grótta/KR 6. nóvember KA\Þór–Víkingur 6. nóvember Haukar–ÍBV 7. nóvember Stjarnan–FH 9. nóvember Fram–ÍBV 9. nóvember KA\Þór–Valur 9. nóvember Handknattleikslið KA: Fær nýjan leikmann HANDBOLTI Stjórn handknattleiks- deildar KA gekk frá samningi við Svartfellinginn Nikolaj Jankovic fyrir helgi en frá þessu er greint á heimasíðu KA. Þar kemur einnig fram að Daninn Michael Bladt sé ekki á förum frá félaginu. Jankovic þessi er 23 ára örvhent skytta og kemur frá félagi í Belgrad. Hann getur leik- ið fyrir utan hægra megin sem og í horninu. Jankovic var búinn að vera til reynslu hjá félaginu í vikutíma og heillaði nægilega mikið til þess að fá samning hjá íslensku bikarmeisturunum Þetta er annar liðsstyrkurinn sem KA fær á skömmum tíma en Sævar Árnason tók skóna enn eina ferðina úr hillunni fyrir skömmu síðan. - hbg [ LEIKIR GÆRDAGSINS ] LÍF OG FJÖR Leikgleðin skín af leikmönnum Chelsea þessa dagana og þeir sjást hér fagna marki William Gallas í gær. Chelsea vann leikinn, 4–1.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.