Fréttablaðið - 31.10.2004, Page 44

Fréttablaðið - 31.10.2004, Page 44
24 31. október 2004 SUNNUDAGUR KÖRFUBOLTI Páll Axel Vilbergsson, fyrirliði Grindavíkur og körfu- boltamaður ársins á síðasta tíma- bili, dregur svo sannarlega vagn- inn hjá Grindavíkurliðinu sem hefur nú tapað þremur leikjum í röð. Þetta sást vel í leiknum við Fjölni í Grafarvogi í fyrrakvöld. Páll Axel skoraði 27 stig og tók 12 fráköst á þeim 37 mínútum sem hann spilaði. En þær 3 mínútur og 11 sekúndur sem Páll Axel sat á bekknum í lok fyrri hálfleiks voru liðinu heldur betur afdrifaríkar. Leikur liðsins hrundi Páll Axel settist á bekkinn í stöðunni 37-36 fyrir Fjölni og ekki minni maður en Darrel Lewis kom inná í hans stað. En viti menn leik- ur Grindavíkurliðsins hrundi bæði varnar og sóknarlega og þessar 3 mínútur unnu nýliðarnir úr Grafarvogi með heilum 18 stig- um, 20-2. Það var ekki nóg með að liðið skoraði aðeins eina körfu á þrem- ur mínútum þá enduðu Fjölnis- menn á því að skora sjö síðustu körfur hálfleiksins þar af fjórar þeirra fyrir utan þriggja stiga línuna. Fjölnismenn voru því komnir 19 stigum yfir í hálfleik og þeir lifðu á þeim mun út leikinn. Grindavíkurliðið vann þær 36 mínútur og 49 sekúndur sem Páll Axel spilaði, 81-72, en tapaði engu að síður leiknum með níu stiga mun. Þetta er lengsta taphrina Grindavíkur í úrvalsdeildinni í þrjú ár og í raun hafði liðið aðeins tapað 9 af 44 leikjum sínum und- anfarin tvö tímabil. ooj@frettabladid.is PÁLL AXEL STÓÐ SÍNA PLIKT Páll Axel Vilbergsson skoraði 27 stig og tók 12 fráköst gegn Fjölni en það dugði ekki til. Hvíldin hans Páls afdrifarík fyrir Grindavík Eftir góða byrjun í Intersportdeildinni hefur allt gengið á afturfótunum hjá Grindavík í síðustu leikjum. Þeir mega illa vera án Páls Axels. Heilagar hempur Sjónvarpsáhorfendur sem fylgdust með viðureign Athletic Bilbao og Barcelona í gær hafa kannski veitt því eftirtekt að hvorugt þessara liða leikur með auglýsing- ar á búnngum sínum. Hafa reyndar aldrei nokkurn tímann gert þrátt fyrir fjölmörg gylliboð. Er mér ekki kunnugt um önnur stór- lið sem svo háttar um og þykir tíðindum sæta á tímum milljarðasamn- inga þar sem allt virðist falt fyrir aurinn, nöfn á liðum og leikvöllum jafn- vel. En þeir Bilbæingar og Börsungar eru sérstakir fyrir margt og liðin tákngervingar þeirrar þjóðernishyggju er ríður röftum í Baskalandi og Katalóníu. Eru liðsbúning- arnir hálfgerðir þjóðbúningar Baska og Katalóna, heilagar hempur sem ekki má saurga með kapítalískum áróðri. Þetta er virðingarverð afstaða en liðin eru þó ekki heilagari en það að þau sækja mikið fé til íþróttavöruframleiðenda og merki þeirra verða vegna auglýsingaleysisins meira áberandi fyrir vikið. Og ekki virðast neinar stórpólitískar kröfur gerðar til þeirra sem útvega treyjurnar, Börsungar hafa í hið ekki minnsta ekki sett fyrir sig framferði hins ameríska Nike í þriðja heiminum. Gegn konungsveldinu Athletic Bilbao var stofnað af Englending- um og útskýrir það hinn enska rithátt í nafni félagsins. Búningar liðsins tóku mark af búningum Atletico Madrid, liðin eiga auk nafnsins sameiginlegt rauðhvítrönd- óttar treyjurnar. Á Spáni endurspeglast þjóðernisátökin í nöfnum liðanna og minnihlutahóparnir hata öll lið sem votta konungsveldinu hollustu sína með for- skeytinu Real. Þannig er Athletic Bilbao ekta Baskaliðið en nágrannar þeirra í Real Sociedad Spánverjasleikjur. Alvöru Andalúsíumenn styðja Sevilla en líta niður á Real Betis. Katalónar þyrpast um Barca en þeir sem kjósa sameinaðan Spán styðja vitaskuld Espanyol eins og nafn þess félags gefur til kynna. Espanyol hlýtur að teljast óheppnasta félag í heimi, nokk- urs konar Fram Spánar sem dæmt er til ei- lífrar fallbaráttu og ofan í ófarir á velli bæt- ist við andúð utan vallar. Katalónar hata þá fyrir að vera kvislingar og allir hinir hata þá fyrir að vera Katalónar af óæðri sort- inni! Espanyol gengur reyndar allt í haginn þessa dagana, vermir þriðja sætið í deild- inni leitt af framherjunum Raul Tamundo og Ivan de la Pena sem er búinn að end- urheimta sitt fyrra form. Hreint Baskalið Athletic Bilbao verður að teljast þjóðernis- sinnaðasta félag í heimi. Með liðinu leika eingöngu Baskar eða leikmenn af baskneskum ættum. Útlendingur hefur aldrei klæðst búningi félagsins. Börsungar hafa hinsvegar áratuga hefð fyrir útlend- ingahersveitum en þurfi þeir á leikmönn- um frá Spáni að halda kjósa þeir helst Katalóna eða Baska. Þannig hafa þeir keypt fjölmarga leikmenn frá Bilbao í gegnum tíðina, frægasta þeirra í seinni tíð má nefna Zubizareta, Abelardo, Bakero og Beguristain sem mynduðu kjarnann í draumaliði Johans Cruyff á níunda ára- tugnum. Beguristain er nú yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona og hefur verið duglegur að lokka unga og efnilega Baska til liðsins. Gullöld baskneska boltans var í upphafi níunda áratugarins þar sem Sociedad hóf áratuginn á að landa tveimur titlum og Bil- bao fylgdi á eftir með tvo í beit. Liðin voru bæði eingöngu skipuð heima- mönnum og litu aðrir Spánverjar baskneska mód- elið öfundar- augum. Munoz þjálfari landsliðs- ins sem mætti til leiks á heimavelli á HM 1982 notaði mik- ið Baska og síðar var Baskinn Javier Clem- ente ráðinn landsliðs- þjálfari og raðaði hann inn Böskum í landsliðið svo mörgum þótti nóg um. Hið bask- neska fley Clemente beið mikið skipbrot á alþjóðavettvangi og skip- stjórinn hvarf úr brúnni. Hryðjuverkasamtökin ETA hafa komið miklu óorði á baskneska þjóðernishyggju og hefur Athletic Bilbao gert mikið í því að sverja af sér samtökin og hinn pólitíska arm þeirra Batasuna. En þjóðrembur eru duglegar að samsama sig við fótboltafélög hvar sem er í veröldinni og verður vart breyting á því um ókomna tíð að rembing- urinn fái útrás í boltanum enda er það ágætis vettvangur til að losa um spenn- una! EINAR LOGI VIGNISSON Spá Fréttablaðsins um NBA Heat í sérflokki KÖRFUBOLTI Í suðausturriðlinum í NBA munu augu flestra beinast að Shaquille O’Neal og félögum hans í Miami Heat. Lamar Odom er farinn til Lakers þannig að leikstjórnandahlutverkið verður í höndum Dwyane Wade, sem stjórnendur Heat sjá sem eina af stórstjörnum framtíðarinnar. Shaq sameinast nú gömlum samherja frá fyrri árum sínum hjá Lakers, sjálfum Eddie Jones. Eftir að leiðir þeirra skildu þurfti sá síðarnefndi að breyta leikstíl sínum tölu- vert en með tilkomu Shaq gæti Jones sprungið út á nýjan leik. Það eru ár og dagar liðnir síðan Shaq var í öðru eins formi og raun ber vitni. Trukkur- inn er búinn að hrista af sér ein 15 kíló og ætlar sér ekki að láta sitt eftir liggja. Miami Heat saltar suðausturriðilinn og verður í slagnum um toppsæti Austurdeildarinnar. Önnur lið standa ekki jafn vel að vígi. Engu að síður verður fróðlegt að sjá hvern- ig Steve Francis finnur sig hjá Orlando Magic og þá hefur framganga Grants Hill á undirbúnings- tímabilinu lofað góðu. Washington Wizards heldur áfram sinni uppbygg- ingu og nýliði deild- arinnar, Charlotte Bobcats, byrjar á núllpunkti. Það er einna helst Atlanta Hawks sem gæti strítt Orlando um annað sætið en liðið styrkt- ist til muna með tilkomu Antoine Walker frá Dallas Mavericks. Miami Heat verður engu að síður í algjör- um sérflokki í riðlinum, svo framarlega sem menn haldist við heilsu þar á bæ. -sj Spá Fréttablaðsins um NBA: Úlfarnir sterkastir KÖRFUBOLTI Í norðvesturriðlinum er að finna ung og spennandi lið á borð við Utah Jazz og Denver Nuggets. Jazz hefur að geyma menn á borð við Carlos Boozer, Matt Harpring og Andrei Kirilenko þannig að Jerry Sloan mun hafa úr nægu að moða næstu árin, björt framtíð þar. Sömu sögu má segja um Nuggets þar sem Carmelo Anthony er fremstur í flokki. Liðið fékk Kenyon Martin frá New Jersey Nets og á eftir slást við Jazz um annað sætið í norðvesturriðlinum. Það verða hins vegar Kevin Garnett og fé- lagar hans í Minnesota Tim- berwolves sem verða í algjörum sérflokki í riðlin- um. Með Shaquille O’Neal á bak og burt úr Vestur- deild- inni munu Úlfarnir fara langt með að sigra deildina. Árangur liðsins frá síðasta ári er frábær, sérstaklega í ljósi þess að lykilmenn voru meiddir meðan á úrslitakeppninni stóð. Rasheed Wallace, Bonzi Wells og Dales Davis eru allir horfnir frá Portland Trail Blazers en liðið hefur ekki náð að fylgja eftir góðum árangri frá árinu 2000 þegar Blazers tapaði í oddaleik Vesturdeildarinn- ar gegn Lakers. Forráðamenn Blazers horfa fram á uppstokkun og mun árangurinn verða í samræmi við það í vetur. Seattle Supersonics verður á botni norð- vesturriðilsins en stórskyttan Ray Allen mun væntanlega láta til sín taka í vetur og kemur reynsla hans ungum leikmönnum Sonics vonandi til góða. -sj FLOTTASTUR Margir spá því að Miami Heat fari langt með Shaq innanborðs. Nýliðar Fjölnis í Intersportdeildinni í körfubolta hafa komið skemmtilega á óvart: Halda uppi heiðri höfuðborgarinnar KÖRFUBOLTI Fjölnismenn hafa byrj- að Intersportdeildina frábærlega í vetur og unnið fjóra af fimm fyrstu leikjunum. Það er óhætt að segja að nýjasta Reykjavíkurfé- lagið í úrvalsdeildinni hafi haldið uppi heiðri höfuðborgarinnar í fyrstu fimm leikjum tímabilsins. Fjölnismenn hafa unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum í hópi þeirra bestu líkt og hinir ný- liðarnir úr Skallagrími en nýliðar hafa aldrei byrjað betur. Hin Reykjavíkurfélögin, KR og ÍR, hafa á móti tapað 7 af 10 leikjum og Fjölnir hefur því unnið leik meira en nágrannar þeirra úr höf- uðborginni til samans. Eina tap Fjölnis er reyndar á móti Reykjavíkurliðinu hinum megin við Átrúnsbrekkuna en 11 stiga sigur á KR-ingum á þeirra eigin heimavelli bætir upp fyrir það enda hafa Vesturbæingar ekki tapað heimaleik fyrir Reykjavíkurliði í fimm ár eða síð- an Valsmenn unnu þá 73-80 í Hagaskóla 11. mars 1999. Benedikt öflugur Fjölnisliðið er undir stjórn Benedikts Guðmundssonar sem tók við liðinu fyrir ári síðan og hefur frá þeim tíma unnið mark- visst að því að undirbúa unga og stórefnilega stráka í liðinu fyrir átökin meðal þeirra bestu. Benedikt valdi vel þegar hann fékk þá Darrel Flake og Jeb Ivey til liðsins og eins hefur Nemanja Sovic spilað mjög vel. Allir eru þeir félagar að skora yfir 19 stig að meðaltali. Ungir leikmenn liðsins hafa líka sýnt góð tilþrif þá sérstaklega hinn 17 ára gamli Brynjar Þór Kristófersson sem hefur þegar aflað sér orðsporðs sem góður varnarmaður. Nú er að sjá hvort Grafarvogspiltar nái að halda út og sýna enn frekar að þeir séu til- búnir í deild þeirra bestu. ooj@frettabladid.is SIGGA ÓSÁTT Hinn eitilharði stuðnings- maður Grindavíkur, Sigga, er vart ánægð með gengi síns liðs þessa dagana. DARREL MEÐ 25,6 STIG Í LEIK Darrel Flake hefur leikið vel fyrir Fjölni það sem af er tímabilinu og hér skorar hann gegn Grindavík á dögunum. Fréttablaðið/Valli

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.