Fréttablaðið - 31.10.2004, Qupperneq 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
SMS
LEIKUR
EINTAK Á 199 KRÓNUR?
199 kr/skeytið
Kem
ur 5.
nóv.
PC CD-ROM
PC CD-ROM
Í klessu
Hvort sem kennaraverkfalliðleysist með handabakavinnu,
lagasetningu eða uppgjöf, hefur það
leitt í ljós veikleika okkar. Við get-
um ekki leyst neitt sjálf, síst inn-
lend vandkvæði. Þegar um þau er
að ræða lendir allt í kotakjaftæði.
Fyrst kennaraverkfallið er ekki
hægt að leysa með sölu á innlendri
orku til útlendinga, veit enginn sitt
rjúkandi ráð. Málið fer í hönk og
hún breytist í hengingaról. En
vegna þeirrar sjálfsbjargarviðleitni
sem okkur er meðfædd verður í lok-
in minna úr hengingu en á horfðist í
upphafi. Sama ól verður þó sífellt
um hálsinn. Þetta er furðulegt ef
haft er í huga að þjóðin er fyrir
löngu búin að fylla askana með át-
mat, bílum, einsetnum skólum og
troðfullum háskólum, orðin mennt-
uð fjölmiðlaþjóð. En vandinn leysist
ekki þrátt fyrir leiðsöguþætti
kvenna um vegi lífsins.
Erfiðast eigum við með undirstöð-
una, eins og til dæmis kennslu
barna. Í raun og veru höfum við
aldrei viljað hafa undirstöðu í lífi
okkar, bara toppstöðu. En toppstaða
án undirstöðu er hvergi trygg nema
hjá frægum hljómsveitum. Slíkur
barnaskapur skaðar engan. Leyfum
litlum að monta sig. Verra er hvern-
ig æðri menning bregst. Hún hefur í
rauninni aðeins mótað stóra eins
konar millistétt. Í henni er hinn
gráðugi en getulausi menntavargur.
Vargurinn bullar endalaust. Allar
dyr standa honum opnar. Hann
hefur aðgang að öllum fjölmiðlum.
En þegar á reynir getur hann minna
en gömlu karlavargarnir.
Eins og annar vargur stefnir hann
aðeins að sérréttindum, en hefur á
tungunni samúð: með konum, börn-
um, þroskaheftum, samkynhneigð-
um eða öðru sem hann hefur lært að
nota sem felubúning.
Menntavargurinn hefur atvinnu
af innfjálgu tali um náttúruvernd en
hann eyðileggur náttúruna. Hann
þykist berjast gegn mengun en
mengar með bílum og lifnaðarhátt-
um sínum. Hann situr ótal ráðstefn-
ur en kemur ráðlaus af þeim. Þessi
stétt ver stöðu sína með kjafti og
klóm, svífst einskis en kemur fram
sem lömb. Það væri í lagi ef lömb
gætu leyst vanda hlöðunnar með
jarmi. En það gera þau ekki. Eini
áhuginn er að éta sjálf alla töðuna,
harma heyskort hjá rollunum og
stanga í punginn á hrútunum.
BAKÞANKAR
GUÐBERGS
BERGSSONAR