Fréttablaðið - 07.12.2004, Qupperneq 46
26 7. desember 2004 ÞRIÐJUDAGUR
EKKI MISSA AF…
Silungnum á Rás 1, klukkan
13.05. Lana Kolbrún Eddudóttir
stýrir þætti með klassískri tónlist
og í þessum þætti verður einkum
leitað fanga í tónlist átjándu og
nítjándu aldar og gömlum hljóð-
ritunum gert hátt undir höfði ...
Sýningu á 79 af stöðinni í
Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnar-
firði, í
kvöld
klukkan
20.00.
Myndin er
gerð árið
1962 eftir samnefndri skáldsögu
Indriða G. Þorsteinssonar en í
leikstjórn Danans Eriks Balling.
Leikarar í aðalhlutverkum eru
Gunnar Eyjólfsson, Róbert Arn-
finnsson og Kristbjörg Kjeld...
Tilnefningar til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna voru kynntar á sunnu-
dagskvöldið. Fimm bækur voru til-
nefndar í flokki fagurbókmennta og
aðrar fimm í flokki fræðirita og bóka
almenns efnis. Þriggja manna dóm-
nefnd velur síðan þær bækur sem
hljóta Íslensku bókmenntaverðlaunin
en þau veitir forseti Íslands á Bessa-
stöðum á nýju ári.
Í flokki fræðirita og bóka almenns
efnis eru: Halldór, ævisaga Halldórs
Laxness, eftir Halldór Guðmundsson;
Íslendingar eftir Sigurgeir Sigurjóns-
son ljósmyndara og Unni Jökulsdóttur
rithöfund; Íslensk spendýr í ritstjórn
Páls Hersteinssonar prófessors; Ólöf
eskimói eftir Ingu Dóru Björnsdóttur
og Saga Íslands eftir Helga Þorláksson í ritstjórn
Sigurðar Líndal.
Í flokki fagurbókmennta eru tilnefndar bækur:
Andræði eftir Sigfús Bjartmarsson; Bítlaávarpið eftir
Einar Má Guðmundsson, Fólkið í kjallaranum eftir
Auði Jónsdóttur, Kleifarvatn eftir Arnald Indriðason
og Öðruvísi fjölskylda eftir Guðrúnu Helgadóttur.
Kl. 20.30 í Hveragerðiskirkju:
Nemendafélag Garðyrkjuskólans stend-
ur fyrir hugljúfum tónleikum við kerta-
ljós með Guðrúnu Gunnarsdóttur og Val-
geiri Skagfjörð. Flutt verða lög af nýju
geislaplötunni Eins og vindurinn, auk
ljúfra laga úr ýmsum áttum.
menning@frettabladid.is
Í Norrænum sakamálum
2004 er brugðið upp mynd-
um af nýlegum íslenskum
sakamálum.
Norræn sakamál 2004 eru komin
út hjá Lögregluforlaginu og er
þetta fjórða bókin í ritröðinni sem
hefur notið sívaxandi vinsælda
hér á landi. Efni bókarinnar helg-
ast að öllu jöfnu af því markverð-
asta í nýlegum sakamálarann-
sóknum á Norðurlöndum. Frá-
sagnirnar sýna að sannleikurinn
getur stundum verið ótrúlegri en
sú veröld sem dregin er upp í
spennusögum. Þær veita sýn á
ranghverfuna á samfélaginu, sem
flestir myndu óska að væri ekki
til.
Ritstjóri bókarinnar er Árni
Þór Sigmundsson en hann hefur
ritstýrt þremur af þeim fjórum
bókum sem út eru komnar hér á
landi. En hugmyndin á sér lengri
sögu.
„Upphaflega byrjuðu þessar
bækur að koma út á hinum Norð-
urlöndunum í kringum 1970,“ seg-
ir Árni. „þær hafa komið þar út
árlega síðan og selst í gríðarlegu
upplagi, enda af nógu að taka.Til
dæmis þarf þar að velja úr fjölda
greina á hinum til birtingar. Ef
ætti að birta allt þar, yrðu bæk-
urnar um 1.500 blaðsíður.
Við erum svo lítil og smá að við
erum eins og eitt hverfi í Kaup-
mannahöfn. Það er því erfitt að fá
eins margar sögur sem hafa frá-
sagnargildi hér og á hinum Norð-
urlöndunum.“
Tilganginn með útgáfu Nor-
rænna sakamála segir Árni Þór
vera þann að segja
söguna frá sjónarhóli
þess sem rannsakar
málin og kemur að
þeim upphaflega,
þannig að fólk fái
raunsæja mynd af
þeirri vinnu sem ligg-
ur þar að baki. „Það
er skilyrði fyrir birt-
ingu að málið hafi
fengið einhverja
dómsmeðferð, annað
hvort í undirrétti eða
á æðri dómstigum.
Ókláruð mál, sem
ekki hafa fengið slíka umfjöllun,
eru ekki tekin til birtingar. Þetta
er skilyrðið á öllum Norðurlönd-
unum.“
Árni Þór segir allan gang á því
hvort hér gerist nógu mikið á
hverju ári til þess að hægt sé að
setja saman á heila bók um það.
„Það fer eftir gildi frásagnarinn-
ar,“ segir hann. „Það sem oft býr
að baki, er að eitthvað sé í rann-
sókninni sjálfri sem vekur áhuga,
hvort sem er tækni, vinnubrögð
eða eitthvað slíkt sem leiðir til
niðurstöðu. Eða eitthvað sé í mál-
inu sem veki áhuga. Þau þurfa
ekkert að vera alvarleg, geta jafn-
vel verið spaugileg.
Þetta stendur og fellur með því
að maður fái viðkomandi lög-
reglumenn til að skrifa um rann-
sóknina. Það getur verið þrautin
þyngri, því oft eru þessir menn
önnum kafnir og ekkert í stakk
búnir til þess að bæta á sig vinnu
– en yfirleitt er það svo að menn-
irnir sem vinna að rannsókninni
skrifa frásagnirnar.“
Norrænu sakamálin virðast
höfða til hins almenna lesanda, að
sögn Árna. „Núna, á þessum tíma
þar sem flæðir yfir okkur mikið
magn af alls konar lögreglusög-
um, er ekki úr vegi að líta á það
hvernig þessi mál ganga fyrir sig.
Þetta á að gefa raunsæja mynd af
rannsóknum brotamála og ekki
síður hvernig þeim aðilum er inn-
anbrjósts sem vinna að þessum
málum. Það er aldrei svo að það sé
ekki eitthvað sem skilur eftir sig í
huga þeirra sem eru að vinna að
málunum – og þú ert að fá þetta
beint í æð frá þeim sem koma að
máli. Það er samt mikið atriði að
það sé aldrei hallað á neinn, held-
ur sé frásögnin heiðarleg. Við
reynum að nálgast þetta á fagleg-
an og hlutlausan hátt. Það eru
engin hástemmd lýsingarorð um
einhverja skíthæla eða slíkt. Við
verðum að virða alla einstaklinga
og meta málin út frá því hvernig
þau eru.
Þetta hefur fengið ágætis und-
irtektir og við stefnum að því að
gefa þessa ritröð út áfram á með-
an við höfum eitthvað að segja.
!
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
4 5 6 7 8 9 10
Þriðjudagur
DESEMBER
Lau. 11.12 20.00 Örfá sæti
Fim. 30.12 20.00 Örfá sæti
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
Miðasalan er opin frá 14-18,
lokað á sunnudögum
Mið. 8. des. kl. 20
Mið. 29. des. kl. 20
Mán. 27. des. kl. 20
Tangóball í kvöld kl. 21 Tangósveit lýðveldisins
eftir Hlín Agnarsdóttur
SMIÐUR
JÓLASVEINANNA
eftir Pétur Eggerz
Þri. 7. des. kl. 10 og 14 uppselt
Mið. 8. des. kl. 10 og 14 uppselt
Fös. 10. des. kl. 9:30 og 14 uppselt
Sun.12. des. kl. 16:00 laus sæti
Miðaverð kr. 1.200
www.moguleikhusid.is
Sími miðasölu 562 5060
■ KVIKMYNDIR
20.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir
í Bæjarbíói, Hafnarfirði, myndina
79 af stöðinni (Pigen Gogo), sem
er gerð árið 1962 eftir samnefndri
skáldsögu Indriða G. Þorsteins-
sonar í leikstjórn danans Erik
Balling. Leikarar í aðalhlutverkum
eru Gunnar Arnfinnsson
Tilnefnd til bókmenntaverðlauna
Nú hefur guð stráð glimmer
á götuna okkar
Sjáðu bara mamma mín!
Mikið er guð alltaf góður
Fallegar myndir og hugljúfar ein-
kenna ljóð Vilborgar Dagbjartsdóttur.
Barnæskan, náttúran, borgin, guð og
konan eru henni yrkisefni sem fyrr í
nýju ljóðabókinni, Fiskar hafa enga
rödd. Ljóðin taka á sig margs konar
form – sum eins og stuttar sögur eða
myndir með mórölskum boðskap
eða hugleiðingum, önnur knöpp og
tilfinningarík – tregafull. Þótt margs
konar stemning sé í ljóðum Vilborgar
er ákveðna samfellu að finna í bók-
inni. Hún byrjar á ljóðunum sem
tengjast barnæsku skáldkonunnar og
sveitinni eins og ,,Myrkfælni“ og
,,Reynsla“, síðan koma ljóð sem fjalla
um ástina, heimilislíf giftrar konu
–,,Morgunsöngur heimavinn-
andi húsmóður (Gömul
tugga)“. Þá koma ljóð úr ýms-
um áttum, sem öll virðast lýsa
reynslu og hugrenningum
fullorðins ljóðmælenda um
börn, listaverk, sorg, óréttlæti
og að lokum dauðann. Vil-
borg endar bókina á eigin
þýðingum á þremur ljóðum eftir Syl-
viu Plath sem þrungin eru drunga,
fegurð, dauða. Því má segja að bók-
in fylgi lífshlaupi manneskjunnar.
Náttúran er ríkjandi í myndmáli
ljóðanna, sérstaklega þeirra sem
heyra til barnæskunni, en líka í borg-
arstemningu skáldsins. Í fegurðinni
býr guð og börnin eru fundvís á hann
eins og segir í ljóðinu sem vitnað var
til hér að framan (,,Á leið í Hagaborg
á haustmorgni“). Vísanir í samtím-
ann, bókmenntir og listir eru ófáar og
vel gert af Vilborgu að hafa skýringar
með ljóðunum aftast.
Í ljóðum skynjar lesandi oft mikla
dýpt og innileika í höndum góðra
skálda, þau eru persónulegri en önn-
ur bókmenntaform. Þannig skynjar
maður líka ljóð Vilborgar sem brot úr
hennar lífi – minningar og tilfinning-
ar. Þetta er eins konar ævisaga. Í
kvæðakveri Vilborgar Dagbjartsdóttur
er lesendum boðið að kynnast brot-
um úr þeirri ævi eftir ljóðum sem eru
í senn lifandi og myndræn, útpæld
og tilfinningarík. Ég stenst ekki mátið
að enda þessa umsögn með því að
grípa innan úr einu margslungnu
ljóði Vilborgar, þar sem engill vitjar
ljóðmælandans:
Hann stendur hjá hestunum
líkur sonum mínum og bræðrum.
Bleikt, slétt hárið virðist hvítt í
tunglskininu.
,,Ekkert liggur á kerling,
það kemur alltaf meiri tími.“...
BÓKMENNTIR
MELKORKA ÓSKARSDÓTTIR
Fiskar hafa enga rödd
Höf: Vilborg Dagbjartsdóttir
Útg: JPV útgáfa
Fegurð og tregi
VILBORG DAGBJARTSDÓTTIR
ÁRNI ÞÓR SIGMUNDSSON Það er aldrei svo að það sé
ekki eitthvað sem skilur eftir sig í huga þeirra sem eru að
vinna að málunum.
Raunsæ mynd af
rannsókn mála
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR