Fréttablaðið - 07.12.2004, Side 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
Frjáls íbúðalán
4,15% verðtryggðir vextir
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar.
Þú getur litið inn í Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000
eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
Engin sk
ilyrði
um önn
ur
bankav
iðskipti
100%veðsetningarhlutfall
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Af jólasveinum
og sveitalubbum
Fá jólasveinarnir blöðin? spyrstubba og mokar í sig morgun-
korni við eldhúsborðið. Hvað áttu
við? tautar móðirin utan við sig.
Eru blöðin borin út í hella uppi á
fjöllum? Tja, það skyldi þó aldrei
vera, muldrar móðirin undrandi.
Fara jólasveinar í innkaupaferðir í
stórmarkaðina? heldur stubba
áfram og grúfir sig yfir blaðið á
borðinu. Nei, getur það verið? segir
móðirin hissa og kíkir á blaðið yfir
öxlina á krílinu. Og mikið rétt.
Áreitið á aðventu er svo mikið að
jafnvel hellisbúar á hálendinu fá
ekki frið fyrir auglýsendum sem
birta auglýsingar á borð við þessa:
Jólasveinar, jólasveinar, hjá okkur
fáið þið skemmtilegt dót á tilboði í
skóinn.
JÓLASVEINAR eru markhópur í
baráttunni um kaupglaðar sálir. Og
stubba heldur áfram. Ef þeir fá
blöðin þá er einhver sem ber út
blöðin til þeirra. Hver skyldi það
vera? Ætli þeir séu með blaðalúgu?
Og hver ber út blöðin hjá þeim á
sumrin? Eru þeir ekki sofandi þá?
Og geta þeir lesið blöðin? Þarf að
bera út blöðin til þeirra með þyrlu?
Ert þú ekki að verða of sein í skól-
ann? spyr mamman ráðþrota.
EN STUNDUM þarf að birta aug-
lýsingar og höfða til jólasveina. Það
er óskandi að í hvítu musteri í villtu
vestri lesi jólasveinar auglýsingar
og hafi af þeim bæði gagn og gam-
an. Þjóðarhreyfing Íslendinga sem
vilja ekki eiga aðild að innrás og
stríðsrekstri staðfastra og viljugra
stríðsmanna safnar nú fé til að birta
eina slíka auglýsingu svo jólasvein-
ar þar í landi sjái að norður í
dumbshafi býr staðföst og viljug
þjóð – staðföst gegn stríði og viljug
til að vinna að friði með öllum til-
tækum, friðsömum ráðum.
VIÐ ERUM sveitalubbar. Það hef-
ur fengist staðfest af farandsöngv-
ara alla leiðina frá Ítalíanó. Ósköp
er þetta nú notalegur titill sem að
ástæðulausu hefur hlotið svo nei-
kvæða merkingu. Því hvað er
sveitalubbi? Jú, samkvæmt orðabók
er það ósiðaður maður úr sveit.
Þjóðir sem hafa státað af siðprýði
sínu á alþjóðavettvangi standa fyrir
ofbeldisverkum í fjarlægum lönd-
um. Það hefur til þessa þótt mynd-
arlegt að vera úr sveit og ekkert
svo slæmt að teljast ósiðaður meðal
siðaðra á síðustu og verstu tímum.
BAKÞANKAR
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR