Tíminn - 16.09.1973, Blaðsíða 8
8
TÍMINN
Sunnudagur 16. september 1973
Viftgcrðarþjónusta Dynjanda. Þarna er verið að gera við mótordrifna stórviðarsög. Bensínmótor knýr
sögina, en samt cr hún fislétt. Svona sagir kaupa þeir, sem nýta rekafjörur, stunda stórviðasmfð, eir.s
og bryggjusmíð og bátasmlðar, auk fjölmargra annarra.
inn með sér á bersvæði og skaut á
hann með byssu, en kúlan fór ekki
I gegn og þá var hann ánægður og
keypti hjálminn.
10.000 öryggishjálmar
— öryggishjálmarnir hafa nú
fyrir lifandi löngu sannað gildi
sitt. Er mér nær að halda að um
10.000 hjálmar séu í notkun á
hverjum degi við dagleg störf i
margvíslegum starfsstöðvum
manna til sjós og lands og í lofti,
og þótt ekki séu til handbærar
tölur, er sýni gildi þeirra fyrir
manninn, er ekki minnsti vafi á,
að þeir hafa átt mikinn þátt i að
vernda líf og heilsu hins vinnandi
manns.
Á leikfimiskóm
i þungaiðnaði
— Annar liður i innflutningi
öryggishlifa eru öryggisskór.
Islendingar eru þvi miður ennþá i
sauðskinnsskóm i vissu tilliti - Við
sjáum unga menn á strigaskóm,
og leikfimiskóm i þungaiðnaði og
við margvisleg hættuleg störf.
Þetta þarf að breytast. Manni
verður það ljóst, þegar málin eru
skoðuð. Skóbúnaður verkamanna
Við rennibekk bjá Dynjanda
Tveir vélsmiðir hjá Dynjanda smiða pakkningu á rör
er mjög mikilvægur. Þeir þurfa
ekki aðeins þægilega, sterka skó á
fæturna , eins og aðrir menn I
starfi, heldur þurfa þeir, ef vel á
að vera, sérstaka skó margir
hverjir. Það er ein algengasta
orsök slysa, að menn missa þung
stykki ofan á tærnar á' sér og
tábrot er mjög algeng afleiðing
vinnuslysa. Þvi eiga menn að
hafa á fótunum skó með stálhettu
yfir tærnar. Þá getur hlaðinn
vörubill keyrt yfir tærnar á
mönnum, hvað þá annað, og
ekkert skeður.
Á stálskóm i vinnunni
Einnig þyrftu starfsmenn i
byggingariðnaði að vera á skóm
með stálsólum, þvi að þeir eru
alltaf að stinga sig á nöglum, en
það er ekkert geðslegt að fá ryðg-
aða nagla á kaf i fótinn. Ýmsir
verktakar og vinnuveitendur hafa
samt sýnt þessu mikinn skilning,
og Alverið i Straumsvik reið á
vaðið með þvi að útvega hlutaaf
starfsmönnum sinum öryggisskó.
Þó hefur frumkvæðið ekki verið
einvörðungu hjá vinnuveitendum.
Margir iðnaðarmenn, verka-
menn og starfsmenn i þunga-
iðnaði hafa komið hér og fengið
sér öryggisskó, eftir að þeir hafa
með einum eða öðrum hætti
komizt yfir einhvern fróðleik um
slika skó. Mér er það til dæmis
minnisstætt fyrir nokkru, að vél-
smiðjueigandi einn kom hér og
keypti skó. Svo var mál með
vexti, að einn starfsmanna hans
hafði sjálfur keypt sér öryggis-
skó. Eitt sinn er verið var að færa
stóra, þunga stálplötu, misstu
starfsmenn takið og platan skall
ofan á tærnar á manninum og
dróst eftir þeim. Yfirleðrið á
skónum tættist i sundur og
skórnir urðu ónýtir, en maðurinn
meiddist ekkert. Það gerði stál-
vörnin. Þessi maður hefði stór-
slasazt og orðið nokkrar vikur frá
vinnu, ef hann hefði ekki verið á
öryggisskóm. Vinnuveitandinn
hefði orðið að greiða honum kaup
i veikindunum. Hann slapp þvi
með að kaupa nýja skó á starfs-
manninn og greiddi hann fyrir þá
með mikilli ánægju.
Ekki hægt að selja
öryggisskó i skóbúðum
vegna álagningar-
ákvæða
— Þótt skóbúnaður sé enn á
frumlegu stigi i iðnaðinum, þá
hefur nokkuð áunnist og þús.
manna ganga nú á öryggisskóm.
Álagningarreglur eru hins vegar
með þeim hætti i þessum vöru-
flokki, að okkur hefur ekki tekizt
aö koma þeim á markaðinn hjá
skóverzlunum. Þetta þyrfti að
breytast, svo unnt væri að hafa þá
til sölu annars staðar en hjá
okkur. Oryggishjálmar eru i
sérstökum tollflokki 7% en
skórnir eru i flokki með
almennum skófatnaði, og er
nauðsynlegt, að lækka þann toll.
Garðsláttuvélarnar geta
verið hættulegar
Það væri of langt mál, að ræða
um hinar einstöku gerðir af
öryggisskóm. Sérbyggðir skór
eru til fyrir fjölmargar atvinnu-
greinar. Það nýjasta hjá okkur
eru skór fyrir garðsláttumenn.
Það hefur komið i ljós að sumar
gerðir garðsláttuvéla geta verið
háskasamlegar, ef aðgæzla er
ekki höfð og geta hreinlega klippt
framan af tánum á mönnum
þegar þeir draga vélina of mikið
að sér. Að tilstuðlan Samvinnu-
trygginga höfum við pantað til
landsins sérstaka skó fyrir garð-
sláttumenn. A þeim vinna ljáhnif-
arnir ekki.
Notkun eyrnahlifa fer vaxandi
hér á landi, sem annars staðar,
þar sem hávaðinn er að verða
mikið vandamál i iðnaði, eða öllu
heldur i mannlegu lifi. Við seljum
nú um 3000 eyrnahlifar á ári
hverju, en fyrsta árið, sem við
fluttum þær inn, seldust 40 stykki.